Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar 20. október 2026 09:16 Það er stundum sagt að tölurnar ljúgi ekki. Það má vel vera, en tölurnar segja okkur heldur ekki alltaf alla söguna. Við getum rætt verðbólgu, stýrivexti, fjárlagahalla og hagvaxtarspár fram og til baka. En þegar öllu er á botninn hvolft snýst efnahagsumræðan um fólk. Fjölskylduna sem reynir að láta enda ná saman, unga fólkið sem dreymir um eigið húsnæði og eldri borgarana sem vilja geta notið ævikvöldsins án stöðugra fjárhagsáhyggna. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort við séum stundum orðin of upptekin af því að láta tölurnar ganga upp, en gleymum að spyrja hvernig fólkinu á bak við þær gengur. Að mínu mati á árangur í efnahagsmálum ekki eingöngu að mælast í hagvexti eða afkomu ríkissjóðs, heldur líka í því hvort fólk finni fyrir auknu öryggi og betri lífskjörum. Þegar verðbólgan mælist 5,9% og meginvextir Seðlabankans standa í 8% er ljóst að við erum ekki komin í var. Heimilin finna enn fyrir miklum kostnaði og óvissu um framhaldið. Ábyrg ríkisfjármál eru nauðsynleg – en fyrir hvern? Við í Framsókn höfum aldrei haldið því fram að hægt sé að reka ríkissjóð án ábyrgðar. Þvert á móti. Við vitum að traustur ríkisrekstur er ein af undirstöðum öflugs velferðarsamfélags. Ábyrgð snýst ekki eingöngu um að láta tölurnar ganga upp á blaði. Hún snýst líka um að ákvarðanir stjórnvalda séu sanngjarnar, skynsamlegar og taki mið af raunverulegum aðstæðum fólks. Ríkisstjórnin hefur lagt fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 þar sem stefnt er að hallalausum ríkisrekstri. Það markmið er í sjálfu sér gott. Spurningin er hins vegar hvernig því verður náð. Þegar gjöld hækka, stuðningur við fjölskyldur rýrnar og vaxtabyrðin er áfram þung er hætt við að reikningurinn endi enn einu sinni á eldhúsborðinu hjá venjulegu fólki. Og það eldhúsborð er nú þegar orðið ansi þéttsetið af reikningum. Hvað þýða þessar tölur fyrir venjulega fjölskyldu? Tökum fyrst dæmi um hjón með tvö börn, 45 milljóna króna húsnæðislán og samanlagðar mánaðartekjur upp á 1.330.000 krónur fyrir skatt. Samkvæmt útreikningum Framsóknar á utreikningur.is gætu fyrirhugaðar breytingar í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, ásamt niðurfellingu vaxtabóta, leitt til um 343.500 króna viðbótarbyrði á ári fyrir þessa fjölskyldu. Með tillögum Framsóknar í Heimilissáttinni gæti reiknuð byrði lækkað í um 119.900 krónur. Það er rúmlega 223 þúsund króna munur á einu ári. En hvað með fjölskyldu þar sem aðeins ein fyrirvinna stendur undir heimilinu? Skoðum einstætt foreldri með tvö börn, 650 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir skatt og 40 milljóna króna húsnæðislán. Samkvæmt niðurstöðu reiknivélar Framsóknar á utreikningur.is gætu fjárlagafrumvarpið og niðurfelling vaxtabóta valdið þessari fjölskyldu um 374 þúsund króna reiknaðri viðbótarbyrði á ári. Þar af eru um 67 þúsund krónur vegna minni ráðstöfunartekna, 127 þúsund krónur vegna áhrifa á húsnæðislánið og 180 þúsund krónur vegna niðurfellingar vaxtabóta. Af áhrifunum á húsnæðislánið eru um 82 þúsund krónur sem bætast við höfuðstól þess, fremur en að greiðast beint úr vasa fjölskyldunnar á árinu. Samkvæmt sömu reiknivél myndu mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar lækka reiknaða byrði um 51 þúsund krónur, en með tillögum Framsóknar gæti hún orðið um 67 þúsund krónur á ári. Þetta eru sviðsmyndir byggðar á forsendum Framsóknar, ekki staðfest spá um þróun efnahagsmála eða útgjöld þessara fjölskyldna. En mér finnst niðurstöðurnar engu að síður umhugsunarverðar. Við erum að tala um tvær fjölskyldur með ólíkar tekjur og ólíkar aðstæður, en báðar standa þær frammi fyrir mögulegum viðbótarbyrðum sem skipta verulegu máli. Ég tel að stjórnvöld verði að horfa á heildarmyndina. Það er einfaldlega ekki nóg að hver ráðherra eða stofnun skoði sína gjaldskrá í einangrun. Það þarf einhver að horfa á reikninginn sem endar að lokum hjá fjölskyldunni. Því á bak við þessar tölur er fólk sem vill einfaldlega geta rekið heimili