Í fyrsta sinn sem landsdómur yrði kallaður saman Ef landsdómur verður kallaður saman vegna þeirra niðurstaðna sem finna má í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis verður það í fyrsta sinn sem slikt gerist í sögu lýðveldisins, segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Innlent 12. apríl 2010 16:38
Sökin ekki hjá Fjármálaeftirlitinu „Meginatriðið er það að bankahrunið er á ábyrgð bankamanna sjálfra og þeim sem stjórnuðu þeim," segir Jón Magnússon lögmaður og faðir Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Hann tjáir sig ekki um ábyrgð sonar síns. Innlent 12. apríl 2010 16:37
Sigurjón Þ. vildi fá nýja eigendur að „öllu draslinu" Sigurjón Þ. Árnason fyrrum bankastjóri Landsbankans vildi fá nýja eigendur að „öllu draslinu" þ.e. Landsbankanum um mitt ár 2008. Ræddi hann meðal annars þennan möguleika við Kjartan Gunnarsson varaformann stjórnar bankans. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 16:36
Það þarf að styrkja siðferðisvitund stjórnmálamanna Leita þarf leiða til þess að styrkja siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnsiðum. Innlent 12. apríl 2010 16:34
Birgitta: Landráð hafa verið framin hér á landi Framin hafa veirð landráð hérlendis, sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, á fundi Alþingis í dag. Hún sagði að það yrði að kalla hlutina réttum nöfnum. Innlent 12. apríl 2010 16:12
Forsetinn flaug á vegum allra helstu útrásavíkinganna Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flaug ítrekað með útrásavíkingum en í skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem snýr að siðferði og starfsháttum kemur fram að Ólafur Ragnar flaug með í flugvélum í eigu eða leigu Kaupþings, Actavis, Glitnis, Novator, FL Group og Eimskipafélags Íslands. Innlent 12. apríl 2010 16:12
Jón Baldvin: Enginn axlar ábyrgð "Þessi skýrsla segir okkur fátt nýtt um okkar samfélag sem við vissum ekki fyrir," segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi forsætisráðherra, spurður um fyrstu viðbrögð sín við rannsóknarskýrslu Alþingis. Innlent 12. apríl 2010 16:01
Fjárfesting í Baugi jókst eftir kaup félagsins í Glitni Stjórnendur Sjóðs 9 hjá Glitni juku kaup í skuldabréfum Baugs eftir að félagið varð stór hluthafi í bankanum í apríl 2007. Sjóðurinn átti mest 13,5 milljarða króna í nóvember 2007 og nam 9,7 prósentum af heildareignum sjóðsins. Sjóður 1 hjá Glitni átti sömuleiðis 3,3 milljarða króna í bréfum félagsins. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 16:00
Formaður Framsóknarflokksins: Sveigðum of langt til hægri Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, segir að allir flokkar verði að líta í eigin barm þegar kemur að bankahruninu og að enginn flokkur hafi farið í eins afgerandi endurnýjun og Framsóknarflokkurinn hafi ráðist í. Þetta sagði Sigmundur í umræðum um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis á þingfundi í dag. Innlent 12. apríl 2010 15:59
Steingrímur líkti þensluskeiðinu við Tyrkjaránið Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra líkti stöðu mála á Íslandi í aðdraganda að bankahruninu við Tyrkjaránið 1627 í ræðu á Alþingi í dag. Rán skyldi það kallast þegar að gróðrahyggjan næði yfirhöndinni með óhóflegri skuldsetningu og þeim afleiðingum sem Íslendingar þurftu síðar að sætta sig við. Innlent 12. apríl 2010 15:49
Ráðning Lárusar Welding hafði áhrif á Glitni Rannsóknarnefnd Alþingis dregur þá ályktun að með láni til Lárusar Welding, sem veitt var til að fresta 300 milljóna króna eingreiðslu hans samkvæmt samningi, hafi stjórn bankans haft bein áhrif á uppgjör bankans á fyrsta ársfjórðungi 2008. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:40
Bjarni Ben: Skýrslan leggur ríkar skyldur á herðar þingmanna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir brýnt að stjórnmálamenn dragi lærdóm af niðurstöðum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Skýrslan leggi ríkar skyldur á herðar þingmanna og það varði miklu að stjórnmálamenn rísi undir þeirri ábyrgð sem þjóðin gerir kröfu um. Sjálfstæðisflokkurinn væri tilbúinn til þessa að vinna að nauðsynlegum úrbótum. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Bjarna á Alþingi í dag. Innlent 12. apríl 2010 15:27
Óskiljanlegt að opnað var Icesave útibú í Amsterdam Rannsóknarnefnd Alþingis telur nær óskiljanlegt að Landsbankinn skyldi velja að hefja töku Icesave innlána í útibúi í Amsterdam í stað þess að gera það í hollensku dótturfélagi. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:26
Jóhanna: Virðingavert að Björgvin hafi brugðist við skýrslunni Það er virðingavert að Björgvin G. Sigurðsson hafi brugðist við og tekið sína ákvörðun, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar umræður um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hófust klukkan þrjú í dag. Björgvin er einn af sjö sem Rannsóknarnefndin telur að hafi sýnt vanrækslu í starfi. Innlent 12. apríl 2010 15:26
