Ellefu hafa kært talningu í Norðvesturkjördæmi Alls hafa ellefu manns kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Sex frambjóðendur og fimm almennir borgarar. Fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd segir að óskað verði eftir gögnum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag. Innlent 13. október 2021 12:00
Brotthvarf Birgis gæti kostað Miðflokkinn um fimm milljónir Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins myndi kosta flokkinn um fimm milljónir króna á kjörtímabilinu, ef miðað er við greiðslu sem hver þingflokkur fékk úr ríkissjóði fyrir hvern þingmann á síðasta kjörtímabili. Innlent 13. október 2021 09:00
Umkringdur rokkstjörnum á kynningu sem líktist fyrsta skóladeginum Nýir Alþingismenn sóttu kynningarfund um þingstörf í dag. Þingmennirnir segja kynninguna minna á fyrsta skóladaginn og segist einn þeirra umkringdur rokkstjörnum. Innlent 12. október 2021 20:00
Tæplega 60 prósent vilja Katrínu áfram sem forsætisráðherra Tæp 58% kjósenda vilja að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, verði áfram forsætisráðherra Íslands. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu. Innlent 12. október 2021 13:33
Jakob Frímann og Tommi á Búllunni mættir í þingsal Flokksbræðurnir Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, settust að sjálfsögðu hlið við hlið þegar þeir tóku sér sæti í þingsal í fyrsta skipti í dag. Innlent 12. október 2021 10:21
Sjálfstæðisflokkurinn bauð Ernu velkomna í flokkinn á laugardag Sjálfstæðisflokkurinn tilkynnti á laugardag að Erna Bjarnadóttir, varaþingmaður Birgis Þórarinssonar og Miðflokkskona, hafi ákveðið að fylgja Birgi yfir í Sjálfstæðisflokkinn og starfa innan þingflokks hans. Erna tilkynnti hins vegar í morgun að hún muni ekki fylgja Birgi eftir, heldur halda til í Miðflokknum. Innlent 12. október 2021 10:01
Erna fylgir Birgi ekki í Sjálfstæðisflokkinn Erna Bjarnadóttir ætlar ekki að fylgja Birgi Þórarinssyni og verða varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Birgir gaf í skyn yfirlýsingu um helgina að Erna ætlaði að fylgja honum úr Miðflokknum til Sjálfstæðisflokksins Innlent 12. október 2021 07:49
Útilokar að ágallarnir leiði til alþingiskosninga á landsvísu Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni. Innlent 11. október 2021 20:20
Völd leiðtoga yfir þingmönnum myndu aukast ef þingsæti fylgdu flokkum Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ýmis rök hníga að því að þingsæti fylgi þingmönnum frekar en þingflokkum. Að öðrum kosti kynni agi forystumanna flokkanna yfir þingmönnum sínum að verða slíkur að enginn þingmaður þyrði öðru en að fylgja flokkslínum til hins ítrasta, af ótta við að missa þingsæti sitt. Innlent 11. október 2021 19:47
Óinnsigluð kjörgögn leiða ekki sjálfkrafa til ógildingar kosninga Dósent við lagadeild Háskóla Íslands segir að það eitt að innsigla ekki kjörgögn leiði ekki sjálfkrafa til ógildingar kosninga. Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi rannsaki sjálft kjörgögnin úr Norðvesturkjördæmi. Innlent 11. október 2021 14:19
Bein útsending: Fyrsti opni fundur undirbúningskjörbréfanefndar Fyrsti opni fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa verður haldinn í dag og hefst hann klukkan 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og verður gestur fundarins Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Innlent 11. október 2021 10:01
Undirbúningskjörnefnd kemur saman á opnum fundi í dag Undirbúningskjörnefnd kemur saman á fundi í dag til að fara yfir kærur sem borist hafa vegna framkvæmdar þingkosninganna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 11. október 2021 06:38
Aðdragandi flokkaskiptanna „afskræming á lýðræðinu“ Páll Magnússon, nýhættur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðdraganda að inngöngu Birgis Þórarinssonar, fyrrverandi þingmanns Miðflokksins, vera „afskræmingu á lýðræðinu.“ Innlent 10. október 2021 20:24
Líst ekkert sérlega vel á að kjósa aftur Fólk er almennt ekki sérlega spennt fyrir uppkosningu þrátt fyrir annmarka á talningu í Norðvesturkjördæmi. Framkvæmdin þar hefur laskað traust almennings á kosningum ef marka má viðmælendur fréttastofu. Innlent 10. október 2021 08:45
Sjálfstæðisflokkurinn ekki að ganga í Birgi Þórarinsson Skiptar skoðanir eru á ákvörðun Birgis Þórarinssonar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn svo skömmu eftir kosningar. Bjarni Benediktsson formaður flokksins hefur boðið Birgi velkominn í þingflokkinn, sem er orðinn sá langstærsti á þingi með sautján þingmenn. Innlent 10. október 2021 08:32