sitt, séð fyrir börnunum sínum og horft bjartsýnum augum til framtíðar. Og að mínu mati eigum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að skapa því fólki betri forsendur. Framsókn vill aðra nálgun Framsókn hefur kynnt Heimilissáttina. Þar leggjum við meðal annars áherslu á hóflegri gjaldahækkanir, að barnabætur fylgi verðlagi, áframhaldandi vaxtabætur og raunhæfari forsendur í ríkisfjármálum. Við vitum að fjármunir ríkisins eru takmarkaðir og að hverri tillögu þarf að fylgja ábyrg fjármögnun. En ég tel að hægt sé að forgangsraða betur og hlífa heimilunum við óþarfa álögum án þess að fórna mikilvægri samfélagsþjónustu. Það er einmitt hlutverk stjórnmálanna að finna slíkt jafnvægi. Í Suðvesturkjördæmi sjáum við þessar áskoranir skýrt. Fjölskyldur í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ þurfa að takast á við háan húsnæðiskostnað, samgöngukostnað og margvísleg útgjöld daglegs lífs. Hvert gjald fyrir sig kann að virðast lítið í stóra samhenginu. En fyrir fjölskyldu sem greiðir af húsnæðisláni, rekur heimili, ferjar börn á milli skóla og tómstunda og reynir að leggja eitthvað fyrir getur heildarmyndin orðið þung. Sem formaður Kjördæmissambands Suðvesturkjördæmis finnst mér mikilvægt að við gleymum aldrei fólkinu á bak við allar þessar ákvarðanir. Ég vil sjá samfélag þar sem ungt fólk hefur raunhæfa möguleika á að eignast heimili, þar sem barnafjölskyldur þurfa ekki stöðugt að hafa áhyggjur af næstu gjaldahækkun og þar sem eldri borgarar geta notið ávaxta ævistarfsins með reisn. Þetta eru að mínu mati grundvallaratriði í því samfélagi sem við eigum að vera að byggja upp. Þess vegna þurfa ríki og sveitarfélög að vinna saman. Við getum ekki kallað eftir hófsemi í verðlagningu á sama tíma og hið opinbera hækkar eigin gjöld án þess að horfa á samanlögð áhrif þeirra. Við þurfum líka að skapa betri forsendur fyrir húsnæðisuppbyggingu, öflugum samgöngum og atvinnulífi sem getur skapað verðmæti og staðið undir þeirri þjónustu sem við viljum veita. Samvinna á að snúast um lausnir Samvinna á að byggjast á sameiginlegri ábyrgð og skýrri forgangsröðun. Hún á að skila raunverulegum úrbótum fyrir fólk, ekki aðeins fallegum markmiðum í stjórnarsáttmála eða tölum sem líta vel út á blaði. Að mínu mati er Heimilissátt Framsóknar mikilvægt innlegg í þá umræðu. Þar eru tillögur sem geta létt byrðum af heimilum, styrkt stöðu barnafjölskyldna og skapað meiri fyrirsjáanleika fyrir fólk sem býr við háan húsnæðis- og vaxtakostnað. Ég tel að ríkisstjórnin eigi að skoða þessar tillögur af alvöru. Það er ekki veikleikamerki að endurskoða áherslur þegar aðstæður breytast. Það er styrkur að geta sett hagsmuni heimilanna framar flokkshagsmunum og pólitískri sýndarmennsku. Við í Framsókn erum óhrædd við að gagnrýna það sem betur má fara en við verðum líka að leggja fram raunhæfar lausnir, lausnir eins og til dæmis Heimilissáttina og vera tilbúin til samstarfs um þær. Góðar hugmyndir verða ekki verri þótt þær komi frá öðrum stjórnmálaflokki. Framtíðin á að vera bjartari Ég trúi því að við getum gert betur. Ég trúi því líka að við í Framsókn höfum bæði reynslu og vilja til að leggja okkar af mörkum. En það krefst þess að við séum tilbúin að hlusta, endurskoða ákvarðanir og setja hagsmuni heimilanna framar pólitískum ágreiningi. Við þurfum ábyrg ríkisfjármál, stöðugleika og öflugt atvinnulíf. En við þurfum ekki síður samfélag þar sem vinnandi fólk, barnafjölskyldur, ungt fólk og eldra fólk getur horft fram á veginn með bjartsýni í huga. Ég vil að við byggjum samfélag þar sem fólk þarf ekki að óttast næsta reikning, heldur getur horft fram á veginn með öryggi og trú á framtíðina. Það er sú framtíð sem ég vil vinna að og sú framtíð sem ég tel að við í Framsókn erum að standa vörð um. Efnahagslegur árangur á ekki aðeins að sjást í ríkisreikningnum. Hann á líka að finnast í heimilisbókhaldinu. Höfundur er formaður Kjördæmissambands Suðvesturkjördæmis Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Ferðaþjónustan: Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun