Skoðun

Myrkra­verk í Afríku

Gunnar Salvarsson skrifar

Myrkraverk eru yfirleitt verk sem þola ekki dagsins ljós. En orðið má líka nota um góð verk sem enginn varpar ljósi á. Ég hef tekið eftir því að undarlega hljótt hefur verið um alþjóðlegt hjálparstarf síðustu misseri. Fréttir frá frjálsum félagasamtökum virðast sjaldnar rata í fjölmiðla en áður og frásagnir af verkefnum Íslands í samstarfsríkjum í Afríku sjást vart. Starfið heldur áfram og fjárframlög hafa raunar aukist, en fréttir og frásagnir af því virðast að verulegu leyti hafa horfið.

Ég ætla að halda því fram að það skipti meira máli en ætla mætti.

Í áratugi naut þróunarsamvinna mikils stuðnings meðal íslensks almennings. Skoðanakannanir sýndu árum saman að um fjórir af hverjum fimm Íslendingum töldu mikilvægt að Ísland legði sitt af mörkum til að bæta lífskjör fólks í sárafátækum ríkjum.

Nú hefur orðið veruleg breyting.

Í könnun Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið árið 2024 töldu 78 prósent mikilvægt að Ísland veitti þróunarríkjum og íbúum þeirra aðstoð. Árið eftir voru þau 64 prósent. Í nýjustu könnuninni, frá því í vor, eru þau aðeins 59 prósent.

Á tveimur árum hefur stuðningurinn fallið um 19 prósentustig. Sama þróun sést þegar spurt er hvort það eigi að vera eitt af forgangsmálum íslenskra stjórnvalda að draga úr fátækt í þróunarríkjum. Árið 2024 voru 44 prósent þeirrar skoðunar, í fyrra 31 prósent og nú aðeins 26 prósent.

Sláandi tölur.

Þekking skapar stuðning

Þegar ég starfaði að upplýsingamálum um þróunarsamvinnu var gengið út frá einfaldri hugsun: Stofnun sem fer með almannafé ber að upplýsa hvernig fjármunirnir eru nýttir. Að baki þeirri hugsun var önnur, ekki síður mikilvæg: Almenningur styður því aðeins opinber framlög að hann viti hvers vegna þeirra er þörf, hvað er gert fyrir peningana og hvaða árangur næst.

Þetta var ein meginforsenda upplýsingaveitunnar Heimsljóss. Markmiðið var ekki aðeins að kynna starf íslenskra stjórnvalda heldur að auka þekkingu á þróunarmálum og viðhalda stuðningi almennings við þátttöku Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

OECD lagði áherslu á hið sama: Þekking skapar stuðning og stuðningur almennings er forsenda þess að stjórnvöld og Alþingi séu reiðubúin að verja fé til málaflokksins. Nú er Heimsljós horfið og ekkert sambærilegt hefur komið í staðinn.

Árið 2022 birtust í Heimsljósi 278 fréttir um þróunar- og mannúðarmál. Um tíma voru fréttirnar jafnframt birtar á Vísi og náðu þannig til mun fleiri en þeirra sem sérstaklega leituðu sér upplýsinga um þróunarmál. Þegar því samstarfi lauk lokaðist býsna stór gluggi. Árið 2023 hafði fréttunum fækkað í 159 og á síðasta ári var upplýsingaveitan lögð niður.

Þróun sem hófst ekki í gær

Eftir efnahagshrunið 2008 beindist athygli samfélagsins skiljanlega inn á við. Hnípin þjóð horfði í eigin barm. Fjölmiðlar endurspegluðu brotna þjóðarsál og drógu úr umfjöllun um þróunarmál. Á sama tíma var dregið saman í tvíhliða samstarfi Íslands. Samstarfi við Namibíu, Níkaragva og Sri Lanka var slitið og síðar Mósambík.

Þar með hurfu ekki aðeins verkefni heldur líka sögur og tengsl við samfélög sem áður höfðu reglulega verið til umfjöllunar hér heima.

COVID-faraldurinn hafði síðar svipuð áhrif. Aftur horfði samfélagið inn á við. Þá hafði íslenskt fjölmiðlaumhverfi jafnframt gerbreyst. Dagblöðum og vikublöðum hafði fækkað, ritstjórnir dregist saman og fréttaumfjöllun utan úr heimi átti víða undir högg að sækja.

Þróunarsamvinna keppir illa um athygli í slíku umhverfi. Nýr skóli, betri mæðravernd eða hrós um héraðsnálgun Íslendinga verður sjaldnast stórfrétt. Einhver þarf að segja þá sögu og einhver þarf að miðla henni til almennings.

ÞSSÍ hverfur

Önnur grundvallarbreyting varð í árslok 2015 þegar Þróunarsamvinnustofnun Íslands var lögð niður og starfsemin færð inn í utanríkisráðuneytið. ÞSSÍ hafði eitt meginhlutverk: tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands. Þar hafði á löngum tíma byggst upp sérþekking á þróunarstarfi, verkefnastjórnun og samstarfsríkjunum sjálfum.

