Kvikmyndin er lögfræðidrama um rannsókn á máli vinsæls rithöfundar, sem leikinn er af Söndru Hüller, sem grunuð er um að hafa myrt eiginmann sinn.
Triet tók við verðlaunastyttunni af goðsögninni Jane Fonda, sem fagnaði því í ræðu sinni hversu margar konur áttu kvikmynd sem barðist um verðlaunin að þessu sinni, en þær voru sjö talsins.
Triet varð þriðja konan á eftir þeim Jane Campion, sem leikstýrði Píanóinu árið 1993 og Juliu Ducournau, sem leikstýrði Titane fyrir tveimur árum, til þess að hreppa Gullpálmann.
Aðrir sigurvegarar kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2023:
- Grand Prix: The Zone Of Interest í leikstjórn Jonathans Glazer
- Besti leikstjóri: Tran Anh Hung fyrir The Pot-Au-Feu
- Besta handrit: Monster eftir Yuji Sakamoto
- Besta leikkona í aðalhlutverki: Merve Dizdar fyrir About Dry Grasses
- Besti leikari í aðalhlutverki: Kōji Yakusho fyrir Perfect Days
- Camera d’Or (besta fyrsta kvikmynd leikstjóra): Inside the Yellow Cocoon Shell í leikstjórn Thien An Pham
- Gullpálmi stuttmynda: 27 í leikstjórn Flóra Anna Buda
- Hinsegin pálminn (verðlaun fyrir kvikmyndir um málefni hinsegin fólks: Monster