Skoðun

Ekki orð um heimsins lengstu bið­lista…

Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar

Í Silfri mánudagsins var farið víða um stöðu heilbrigðismála, en ekki einu orði vikið að heimsins lengstu biðlistum barna og fullorðinna þegar kemur að ADHD greiningum.

Tölur umboðsmanns barna um biðlista staðfesta að staðan heldur áfram að versna. Í nýlegri samantekt embættisins kom fram að hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2705 börn eftir greiningu og hafa 2591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Frá því í febrúar hafa 252 börn bæst á listann. Börnum sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði hefur fjölgað um 691. Hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð eru 744 börn á biðlista, 697 þeirra hafa verið á lista í yfir þrjá mánuði.

ADHD samtökin hafa lengi bent á aukna ásókn í greiningar vegna aukinnar meðvitundar og þekkingar á snemmtækri greiningu og íhlutun. Þá hafi samtökin einnig bent á að afkastageta stjórnvalda sé eins og lítil trilla, en í raun það þurfi til verksins skuttogara.

Jafnvel þó hluti vandans kunni að snúast um manneklu, þá kjarnast hann á endanum um að aukið fjármagn þurfi til að auka afkastagetu. Þessi staða er fjarri séð ný af nálinni, heldur verið leyft að drabbast í áratugi.

Löngu tímabært er að stjórnvöld stígi inn með öflugum hætti og geri skurk til úrbóta. Ekkert hálfkák, heldur markvissar aðgerðir sem skili árangri.

Hvað varðar Geðheilsumiðstöð barna [GMB] er löngu vitað að mörg börn á biðlista þarfnist ítarlegri og tímafrekri greiningarvinnu, en um leið stór hluti sem að öllum líkindum glímir eingöngu við ADHD. Af og til hefur einskiptis fjármagni verið veitt til að starfsmenn GMB geti vísað hluta þess hóps til sjálfstætt starfandi barnalækna, sem hafi menntun og reynslu til að leysa hratt úr vanda þeirra barna. Lausn sem hefur reynst vel og mætti að ósekju auka stuðning við. Jafnvel mætti íhuga að útvíkka þá lausn til að dekka sjálfstætt starfandi aðila á borð við sálfræðistofuna Sól, sem er ekki í ósvipaðri stöðu og GMB.

Til að mæta þörf fullorðinna einstaklinga, sem að óbreyttu mörg hver horfa upp á áratug ef ekki lengri bið, þarf einfaldlega að setja aukið fjármagn í rekstur ADHD teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kostnaðarmatið liggur að mestu fyrir og ráðamenn einungis eftir að bretta upp ermar. Eins þarf framkvæmdavaldið að fylgja eftir ákvörðun Alþingis varðandi niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna, sem m.a. myndi auðvelda fólki að nýta sér þjónustu einkarekinna aðila á borð við geðlækningastofuna Per mentis.

ADHD samtökin skora á stjórnvöld að leita allra leiða til að skera á þennan óásættanlega hnút, sem að lang mestu leyti megi rekja til vanfjármögnunar heilbrigiðskerfisins.

Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður og sem slíkur kjörið tækifæri til að benda á hvað betur megi fara. Af því tilefni standa ADHD samtökin fyrir ýmsum viðburðum og öðru til að vekja athygli á málefnum tengdum ADHD. Hér heima lýkur átakinu með árlegu málþingi ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér,“ sem haldið verður 30. Október í Veislusmáranum - Sporhamrar 3, 112 Reykjavík og í beinu streymi. 30. október.

Höfundur er formaður ADHD samtakanna.




Skoðun

Sjá meira


×