Formaður Heimdallar gagnrýnir vistaskipti Birgis Veronika Steinunn Magnúsdóttir, formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að vistaskipti Birgis Þórarinssonar þingmanns úr Miðflokki yfir í Sjálfstæðisflokkinn geri verulega lítið úr prófkjörsbaráttu síðarnefnda flokksins, sem og vilja kjósenda hans. Innlent 9. október 2021 21:38
Segir Klaustursskýringar Birgis ekki halda vatni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir vistaskipti þingmannsins Birgis Þórarinssonar yfir til Sjálfstæðisflokksins vera vonbrigði. Fyrst og fremst telji hann ákvörðun Birgis ranga gagnvart því fólki sem unnið hafi að því að koma Birgi á þing í sínu kjördæmi. Hann telur skýringar Birgis um að vistaskiptin tengist Klaustursmálinu ekki halda vatni. Innlent 9. október 2021 18:58
Stjórn Miðflokksins: Áfall fyrir hóp „sem borið hefur Birgi á örmum sér“ Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins er „fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi“. Innlent 9. október 2021 16:59
Bjarni Ben býður Birgi velkominn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, býður Birgi Þórarinsson velkominn í flokkinn, á Facebooksíðu sinni nú rétt í þessu. Innlent 9. október 2021 15:28
Sakar Birgi Þórarinsson um sjálfhverfu Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Sveitarfélaginu Árborg, gagnrýnir Birgi Þórarinsson harðlega fyrir ákvörðun sína um að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 9. október 2021 13:35
„Það skiptir máli hvaða manneskjur setjast á þing“ Formaður Stjórnarskrárfélagsins hefur lagt fram kæru vegna Alþingiskosninganna og kallar eftir að þjóðin öll gangi að kjörstöðum að nýju. Vistaskipti Birgis Þórarinssonar, þingmanns í Suðurkjördæmi, sýni svart á hvítu hve miklu máli skipti hvaða fólk hafi komist inn á þing. Innlent 9. október 2021 13:01
Birgir vill „að sjálfsögðu“ að Sigmundur og Bergþór komi líka yfir Birgir Þórarinsson verður þingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu eftir að hafa boðið fram sem oddviti Miðflokksins. Hann segist ekki hafa lagt á ráðin um vistaskiptin fyrir kosningar. Innlent 9. október 2021 12:08
Trúboðinn sem iðkar ekki trúna sem hann boðar Á síðum Morgunblaðsins í dag má sjá fréttir af því að Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi hafi yfirgefið flokkinn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Í minningargrein sem þingmaðurinn svo birtir í sama blaði rekur hann ástæður brotthvarfsins frá sínum klaustursdyrum séð. Skoðun 9. október 2021 12:01
Netverjar bregðast við vistaskiptum Birgis: „Það eru þrjú ár síðan Klaustursmálið kom upp?“ Netverjar hafa ekki setið á sér frá því að fregnir af vistaskiptum þingmannsins Birgis Þórarinssonar bárust í morgun. Birgir, sem er þingmaður í Suðurkjördæmi, hefur sagt skilið við Miðflokkinn og gengið til liðs við Sjálfstæðismenn. Innlent 9. október 2021 10:22
Birgir Þórarinsson gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn vegna Klaustursmálsins Birgir Þórarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa verið þingmaður fyrir Miðflokkinn í fjögur ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú því sautján þingmenn en Miðflokkurinn aðeins tvo. Innlent 9. október 2021 08:10
Átta hafa kært framkvæmd talningar Allir frambjóðendurnir sem duttu út sem jöfnunarþingmenn eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi, auk tveggja borgara, hafa kært framkvæmdina. Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir að ákveðið hafi verið að hafa fundi hennar opna. Innlent 8. október 2021 20:19
Tæpur fjórðungur vantreystir niðurstöðum kosninganna Tæpur fjórðungur landsmanna treystir niðurstöðum nýafstaðinna Alþingiskosninga illa. Traustið er komið niður í það sem þekkist í nágrannalöndum eftir að hafa sögulega séð verið mjög mikið hér á landi. Innlent 8. október 2021 11:41
Búið að uppfæra þingmannalistann á alþingi.is til samræmis við úrslitin eftir endurtalningu Búið er að uppfæra þingmannalistann á Alþingisvefnum til samræmis við úrslit kosninganna. Athygli vekur að það hefur verið gert í samræmi við niðurstöður seinni talningarinnar í Norðvesturkjördæmi, þrátt fyrir að hún hafi verið kærð. Innlent 8. október 2021 10:11
Undirbúningskjörbréfanefnd þarf góðan tíma til að meta kosningaúrslitin Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis telur nefndina þurfa nokkrar vikur til að ljúka vinnu sinni vegna kæra sem borist hafa í tengslum við meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Innlent 6. október 2021 19:31
Bætist í hóp kærenda Alþingiskosninganna Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, kærði í dag endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún hefði náð sæti sem jöfnunarþingmaður hefði niðurstaða upphaflegrar talningar staðið. Innlent 6. október 2021 17:42