

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Kviðmágarnir á sama hóteli í Katar
Fornu fjendurnir John Terry og Wayne Bridge ku vera á sama hótelinu í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta fer fram.

Dagný skoraði og Glódís Perla hélt hreinu
Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham United í 2-0 sigri á Birmingham City í enska deildarbikarnum í fótbolta í dag. Þá stóð Glódís Perla Viggósdóttir vaktina í hjarta varnar Bayern München sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Íhuga að fá Pulisic á láni til að fylla skarð Ronaldo
Forráðamenn Manchester United íhugðu að sækja bandaríska landsliðsmanninn Christian Pulisic á láni frá Chelsea síðasta sumar. Áhuginn er enn sá sami og gæti Man United reynt að fá leikmanninn í sínar raðir þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Aðstoðarþjálfarinn fær traustið og tekur við Bournemouth
Gary O'Neil hefur samið við Bournemouth um að taka við sem aðalþjálfari liðsins í ensku úrvalsdeildinni til ársins 2024.

Klopp fær meiri völd hjá Liverpool
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fær að hafa meira um það að segja hvaða leikmenn félagið kaupir eftir að Julian Ward hættir störfum.

Segir að yfirvöld í Sádi-Arabíu styðji kaup á Manchester United og Liverpool
Prins Abdulaziz bin Turki Al Faisal, íþróttamálaráðherra Sádi-Arabíu, segir að yfirvöld þar í landi séu klárlega tilbúin að styðja við þarlenda einkaaðila sem gætu ætlað sér að bjóða í ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og Manchester United.

Fyrrverandi dýrasti leikmaður Liverpool látinn
Liverpool missti einn úr fjölskyldunni í gær. David Johnson, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, er látinn eftir glímu við krabbamein. Hann var 71 árs gamall.

Glazer-fjölskyldan sögð vilja fá yfir þúsund milljarða fyrir Man United
Eigendur Manchester United ætla sér að setja nýtt heimsmet ef þeir selja félagið en það kom fram í vikunni að United væri til sölu.

Íslandsvinurinn Ratcliffe mun bjóða í Man United
Hinn moldríki Sir Jim Ratcliffe hefur á lífsleiðinni keypt margar jarðir hér á landi og stefnir nú á að kaupa Manchester United.

Ronaldo í tveggja leikja bann
Cristiano Ronaldo var í dag dæmdur í tveggja leikja bann vegna atviks sem átti sér stað á síðustu leiktíð. Bannið mun ekki hafa áhrif á leiki hans með Portúgal á HM en mun taka gildi sama með hvaða félagsliði hann mun spila næst. Einnig var hann sektaður um 50 þúsund pund.

Besta ár þeirra bestu á EM síðasta sumar endar hræðilega
Enska knattspyrnukonan Beth Mead átti frábært ár í ár en það verður samt alltaf súrsætt þökk sé því hvernig það endar.

Lágkúra eða kynding hjá Cristiano Ronaldo þegar hann sýndi nýja úrið í gær?
Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik með Manchester United en hann og enska félagið tilkynntu um það í gær að þau hefðu komist að samkomulagi um starfslok.

Guardiola framlengir við City
Stuðningsmenn Manchester City fengu góðar fréttir í morgunsárið því Pep Guardiola hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við liðið.

Man. Utd sparar sér 2,9 milljarða með því að losna við Cristiano Ronaldo strax
Cristiano Ronaldo gerði Manchester United þann greiða að krefjast þess ekki að fá starfslokasamning hjá enska félaginu.

„Finnst eins og þetta sé rétti tíminn fyrir mig að leita að nýrri áskorun“
Cristiano Ronaldo sendi frá sér stuttorða yfirlýsingu fyrr í kvöld eftir að hann og Manchester United komust að samkomulagi að því að rifta samningi leikmannsins. Hann segist enn elska félagið og stuðningsmennina, en að tími hafi verið kominn á breytingar.

Eigendur United íhuga að selja félagið
Eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, Glazer-fjölskyldan, íhuga nú að selja félagið eftir að hafa átt það í 17 ár.

