Enski boltinn

Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Allardyce hefur enn ekki og segir að hann muni aldrei jafna sig á vonbrigðunum.
Allardyce hefur enn ekki og segir að hann muni aldrei jafna sig á vonbrigðunum.

Tíu árum eftir að hafa verið rekinn sem þjálfari enska landsliðsins segir hryggur Sam Allardyce að hann muni aldrei komast yfir vonbrigðin sem fylgdu uppsögninni.

Allardyce hafði aðeins stýrt enska liðinu í einum leik þegar honum var sagt upp eftir 67 daga í starfi í september árið 2016. Blaðamaður frá Daily Telegraph hafði þá þóst vera kaupsýslumaður frá austurlöndum fjær og tóku Allardyce leynilega upp á fundum þar sem enski þjálfarinn benti þeim á leiðir framhjá reglum enska knattspyrnusambandsins um eignarhald þriðja aðila á leikmönnum.

Enska knattspyrnusambandið sagði Allardyce hafa sýnt af sér „alvarlegt dómgreindarleysi“ og sagði hann ekki hæfan landsliðsþjálfarastöðunni vegna málsins. Gareth Southgate tók við liðinu sem lenti í fjórða sæti á HM 2018 og öðru sæti á EM 2020.

Uppsögnin situr enn í Allardyce áratugi síðar.

„Ég lít auðvitað til baka á þetta með mikilli sorg. Ég mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta. Það er í rauninni stysta svarið, varðandi skilningsleysi enska knattspyrnusambandsins á sínum tíma,“ segir Allardyce í hlaðvarpi Peter Crouch.





„Hvað varðar það að fá ekki tækifæri til að verja mig, ákvörðun sem þeir tóku bara á einum degi án þess að leyfa mér að segja: ‚Ég er ekki sekur um þetta,‘ sem ég var ekki,“ segir Allardyce en eftir að klippur af leynilegum upptökum Telegraph af fundinum með Allardyce fór í loftið var hann fokinn innan við degi síðar.

„Svo tóku þeir auðvitað ákvörðunina, bara strax, bang. Einhver hlýtur að hafa hrætt þá til að taka þessa ákvörðun í flýti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×