Erlent

Christiane Amanpour mun kveðja CNN

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Amanpour ásamt Angelu Merkel fyrrverandi kanslara Þýskalands á góðri stundu árið 2019.
Amanpour ásamt Angelu Merkel fyrrverandi kanslara Þýskalands á góðri stundu árið 2019. EPA/HAYOUNG JEON

Einn frægasti fréttamaður veraldar Christiane Amanpour hefur tilkynnt að hún muni kveðja bandarísku sjónvarpsstöðina CNN á næsta ári. Hún tilkynnti þetta í sérstöku ávarpi sem hún birti á samfélagsmiðlum en Amanpour hefur verið á skjánum í 43 ár.

Hin 68 ára gamla Amanpour er margverðlaunaður blaðamaður sem flutt hefur fréttir af helstu átakasvæðum víða um heim og hefur hún starfað sem aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum. Hún hóf störf hjá CNN árið 1983 og stýrt eigin viðtalsþætti á hverju kvöldi síðan árið 2009. Örstutt er síðan fréttakonan heimsótti Ísland en hún sótti friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í síðustu viku.

„Eftir margra mánaða umhugsun og nokkrar svefnlausar nætur hef ég ákveðið að skilja við CNN, félaga minn í 43 frábær ár!“ segir fréttakonan meðal annars í ávarpi sínu. Hún segist hlakka til þess að láta að sér kveða í áhugaverðum nýjum verkefnum í framtíðinni en tekur fram að hún muni halda áfram að halda með CNN og sögu þess þar sem sjálfstæð blaðamennska sé lykilþráður. Hún hvatti fylgjendur sína til þess að vera ávallt sannsögul en ekki hlutlaus.

Variety hefur eftir Mark Thompson stjórnarformanni CNN að kollegar Amanpour muni sjá á eftir henni. Hann hafi rætt málið við Amanpour undanfarna mánuði og þau loks komist að samkomulagi um að þetta væri rétti tímapunktur fyrir breytngar.

Variety lætur þess getið í umfjöllun sinni um brotthvarf Amanpour að það komi á sama tíma og CNN fari undir nýtt eignarhald bandaríska fyrirtækisins Skydance. Amanpour hafi lýst því yfir í maí að hún hefði áhyggjur af eignarhaldi Skydance á sjónvarpsstöðinni CBS News.

„Ég mun hætta með daglega þætti mína á CNN og PBS í lok þessa árs, en halda áfram með vikulegan þátt á CNN fram í maí og vinna að hnökralausum umskiptum fram í júní,“ segir Amanpour. Fram kemur í umfjölluninni að hún muni áfram vinna að sjálfstæðu hlaðvarpi sínu „Ex-Files“, sem hún stýrir ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Jamie Rubin, fyrrverandi embættismanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×