Ronaldo yfirgefur United
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hefur leikið sinn síðasta leik fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United.

„Við þurftum þessa góðu byrjun“
Bukayo Saka var alsæll eftir 6-2 stórsigur Englands gegn Íran í fyrsta leik á HM í Katar, eftir að Englendingar höfðu ekki unnið neinn af sex leikjum sínum í Þjóðadeildinni á þessu ári.

Firmino fékk ekki að fara á HM en lét vita að hann hafi það ágætt
Roberto Firmino var ekki nógu góður til að komst í heimsmeistarahóp Brasilíumanna þrátt fyrir að hafa spilað vel með Liverpool á leiktíðinni.

Drakk hland í fótboltaleik og fékk síðan rauða spjaldið
Óhætt er að segja að laugardagurinn hafi verið slæmur dagur hjá enska markverðinum Tony Thompson.

Harry Kane óttast hvorki gult spjald né sekt
Harry Kane ætlar ekki að láta hótanir Alþjóða knattspyrnusambandsins stoppa sig í því að nota „OneLove“ fyrirliðabandið í fyrsta leik enska landsliðsins á HM í Katar í dag. Hann staðfesti á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Íran að hann vilji bera bandið á HM

West Ham með sigurmark undir lokin gegn botnliðinu
Dagný Brynjarsdóttir og samherjar hennar í West Ham tryggðu sér þrjú stig í ensku úrvalsdeildinni þegar þær lögðu botnlið Leicester í dag. Sigurmark West Ham kom undir lok leiksins.

Jón Daði spilaði í dramatískri endurkomu Bolton
Jón Daði Böðvarsson hóf leik á varamannabekk Bolton þegar liðið heimsótti Fleetwood Town í ensku C-deildinni í fótbolta í dag.

Segir Saka tilbúinn í að taka vítaspyrnu á nýjan leik
Aaron Ramsdale, markvörður Arsenal, segir að Bukayo Saka sé tilbúinn að stíga fram og taka vítaspyrnu á heimsmeistaramótinu í Katar. Saka klikkaði á síðustu spyrnu Englands í úrslitaleiknum gegn Ítalíu á Evrópumótinu á síðasta ári.

Elanga kemur Ronaldo til varnar
Anthony Elanga tók upp hanskann fyrir Cristiano Ronaldo í viðtali eftir landsleik Svíþjóðar og Mexíkó í vikunni. Gagnrýni Ronaldo gagnvart ungum leikmönnum í viðtali hans hjá Piers Morgan hefur vakið töluverða athygli.

Stelpurnar fá að spila á stóru leikvöngum strákanna um helgina
Enska úrvalsdeildin hjá körlunum er komið í HM-frí þar til fram yfir jól en mörg ensku félaganna ætla að leyfa kvennaliðum sínum að spila á stóru leikvöngunum um helgina.

United íhugar að reka Ronaldo
Manchester United vinnur nú að því að reka Cristiano Ronaldo frá félaginu. Portúgalinn gerði sem kunnugt er allt vitlaust með viðtalinu umtalaða við Piers Morgan.

Ronaldo svaraði því af hverju hann hafnaði boði um hæstu laun sögunnar
Cristiano Ronaldo heldur því fram í viðtalinu umtalaða við Piers Morgan að hann hafi verið „mjög ánægður“ hjá Manchester United í sumar og séð fram á spennandi leiktíð.

„Ánægður ef Arsenal vinnur deildina“
Seinni hluti viðtals Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var sýnt í kvöld. Þar sagði Ronaldo meðal annars að hann yrði ánægður að sjá Arsenal vinna deildina og þá ræddi hann einnig um virðinguna sem hann ber fyrir Lionel Messi.

Fjárfestar sýna Liverpool mikinn áhuga
Fjárfestingafélagið Fenway Sports Group, sem gaf út á dögunum að knattspyrnufélagið Liverpool væri til sölu, segir að áhugi fjárfesta á félaginu sé mikill. FSG horfir helst til þess að selja lítinn hlut í félaginu en skoðar einnig yfirtöku.