

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Björn lagði ríkið og fær milljónir í bætur
Íslenska ríkið þarf að greiða Birni Þorlákssyni, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar tæpar sjö milljónir vegna uppsagnar hans á síðasta ári, þar af þrjár milljónir í miskabætur.

Burðardýr dæmt í fimmtán mánaða fangelsi
Kvenmaður var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir innflutning á rúmu kílói af sterku kókaíni. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi.

Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur
Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms.

Hrækti á lögreglumenn og hótaði að myrða vararíkissaksóknara
Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir fjöldan allan af hegningarlagabrotum, þar á meðal fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hrækja ítrekað á lögreglumenn og að hóta að myrða vararíkissaksóknara.

Þyngdu dóm manns sem beitti alvarlegu og langvinnu heimilisofbeldi
Landsréttur þyngdi á fimmtudag fangelsisdóm karlmanns sem sakfelldur var fyrir brot í nánu sambandi og dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í árs fangelsi.

„Við hefðum átt að vanda okkur betur“
Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að fyrirtækið hefði átt að vanda sig betur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns, sem stefndi fyrirtækinu fyrir ólögmæta uppsögn. Orkuveita Reykjavíkur var dæmd skaðabótaskyld í málinu í Landsrétti í dag.

Dómur yfir yfirmönnum Plastgerðarinnar vegna banaslyss staðfestur
Landsréttur staðfesti dóm fyrir manndráp af gáleysi yfir tveimur yfirmönnum Plastgerðar Suðurnesja vegna banaslyss sem varð á vinnustaðnum sumarið 2017. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir brot á lögum um öryggi á vinnustað sem rétturinn taldi ófyrnd.

Áslaug Thelma hafði betur gegn Orku náttúrunnar í Landsrétti
Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns einstaklingssviðs Orku náttúrunnar (ON), gegn fyrirtækinu. ON hyggst una niðurstöðunni og ætlar ekki að áfrýja.

Lúðvík fær ekki að áfrýja dómi í meiðyrðamáli sínu til Hæstaréttar
Hæstiréttur hafnaði ósk Lúðvíks Bergvinssonar um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn ritstjóra Viðskiptablaðsins og útgáfufélags þess. Málið var ekki talið hafa verulegt almennt gildi.

Tilræðismaður Reagan endanlega frjáls og heldur uppselda tónleika í Brooklyn
John Hinckley Jr. sem reyndi að skjóta Ronald Reagan Bandaríkjaforseta til bana árið 1981 verður í dag endanlega frjáls allra sinna ferða. Hann var úrskurðaður ósakhæfur í réttarhöldunum 1982 og hefur verið undir ströngu eftirliti sálfræðinga síðan. Þann 8. júlí næstkomandi heldur hann tónleika í Brooklyn sem er uppselt á.

Íslendingur dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi fyrir barnaníð á Spáni
Dómstóll á Spáni hefur dæmt íslenskan karlmann um sextugt í átta og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn að minnsta kosti sex börnum í Torre-Pachecho í Múrsíu á suðausturhluta Spánar. Brotin voru framin á árunum 2020 til 2021.

Sneru við sýknudómi manns sem nauðgaði fyrrverandi kærustu
Landsréttur hefur snúið við sýknudómi Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gefið var að sök að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni. Var manninum gert að sæta fangelsisrefsingu í þrjú ár en héraðsdómur hafði áður sýknað manninn vegna sönnunarskorts.

Óskaði eftir kynferðislegum myndum og sendi typpamynd til barns á Snapchat
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi og greiðslu 400 þúsund króna í bætur fyrir brot gegn barnaverndarlögum og brot gegn blygðunarsemi eftir að hafa beðið tvo einstaklinga um kynferðislegar myndir og sent þeim typpamyndir á Snapchat.

Þrír mánuðir fyrir kynferðislega áreitni
Karlmaður var í gær dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa kynferðislega áreitt konu í bíl hennar.

Starfsmaður Búllunnar fékk skellinn í kjötmálinu
Starfsmaður Búllunnar sem ákærður var fyrir tollalagabrot með því að veita rangar upplýsingar um innflutt kjöt þarf að greiða um fjörutíu milljónir í sekt vegna málsins. Sektin fellur þó niður haldi viðkomandi skilorð næstu tvö árin, meðal annars vegna þess að starfsmaðurinn var sú eina sem var látin svara til ábyrgðar fyrir málið, án þess þó að hafa haft af því nokkurn ávinning.

Raðnauðgari dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga barnsmóður sinni
Landsréttur dæmdi í dag karlmann í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga barnsmóður sinni. Maðurinn er alls með fjóra dóma á bakinu fyrir nauðganir.

Dómur staðfestur í Bræðraborgarstígsmálinu
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Marek Moszczynski vegna íkveikjunnar á Bræðraborgarstíg í júní fyrir tæpum tveimur árum síðan þar sem þrír létust. Dómurinn felur í sér að hann muni sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.

Fær 19 milljónir vegna ellefu mánaða gæsluvarðhalds að ósekju
Íslenska ríkinu var í dag gert að greiða nígerískum karlmanni 19 milljónir króna í miskabætur vegna frelsissviptingar er hann sætti í ellefu mánuði í tengslum við rekstur sakamáls sem lauk með tveggja mánaða fangelsisdómi.

Smyglaði 643 OxyContin töflum til landsins
Karlmaður var í dag sakfelldur fyrir að hafa staðið að innflutningi á 643 töflum af ávana-og fíknilyfinu OxyContin. Maðurinn flutti efnin til landsins með flugi frá Varsjá í Póllandi en tollverðir fundu efnin við leit í farangri ákærða.

Hæstiréttur fellst á að taka fyrir mál Jóns Ársæls
Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Jóns Ársæls Þórðarsonar sem dæmdur var í Landsrétti til að greiða konu, sem hann tók viðtal við í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt og sýndir voru í Ríkissjónvarpinu, 800 þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir króna í málskostnað.

Stuðningsfulltrúi tognaði á öxl og fær átta milljónir í bætur
Borgarbyggð hefur verið gert að greiða stuðningsfulltrúa sveitarfélagsins tæpar átta milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð við umönnun hans á þroskaskertum einstaklingi.

Fimm mánuðir fyrir hálfrar milljónar dósasvindl
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt fyrrverandi starfsmann Endurvinnslunnar á Akureyri í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik.

Þagnarskyldusamningar, þrálátar beiðnir um kynlíf og meint kynferðisbrot
Hinn 26 ára gamli Deshaun Watson, leikstjórnandi Cleveland Browns í NFL-deildinni, er í vondum málum eftir rannsókn New York Times. Er hann lék með Houston Texans ku Watson ítrekað hafa reynt að sannfæra nuddara um að stunda með sér kynmök, farið yfir mörk og jafnvel brotið á þeim.

Sóttu jólastyttu fulla af kókaíni á pósthúsið á Stórhöfða
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings þar sem þeir sóttu pakka á pósthús þar sem í var jólastytta með um kíló af kókaíni innan í.

Fær eina og hálfa milljón vegna aðgerða lögreglu í vændismáli
Íslenska ríkið þarf að greiða karlmanni 1,5 milljónir króna í bætur vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum brotum mannsins, sem tengdust meðal annars vændi.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda kynferðislegt efni af fyrrverandi
Karlmaður var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar sem frestað verður til tveggja ára, haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig ákærður fyrir margvísleg meint brot gegn fyrrverandi unnustu sinni, þar á meðal nauðgun, en sýknaður af þeim öllum.

Ákærður fyrir tilraun til manndráps
Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir árás fyrir framan skemmtistaðinn 203 Club í miðborg Reykjavíkur. Annar þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Líklegt er að skrúfjárni hafi verið beitt.

Stjórn Íslensku óperunnar hefur greitt Þóru
Óperusöngkonan Þóra Einarsdóttir segist ekkert hafa heyrt frá stjórn Íslensku óperunnar vegna dóms Landsréttar í máli þeirra. Stjórnin sagði í tilkynningu í gær að búið væri að greiða henni vangoldin laun og ræða við fulltrúa söngvara um framtíðina.

Álag vegna fjarkennslu skuli greitt á hættustundu
Félagsdómur felldi á þriðjudag dóm í tvíþættu máli Félags grunnskólakennara gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fallist var á kröfu félagsins um 50 prósent fjarkennsluálag en kröfu um yfirvinnugreiðslu vegna tilfærslu á vinnutíma kennara innan sömu vinnuviku, á tímum hæsta neyðarstigs almannavarna, var hafnað.

Íslenska óperan hyggst ekki áfrýja dómi Landsréttar
Stjórn Íslensku óperunnar hefur ákveðið að una dómi Landsréttar í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni. Fram kemur í tilkynningu frá stjórninni að óperan hafi þegar greitt Þóru og öðrum söngvurum sýningarinnar Brauðkaup Fígarós í samræmi við niðurstöðu dómsins.