

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Ekki tilbúinn að skipta Leicester út fyrir Tottenham
Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur leitar nú að eftirmanni José Mourinho. Brendan Rodgers, þjálfari Leicester City, hefur verið orðaður við stöðuna en hefur ekki áhuga.

Gary Neville: Guardiola gæti vel verið sá besti í sögunni
Knattspyrnusérfræðingurinn og Manchester United goðsögnin Gary Neville talar afar vel um Pep Guardiola og Manchester City í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum.

Skoraði ekki í fjórtán mánuði en er nú sá heitasti í ensku úrvalsdeildinni
Kelechi Iheanacho ætlar að sjá til þess að Leicester City spili í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en nígeríski framherjinn hefur verið óstöðvandi fyrir framan markið síðustu vikurnar.

Sjóðheitur Iheanacho skaut Leicester nær Meistaradeildarsæti
Kelechi Iheanacho dró Leicester að landi á heimavelli gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Leicester hafði betur, 2-1.

Þrjár goðsagnir Arsenal með Svíanum í kauptilrauninni
Daniel Ek, hinn sænski eigandi Spotify, hefur fengið þrjár af þekktustu stjörnunum úr „hinu ósigrandi“ liði Arsenal til að taka þátt í kaupum á félaginu.

Shearer og Henry fyrstir inn í höllina
Tveir af allra bestu framherjum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eru þeir fyrstu sem valdir eru inn í nýja heiðurshöll deildarinnar.

Nýr 190 þúsund punda samningur á borðinu
Manchester United er talið vera að undirbúa nýtt samningstilboð fyrir vinstri bakvörðinn Luke Shaw sem hefur leikið ansi vel á leiktíðinni.

Erfið staða WBA eftir dramatískt jafntefli gegn Villa
West Bromwich Albion er í erfiðri stöðu í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið gerði 2-2 jafntefli við Aston Villa í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Laporte hetjan á Wembley og fjórði í röð hjá City
Manchester City er enskur deildarbikarmeistari etir 1-0 sigur á Tottenham í úrslitaleiknum á Wembley í dag. Þetta er fjórða árið í röð sem City vinnur titilinn.

Steindautt jafntefli á Elland Road
Leeds United og Manchester United skildu jöfn, 0-0, í tilþrifalitlum leik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þeir síðarnefndu misstu af tækifæri til að setja pressu á granna sína frá Manchester-borg í titilbarátunni.

Swansea tryggði sér og tveimur öðrum umspilssæti
Swansea og Reading gerðu 2-2 jafntefli í ensku Championship-deildinni í hádeginu. Úrslitin gera vonir Reading um umspilssæti að engu þar sem nú liggur fyrir hvaða fjögur lið munu keppa um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Wood sló upp sýningu er Burnley fjarlægðist fallsvæðið
Nýsjálendingurinn Chris Wood skoraði þrennu í mögnuðum 4-0 útisigri Burnley á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Burnley.

Sendi stuðningsmanni Liverpool tóninn á Twitter
Allan Saint-Maximin skoraði jöfnunarmark Newcastle í gær er liðið gerði 1-1 jafntefli við ensku meistarana í Liverpool á útivelli.

Upphitun: Úrslitaleikur í skugga skandals
Manchester City og Tottenham Hotspur eigast við í úrslitaleik enska deildabikarsins klukkan 15:30 í dag. Þessi áhugaverða viðureign verður í beinni á Stöð 2 Sport 2, en það hefur töluvert gengið á hjá báðum félögum í vikunni.

Bruce eftir dómgæsluna á Anfield: „Hræðilegur dómur“
Steve Bruce, stjóri Newcastle, var ekki sáttur með dómgæsluna á Anfield í dag er Newcastle gerði 1-1 jafntefli við ríkjandi Englandsmeistara í Liverpool.

Sniðganga samfélagsmiðla um næstu helgi
Enskur fótbolti hefur tekið þá ákvörðun að sniðganga samfélagsmiðla um næstu helgi til að mótmæla áreiti á leikmenn sem á sér stað á miðlunum.