Við sameininguna hvarf þekkingin ekki. Starfsfólk ÞSSÍ fluttist inn í ráðuneytið og sérþekkingin þar með. En á fáeinum árum var stór hluti starfsfólks með áralanga þekkingu og reynslu kominn á eftirlaun.

OECD sá hættuna. Í úttekt 2017 var sérstaklega bent á mikilvægi þess að varðveita sérþekkinguna. Sex árum síðar taldi OECD aðeins hafa verið brugðist að hluta við þeirri ábendingu. Reyndir þróunarsérfræðingar úr ÞSSÍ nálguðust þá starfslok og almennt tilfærslukerfi utanríkisþjónustunnar tryggði ekki að fólk með sérþekkingu starfaði áfram við málaflokkinn.

Starfið hefur líka breyst

Framlög Íslands til þróunarsamvinnu hafa aukist síðustu ár. Það er ánægjulegt. En um leið hefur framkvæmdin breyst.

Stór hluti íslensks þróunarfjár fer nú í gegnum Sameinuðu þjóðirnar og aðrar alþjóðastofnanir, ýmist sem bein framlög eða til skilgreindra verkefna. Stofnanirnar framkvæma verkefnin ekki endilega sjálfar heldur geta fjármunirnir runnið áfram til félagasamtaka eða annarra framkvæmdaraðila í viðtökuríkjunum.

Þetta kann að vera faglega skynsamlegt og árangursríkt, þótt líka megi efast um það. En eitt er víst: Tengslin milli íslenska framlagsins og árangursins verða almenningi óljósari.

Í Malaví og Úganda lifir þó merkileg arfleifð íslenskrar tvíhliða þróunarsamvinnu: héraðsnálgunin. Þar er unnið beint með héraðsstjórnum að verkefnum sem þær sjálfar skilgreina sem forgangsmál, svo sem vatnsveitum, heilbrigðisþjónustu og menntun. Markmiðið er að aðstoða héraðsstjórnir við að sinna grunnþörfum íbúanna og OECD hefur gefið þessari nálgun góða dóma.

Það er auðvelt að segja sögu af slíku samstarfi. Mun erfiðara er að sýna almenningi hvaða breytingu íslenskt framlag inn í stórt alþjóðlegt verkefni hefur haft í för með sér.

Neyðin er sýnileg

Athyglisvert er að stuðningur við mannúðaraðstoð stendur betur. Í nýjustu Maskínukönnuninni telja 65 prósent mikilvægt að íslensk stjórnvöld veiti mannúðaraðstoð. Líkast til er hluti skýringarinnar einfaldlega sá að náttúruhamfarir, stríð og afleiðingar öfgaveðurs sjást greinilega og fjölmiðlar gera þeim góð skil. Neyðin kallar á tafarlaus viðbrögð.

Árangursrík alþjóðleg þróunarsamvinna er hins vegar langhlaup og miklu ósýnilegri. Barn sem deyr ekki vegna þess að heilsugæslan brást rétt við verður ekki að frétt, hvorki heima fyrir né í framlagsríkinu. Sama gildir um konu sem lifir af barnsburð vegna betri mæðraverndar. Vatnsveita sem virkar árum saman verður ekki stórfrétt. Betri stjórnsýsla sveitarfélags vekur litla athygli.

Einhver þarf samt að segja þessar sögur.

Fáar frásagnir af vettvangi

Ég ætla ekki að halda því fram að minnkandi upplýsingagjöf skýri ein og sér fallið úr 78 prósenta stuðningi árið 2024 í 59 prósent á þessu ári. Heimurinn hefur breyst, langvarandi stríðsátök yfirgnæfa umræðu um alþjóðamál, orðræðan um flóttafólk hefur áhrif og viðhorf til alþjóðasamvinnu eru víða að breytast.

En hér er ástæða til að staldra við. Ísland ver meiri fjármunum en áður til þróunarsamvinnu. Á sama tíma er sjálfstæða stofnunin sem fór með tvíhliða starfið horfin, margir reyndustu sérfræðingarnir eru horfnir eða að hverfa úr starfi, framkvæmdin hefur breyst og skipulögð upplýsingamiðlun til almennings hefur veikst.

Og stuðningur almennings dvínar.

Ég hef ekki trú á því að núverandi utanríkisráðherra eða starfsfólk ráðuneytisins hafi meðvitað ákveðið að skrúfa fyrir upplýsingakranann um þróunarsamvinnu. Samt hefur það gerst. Starfið sjálft hvarf ekki en frásagnir af vettvangi hafa að verulegu leyti horfið.

Þegar almenningur hættir að sjá starfið er varla hægt að reikna með því að stuðningurinn við það haldist óbreyttur. Samt er það ekki starfið sjálft sem þarf að draga fram úr myrkrinu heldur frásögnin af árangri sem náðst hefur fyrir skattfé Íslendinga.

Höfundur er fyrrverandi sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu.




Skoðun

Sjá meira


×