

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Klondike frá Úkraínu opnunarmynd Stockfish Film Festival
Stockfish kvikmyndahátíðin verður sett í Bíó Paradís fimmtudaginn 24. mars og stendur í fullum skrúða til 3. apríl.

„Frá framleiðendum vitleysunnar kemur meiri vitleysa“
Allra síðasta veiðiferðin kemur í kvikmyndahús um helgina og er framhaldið jafnvel klúrara en fyrri myndin samkvæmt leikurunum en í henni veltust þeir naktir um í grasinu.

Skrifuðu undir samning um kaup á skemmu í Gufunesi
RVK Studios hafði betur í baráttu við True North um kaup á skemmu Áburðarverksmiðjunnar við Gufunesveg 21 sem staðið hefur ónýtt í lengri tíma. Baltasar Kormákur, leikstjóri og eigandi RVK Studios, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuðu undir samning þess efnis í Gufunesi í dag.

Stemning á forsýningu Allra síðustu veiðiferðarinnar
Kvikmyndin Allra síðasta veiðiferðin verður frumsýnd þann 18. mars næstkomandi. Myndin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar en við frumsýndum sýnishorn úr myndinni í síðasta mánuði hér á Lífinu á Vísi.

Horfðu á Bachelor úti í vitlausu veðri: „Ég vona að Clayton sjái þetta“
Tvö hundruð ofuraðdáendur bandarísku raunveruleikaþáttanna The Bachelor gátu vart haldið augunum opnum vegna veðurofsa á Kársnesinu fyrr í kvöld, þar sem þeir voru saman komnir í Sky Lagoon til að horfa á nýjasta þátt seríunnar.

Fyrsta stikla Obi-Wan Kenobi
Disney birti í kvöld fyrstu stiklu þáttanna Obi-Wan Kenobi, sem fjalla einmitt um Jedi-rddarann fræga, Obi-Wan Kenobi. Þeir fjalla um sögu Old Ben á milli kvikmyndanna Revenge of the Sith og A New Hope.

„Femínismi fjallar um svo margt annað en bara konur og réttindi þeirra“
RVK Feminist Film Festival verður haldin í þriðja skiptið 4. til 8. maí á þessu ári. RVK FFF er alþjóðleg kvikmyndahátíð sem setur kvikmyndir eftir kvenleikstýrur í loftvængi þar sem hvert einstakt snjókorn með sína einstæðu lögun mun njóta sín

Sýnishorn úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag
Í dag 28. febrúar er alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma og af því tilefni gefur Góðvild styrktarsjóður og Mission framleiðsla út stiklu úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag.

Verbúðaræðið, nostalgían og myndaflóðið á samfélagsmiðlum
Fáar sjónvarpsseríur hafa vakið upp eins mikla nostalgíu eins og hin margrómaða Verbúð Vesturports og eiga eflaust margir eftir að sakna þess að bíða spennt á sunnudögum eftir línulegri dagskrá kvöldsins.

X-977 með sérstaka forsýningu á Foo Fighters myndinni Studio 666
Útvarpsstöðin x-977 heldur í kvöld sérstaka forsýningu á Foo Fighters myndinni Studio 666 í Smárabíó.

Elvis Presley fær mann til að kikna í hnjánum í kvikmyndahúsum
Stikla úr kvikmyndinni Elvis sem fjallar um líf og feril Elvis Presley er komin út og eru margir sem bíða spenntir eftir því að sjá myndina í heild sinni, enda á nógu að taka. Þeir Austin Butler og Tom Hanks eru í aðalhlutverkum.

Sýndu brellur sem íslenskt fyrirtæki gerði fyrir Witcher
Reykjavík Visual Effects (RVX) birtu á föstudaginn myndband sem sýnir þær tölvubrellur sem starfsmenn fyrirtækisins gerðu fyrir Netflix þættina Witcher. Þættirnir, bækur og tölvuleikir úr söguheimi Withcer njóta mikilla vinsælda um heim allan.

Mikið um erlend tökuverkefni hér á landi
Verið er að taka upp fjögur erlend kvikmyndaverkefni í stærri kantinum hér á landi um þessar mundir. Þar á meðal er stórt verkefni frá Sony og annað frá Netflix og BBC.

Berdreymi verðlaunuð á Berlinale og verður sýnd í 44 löndum
Samtök evrópska kvikmyndahúsa, Europa Cinemas, hafa valið íslensku kvikmyndina Berdreymi sem bestu evrópsku kvikmyndina í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.

Ráðherrar segja Verbúðina skemmtun góða
Ráðherrarnir Bjarni Benediktsson, Svandís Svavarsdóttir og Willum Þór Þórsson eru sammála um að Verbúðin hafi verið góð skemmtun og að frjálst framsal aflaheimilda hafi verið skiljanlegt og jafnvel farsælt skref á sínum tíma.