Darling spurði hvert hann ætti að senda Icesave-reikninginn Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, sagði við Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskitparáðherra og Jón Sigurðssonar fyrrverandi stjórnarformanns Fjármálaeftirlitsins, að Bretar myndu ábyrgjast innistæður Icesave í Bretlandi að fullu. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:24
Davíð: Bjargaði vísakortum landsmanna Davíð Oddsson segir í rannsóknarskýrslunni að Seðlabankinn hafi ábyrgst öll vísakort landsmanna - án þess að fyrir því væri nokkur lagaheimild. Sem betur fer hafi fólk ekki áttað sig því að bankinn væri að fara á svig við lög. Innlent 12. apríl 2010 15:24
Földu uppgjör Glitnis við Bjarna Ármannsson Stjórnendur Glitnis vildu ekki að launauppgjör við Bjarna Ármannsson, fyrrverandi forstjóra bankans, yrði gert opinbert og ákváðu því að birta ekki 270 milljóna króna vanmetna skuldbindingu gagnvart honum í ársuppgjöri bankans. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:20
Stjórnvöld gerðu ekkert til að hindra Icesaveklúðrið Rannsóknarnefnd Alþingis segir að enda þótt íslensk stjórnvöld hefðu í upphafi árs 2008 lagt að stjórnendum Landsbankans að flytja Icesave reikningana yfir í breskt dótturfélag var ekki gripið til neinna þeirra stjórntækja eða úrræða sem stjórnvöld réðu yfir til að fylgja málinu eftir. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:08
Líkti íslenskum viðskiptamönnum við holdsveikissjúklinga Í síðari hluta júní 2008 var haldinn ársfundur Alþjóðagreiðslubankans í Basel en þar ræddi seðlabankastjóri Lúxemborgar, Yves Mersch, við Ingimund Friðriksson, einn þriggja seðlabankastjóra á Íslandi. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 15:00
Björgvin segir af sér formennsku í þingflokknum Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, ætlar að segja af sér formennsku í þingflokki Samfylkingarinnar. Björgvin var einn þeirra sjö sem Rannsóknarnefnd Alþingis telur að hafi gerst sekur um vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins. Innlent 12. apríl 2010 14:58
Mótmælendur fyrir framan Alþingi Um þrjátíu manns eru samankomnir á Austurvelli til þess að mótmæla. Rannsóknarskýrsla Alþingis kom út í morgun en lögreglan hafði áhyggjur af annarri mótmælendabylgju. Innlent 12. apríl 2010 14:46
Skætingur einkenndi viðbrögð Íslendinga við gagnrýni á hagkerfið Það viðmót sem birtist í orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins við gagnrýni sérfræðings hjá Merrill Lynch á íslensk stjórnvöld hafi verið lýsandi fyrir viðbrögð íslenskra stjórnvalda og bankanna við gagnrýni árið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Innlent 12. apríl 2010 14:35
Lárus hreinsaði út af einkareikningi rétt eftir viðtalið í Silfri Egils Lárus Welding, þáverandi bankastjóri Glitnis, færði fjármuni til útlanda, eða réttara sagt hreinsaði út af reikningi sínum um 318 milljónir, rétt eftir að hann hafði lýst því yfir í frægu viðtali í Silfri Egils að bankinn hans væri traustur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem var birt fyrr í dag. Innlent 12. apríl 2010 14:34
Seðlabankinn gleymdi að framlengja lánalínu í Basel Seðlabanki Íslands náði samningum um nýja lánalínu við Alþjóðagreiðslubankann í Basel í lok mars 2008. Hún nam 500 milljónum Bandaríkjadala. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 14:32
Maraþonlestur í Borgarleikhúsinu Óvenjulegur gjörningur á sér nú stað í Borgarleikhúsinu þar sem rannsóknarskýrsla Alþingis er lesin upp í heild sinni - orð fyrir orð. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá lestrinum á vef Borgarleikhússins. Innlent 12. apríl 2010 14:30
Engin staðfesting á beinum áhrifum eiganda Í öllum fjölmiðlum voru jákvæðar fréttir um fjármálafyrirtæki fleiri en neikvæðar. Af einstökum fyrirtækjum var umfjöllun almennt jákvæðust um Landsbankann. Innlent 12. apríl 2010 14:29
Viðskiptablaðið jákvæðast í garð Landsbankans Allir fjölmiðlar landsins voru nokkuð jákvæðir í umfjöllun sinni um banka og fjármálafyrirtæki á árabilinu 2006 til 2008. Sumir voru þó jákvæðari en aðrir. Á móti hverri neikvæðri frétt Viðskiptablaðsins um Landsbankans birtust 55 neikvæðar. Viðskiptablaðið var jákvæðast í garð fjármálafyrirtækja en DV neikvæðast. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 14:16
Skýrslan kveikir enga elda Söngvaskáldið Hörður Torfason segir lítinn hita í fólki vegna rannsóknarskýrslunnar. Sjálfur ætlar hann í ræktina í dag auk þess sem hann sinnir frágangi vegna fundarhaldanna frægu á Austurvelli. Innlent 12. apríl 2010 14:16
Endurskoðun úr takti við við vöxt bankanna Leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins (FME) á innri endurskoðuni fjármálafyrirtækja komu allt of seint fram, þótt þær hefðu verið til bóta, að mati Rannsóknarnefndar Alþingis. Tilmælin voru gefin út 24. September 2008, tæpum mánuði fyrir hrun bankanna og níu dögum eftir fall Lehman Brothers bankans í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 14:15
Óvíst um stöðu Björgvins Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er sá eini sem Rannsóknarnefnd Alþingis telur að hafi gerst sekur um vanrækslu í starfi sem enn gegnir opinberu trúnaðarstarfi. Innlent 12. apríl 2010 14:12