Fallnir Sheffield-menn afgreiddu Brighton
Sheffield United vann 1-0 sigur á Brighton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var liður í 33. umferðinni.

Salah í sögubækurnar
Mohamed Salah, framherji Liverpool, skrifaði í sögubækur liðsins með marki sínu í 1-1 jafnteflinu gegn Newcastle.

Mikilvægur sigur Chelsea í Meistaradeildarbaráttunni
Chelsea vann ansi öflugan 1-0 sigur á West Ham á útivelli er liðin mættust í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Watford upp í úrvalsdeildina eftir stutt stopp
Watford tryggði sér í dag sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta að ári með 1-0 sigri á Millwall, félagi Jóns Daða Böðvarssonar. Watford fer því upp eftir aðeins eina leiktíð í Championship-deildinni.

Ósáttir stuðningsmenn United fjölmenna fyrir utan Old Trafford
Stuðningsmenn Manchester United fara að fordæmi fylgjenda annarra stórliða á Englandi og lýsa andstöðu sinni við stjórn félagsins vegna ofurdeildarinnar. Þeir kalla eftir sölu Glazer-fjölskyldunnar á félaginu.

Ekki frammistaða sem verðskuldar Meistaradeildarsæti
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum ósáttur eftir 1-1 jafntefli liðs hans gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Um er að ræða annan leikinn í röð þar sem Liverpool fær á sig jöfnunarmark undir lok leiks.

Ævintýralegar lokamínútur á Anfield
Joe Willock tryggði Newcastle stig með marki í uppbótartíma gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 1-1 urðu úrslit leiksins eftir dramatískan lokakafla.

„Harma mjög“ aðkomu að Ofurdeildinni
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sendi ásamt stjórn félagsins út yfirlýsingu í gærkvöld þar sem aðkoma liðsins að stofnun ofurdeildarinnar er hörmuð. Félagið hefur, líkt og önnur ensk lið sem áttu hlut að máli, sætt mikilli gagnrýni.

90% stuðningsmanna Tottenham vilja stjórnina burt
Stuðningsmannafélag Tottenham Hotspur í Lundúnum sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem kallað er eftir því að stjórn félagsins segi af sér vegna hluts félagsins í stofnun ofurdeildarinnar. 90% meðlima kusu með ákalli afsagnar.

Kane og De Bruyne í kapphlaupi við tímann
Bæði Kevin De Bruyne og Sergio Agüero gætu verið með Manchester City er liðið mætir Tottenham Hotspur í úrslitaleik enska deildabikarsins á morgun. Þá vonast Tottenham-menn til að fyrirliði liðsins Harry Kane verði með.

Gylfi Þór með hærri einkunn en allir leikmenn Arsenal
Gylfi Þór Sigurðsson átti fínan leik er Everton vann Arsenal 1-0 á Emirates-vellinum í gær. Bernd Leno stal fyrirsögnunum með klaufalegu sjálfsmarki sínu en Gylfi Þór var nálægt því að brjóta ísinn.

Eigandi Spotify til í að skoða kaup á Arsenal
Eigandi og stofnandi tónlistarveitunnar Spotify er tilbúinn í að fjárfesta í enska knattspyrnufélaginu Arsenal.

Hörð mótmæli fyrir utan Emirates-völlinn í kvöld
Þó frammistaða Arsenal í 0-1 tapinu gegn Everton í kvöld hafi ekki verið upp á marga fiska voru leikmenn og forráðamenn félagsins eflaust sáttir með að reitt stuðningsfólk liðsins fékk ekki að vera í stúkunni.

Íþróttamannsleg framkoma Gylfa Þórs að leik loknum
Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bernd Leno gerði sig sekan um skelfileg mistök sem tryggðu Everton stigin þrjú. Gylfi Þór Sigurðsson fór beint upp að markverðinum að leik loknum.