Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Stefna Trump vegna sölu á sam­félags­miðlafærslum hans

Fjölmiðill og félagasamtök sem berjast fyrir fjölmiðlafrelsi hafa stefnt Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna sölu hans á forgangi að samfélagsmiðlafærslum hans. Þau halda því fram að salan sé spillt og stangist á við stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Leavitt hættir hjá Trump

Karoline Leavitt, talskona Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, mun láta af störfum í lok mánaðarins. Hún er 28 ára gömul og því yngsta talskona Hvíta hússins í sögu Bandaríkjanna, og hefur verið náinn ráðgjafi Trumps. Leavitt mun áfram ráðleggja Trump og Repúblikönum hvað varðar MAGA-hreyfingu forsetans.

Erlent
Fréttamynd

ICE-liðar fá rafmagnshanska

Starfsmenn heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna eiga á næstunni að byrja að bera hanska sem geta verið notaðir til að gefa fólki raflost. Ráðuneytið ætlar að verja tíu til tuttugu milljónum dala í hanska þessa fyrir útsendara Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) sem hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir harðræði gegn fólki á undanförnum mánuðum.

Erlent
Fréttamynd

OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana

OnlyFans-stjarnan Courtney Clenney hefur játað að hafa stungið kærasta sinn Christian Toby Obumseli árið 2022, en hann lést af sárum sínum. Dómur í máli hennar var kveðinn upp síðastliðinn mánudag og var hún dæmd í ellefu ára fangelsi, en þar af verða fimm ár á skilorði.

Lífið
Fréttamynd

Ocasio-Cortez á lausu

Alexandria Ocasio-Cortez, fulltrúa­deildar­þingmaður Demókrata­flokksins, ku vera einhleyp eftir að það slitnaði upp úr sambandi hennar við unnustann Riley Roberts. Parið hafði verið saman í rúman áratug þegar þau trúlofuðu sig árið 2022 en nú hefur komið í ljós að leiðir skildu fyrir um tveimur árum síðan.

Lífið
Fréttamynd

Leita svara við aldargamalli ráð­gátu sólarinnar

Vísindamenn á vegum geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, eru staddir hér á landi til að nýta almyrkvann á morgun með það að markmiði að rannsaka hvers vegna ysti lofthjúpur sólarinnar er margfalt heitari en yfirborð hennar. Fjórar myndavélar um borð í rannsóknarþotu NASA munu mynda kórónu sólarinnar úr fimmtán kílómetra hæð.

Innlent
Fréttamynd

Pútín vildi ekkert fyrir Banda­ríkja­mann í rúss­nesku fangelsi

Yfirvöld í Rússlandi hafa sleppt bandarískum uppgjafarhermanni úr fangelsi. Robert Gilman hafði setið inni í meira en fjögur ár á grunni umdeildra ákæra og við slæmar aðstæður. Donald Trump segir Vladimír Pútín hafa samþykkt að sleppa honum í mannúðarskyni en Gilman er sagður vera mjög heilsulítill.

Erlent
Fréttamynd

Vill að­skilja bólu­setningar gegn mis­lingum, hettu­sótt og rauðum hundum

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun sem felur meðal annars í sér að bólusetningum barna verður fækkað úr átján í ellefu. Tilskipunin er í takt við fyrirhugaðar breytingar heilbrigðisráðherrans Robert F. Kennedy Jr. sem tilkynnt var um fyrr á árinu en þær hafa verið stöðvaðar af dómstólum.

Erlent
Fréttamynd

Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“

Hollywood-stjarnan Brad Pitt segist byrjaður að drekka áfengi á ný eftir að hafa verið edrú síðustu sjö ár. Hann nýtti sér tólf spora kerfið í kjölfar skilnaðar við leikkonuna Angelinu Jolie fyrir um tíu árum og hefur reglulega talað opinberlega um edrúmennskuna. Hann reyni að gæta hófs í drykkjunni.

Lífið
Fréttamynd

Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One

Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa flogið frá Tyrklandi til Bretlands um borð í „gömlu“ Air Force One forsetaflugvélinni, eins og áður hafði verið greint frá. Hann virðist þess í stað hafa verið fluttur úr þeirri vél í aðra vél í fylgdarflota Air Force One, án þess að aðrir væru látnir vita.

Erlent
Fréttamynd

Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaða­bóta­kröfu

Donald Trump krafðist þess í dag að klerkastjórnin í Íran greiddi skaðabætur vegna þeirra sem hann sagði ríkisstjórnina hafa banað í stríðum, árásum og mótmælum í gegnum árin. Þá ættu þeir einnig að greiða skaðabætur til íbúa Líbanon, Sýrlands, Jemen og á Gasa. Þetta sagði Trump í kjölfar þess að ráðamenn í Íran fóru fram á skaðabætur vegna árása á Íran og að refsiaðgerðir yrðu felldar niður.

Erlent
Fréttamynd

Billy Long kominn á klakann

Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, tók formlega við embætti í dag þegar hann afhenti Höllu Tómasdóttur, forseta, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Long vakti mikla athygli hér á landi þegar hann grínaðist í fyrra með það að ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, sem hann baðst svo afsökunar á.

Innlent
Fréttamynd

Ódys­seifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo

Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst?

Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst.

Innlent
Fréttamynd

Ben Jones er látinn

Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ætlar að láta frysta egg sín og úti­lokar ekki forsetaframboð

Alexandra Ocasio-Cortez, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá New York, greindi frá því um helgina að hún hyggst láta frysta egg sín. Hún segist hafa ákveðið að greina frá ákvörðuninni til að opna umræðuna, þrátt fyrir að það feli í sér ákveðna pólitíska áhættu.

Erlent
Fréttamynd

Netanjahú hafnar friðar­á­ætlun Trumps

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur hafnað að taka þátt í fimmtán punkta áætlun Bandaríkjaforseta um frið á Gasa. Friðarráð Trumps greindi frá því í síðustu viku að þegar hefði náðst samkomulag við Hamas-samtökin um afvopnun á svæðinu. 

Erlent
Fréttamynd

Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Banda­ríkjunum

Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013.

Innlent
Fréttamynd

Banda­ríkin

Bandaríkjamenn eru flestir komnir af innflytjendum, fólki sem fluttist þangað að ætla má í talsverðu trássi við heimamenn. - Það er kannski í lagi að minnast á að þeir innfluttu stráfelldu heimamenn og rændu þá landi þeirra.

Skoðun