„Horfið á Fávita með ömmu ykkar“
Söngkonan og aktivistinn Sólborg Guðbrandsdóttir er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Ásamt því að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár er Sólborg að fara af stað með þættina Fávitar á Stöð 2+ efnisveitunni í dag.

Ísland skráð sem tökustaður í flestum þáttum A House of Dragons
Ísland er skráð sem tökustaður í níu af tíu þáttum House of the Dragon-þáttanna sem gerast í söguheimi Game of Thrones. Það er samkvæmt vef IMDB en mikil leynd hvílir yfir tökum þáttanna.

Hlátrasköll og faðmlög hjá fólkinu á bak við Verbúðina
Áttundi og síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í gær eins og fór eflaust ekki framhjá neinum. Leikarar og aðstandendur hittust á Ölveri í gærkvöldi.

Kafað í fyrstu stiklu Rings of Power
Amazon Studios birtu í gær fyrstu stiklu nýrra þátta sem gerast í söguheimi Hringadróttinssögu. Þættirnir Rings of Power gerast þúsundum ára á undan sögunni um Frodo, Sam, Aragorn og félaga.

Ljúfsár stund meðal netverja eftir síðasta þátt Verbúðarinnar
Áttundi og jafnframt síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í kvöld en þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda. Netverjar kepptust við að koma sínum vangaveltum á framfæri eftir þáttinn en allir virðast hafa verið límdir við skjáinn.

„Gríðarlega spennt að fá loksins að labba rauða dregilinn“
Leikarar í Svörtu söndum, þáttum sem sýndir eru á Stöð 2, segja það mikinn heiður að hafa fengið inngöngu á hina virtu kvikmyndahátíð Berlinale í Þýskalandi sem fer fram í kvöld. Sjónvarpsþættirnir verða þá heimsfrumsýndir en í umsögn dómnefndar er þáttunum hrósað í hástert, meðal annars fyrir karaktersköpun, myndatöku og einstakt umhverfi á Íslandi.

Ruddinn út úr kirkjum landsins og Roter Traubensaft inn
Messuvínið var á árum áður torkennilegur ruddi, samansull misgóðra vína en nú er öldin önnur. Nú er það Roter Traubensaft sem er hið vígða vín sem notuð er við sakramenti.

Davíð Óskar leikstýrir nýrri glæpaþáttaröð sem gerist í Færeyjum
Íslenski leikstjórinn Davíð Óskar Ólafsson er annar tveggja leikstjóra dönsk-færeysku glæpaseríunnar TROM. Þættirnir voru teknir upp í Færeyjum og fóru tökur fram á síðasta ári.

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Berdreymi
Lífið frumsýnir í dag stikluna fyrir kvikmyndina Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson.

Galadriel og Elrond mæta aftur í Rings of Power
Fyrsta stikla Amazon-þáttanna Lord of the Rings: The Rings of Power verður sýnd í hálfleik á Super-bowl um helgina en upphitunin fyrir það er þegar hafin. Vanity Fair birti í dag myndir af nokkrum af aðalpersónum þáttanna og sagði frá hluta þess sem þættirnir eiga að fjalla um.

Tökur eru hafnar við Mývatn á nýrri mynd Hafsteins
Tökur eru hafnar á nýrri mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar sem er að gera sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd á ensku. Hafsteinn er meðal annars þekktur fyrir myndirnar Undir trénu og París norðursins.

Leigubílstjóri ætlaði sér að keyra tökulið Verbúðarinnar niður
Tíu ár eru síðan hugmyndin að þáttaröðinni Verbúðinni kviknaði. Hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson segjast ánægð með útkomuna þrátt fyrir að handritið hafi tekið umskiptum nokkrum sinnum í ferlinu og áskoranirnar hafi verið nokkrar.

Dýrið ekki tilnefnt til Óskarsverðlaunanna
Íslenska kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hlaut ekki Óskarstilnefningu í flokki erlendra mynda.

Tilnefningar til Óskarsins hafa verið kynntar en Dýrið komst ekki áfram
Í dag verða tilnefningar til Óskarsins árið 2022 kynntar í beinni útsendingu á YouTube-síðu Óskarsverðlaunanna. Í ár eru það Tracee Ellis Ross og Leslie Jordan sem afhjúpa hverjir eiga möguleika á því að vinna verðlaunin þetta árið.

Telur framtíð Nágranna ekki í hættu
Fyrrverandi stjórnandi hjá BBC, ITV og Channel 4 í Bretlandi hefur ekki trú á því að framtíð áströlsku sápuóperunnar Nágranna sé í hættu.