Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar 20. október 2026 21:32 Innleiðing nýs einkunnakerfis snýst um meira en að skipta út bókstöfum fyrir tölur. Hún krefst algjörrar samræmingar á stefnu stjórnvalda og framkvæmd í skólastofunni. Vorið 2027 verður tekinn upp nýr talnakvarði (4–10) við útskrift úr grunnskólum. Markmiðið er að gera lokaeinkunnir gagnsærri og samræmdari á milli skóla. Þótt það sé fyllilega réttmætt að vilja tryggja jafnræði og samræmingu á milli skóla, þá réttlæta góð áform ekki óljósa útfærslu. Innleiðingin ber þess skýr merki að undirbúning og skýr verkfæri vanti algjörlega. Það eru ekki vönduð vinnubrögð að keyra nýtt kerfi yfir skólana á einu skólaári án þess að kennarar fái til þess svigrúm, tíma og samræmd tæki. Bókstafir klæddir í tölur Breytingarnar eiga að auka gagnsæi en samt vaknar sú spurning hvort nýju tölurnar séu einfaldlega gömlu bókstafirnir klæddir í ný föt. Gæði námsmats breytast ekki við það eitt að skipta bókstöfum út fyrir tölur. Nýja fyrirkomulagið skapar strax óþarfa flækju í framkvæmd. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati mega skólar nota tölurnar 1 til 10 yfir veturinn, en við útskrift verða lokaeinkunnir að vera á hæfnikvarðanum 4 til 10. Það ruglar bæði nemendur og kennara þegar hæfnimati og prósentum er hrært saman. Hugmyndin um að láta lokaeinkunnir byrja á fjórum á sér hins vegar faglegar fyrirmyndir á Norðurlöndunum en henni er ætlað að vernda sjálfstraust nemenda og efla námshvatningu. Þar er rík hefð fyrir því að skilja neðstu tölurnar eftir utan eiginlegs kvarða svo enginn fái falleinkunn. Í íslenskum framhaldsskólum gildir hins vegar áfram kvarðinn 0–10, þar sem lágmarkseinkunn til að standast er 5. Þótt norræna fyrirmyndin eigi rétt á sér er ljóst að þessi útfærsla mun skapa óþarft flækjustig. Þetta ósamræmi sýnir að kerfin tala hreinlega ekki saman. Samkvæmt lögum á námsmat að vera áreiðanlegt en það veldur ruglingi og eykur hættu á misræmi að vinna með tvo mismunandi kvarða á sama skólaárinu. Flókin og tvöföld einkunnakerfi auka skekkjur og valda misskilningi hjá bæði nemendum og foreldrum. Í nýja útskriftarkvarðanum (4–10) sýnir talan 7 að hæfniviðmiðum sé náð að fullu, en á efstu þrepunum í kvarðanum (8–10) breytast kröfurnar verulega. Þar þarf nemandinn að sýna fram á framúrskarandi hæfni, dýpri skilning og getu til að beita þekkingunni af miklu sjálfstæði. Þessi efstu þrep krefjast því getu umfram matsviðmið viðkomandi árgangs. Einkunnir þorra nemenda verða á bilinu 5–7 enda er það eðlilegt miðað við þær kröfur sem gera á til nemenda í 10. bekk. Flýtiverk og óvissa Með hinu nýja fyrirkomulagi er hætta á að unnið verði gegn því faglega starfi sem fram hefur farið undanfarin fimmtán ár, þar sem flestir skólar hafa verið að færast yfir í hæfnimiðað nám og og nota leiðsagnarmat. Í stað þess að halda þeirri þróun áfram markar nýja kerfið visst afturhvarf. Í stað þess að einbeita sér að raunverulegum skilningi og þroska er hætta á að nemendur og foreldrar vilji elta tölur og fá útreiknuð meðaltöl. Til þess að námsmat virki sem skyldi þarf það hins vegar að byggja á stöðugri og uppbyggilegri endurgjöf. Matið á aldrei að koma á óvart og eldri mistök eiga ekki að draga niður lokaeinkunn ef nemandinn sýnir raunverulegar framfarir á námstímanum. Það skapar líka óþarfa óvissu þegar yfirvöld flýta breytingum áður en tölvukerfi skólanna eru tilbúin. Framhaldsskólastjórnendur óttast réttilega að ósamræmi kerfanna valdi óöryggi við innritun en flutningur gagna á milli skólastiga verður að vera hnökralaus til að tryggja jafnræði nemenda. Besta dæmið um flýtiverk er krafa yfirvalda um nýjar skólanámskrár liggi fyrir 10. janúar 2027 — áður en samræmd viðmið og opinberar leiðbeiningar liggja fyrir frá ráðuneytinu. Þegar ætlast er til þess að hver og einn vinnustaður leysi málin upp á eigin spýtur eykst skriffinnska og óvissa innan skólanna. Þessi stutti frestur sýnir glögglega hvers vegna skólasamfélagið kallar eftir stöðugleika og vinnufriði. Kennarar þurfa svigrúm til að sinna sínu fagi fremur en að standa í kerfisbreytingum á of skömmum tíma. Höfundur er fyrrverandi skólastjórnandi og námsmatsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun