Körfubolti

Líktu Álfta­nesi við Bayern München

Andri Broddason skrifar
Leikmannakaup Álftanes í sumar var eins og Bayern München í fótboltanum.
Leikmannakaup Álftanes í sumar var eins og Bayern München í fótboltanum. Samsett/Vísir

Álftanes ætlar sér stóra hluti í Bónus-deild karla í körfubolta. Liðið var duglegt að sækja leikmenn í sumar og virðist liðið minna á stórlið Bayern München í fótbolta.

Körfuboltakvöld fór yfir stöðu Álftanes í Bónus-deildinni þar sem liðið er gríðarlega sterkt. Liðið styrkti sig gríðarlega í sumar og tók marga af bestu leikmönnum deildarinnar frá mórherjum sínum. Þá var liðið bæði að styrkja sig og veikja andstæðingana.

Klippa: Álftanes er Bayern München Íslands

Hlýnur Bæringsson, sérfræðingur Sýnar Sport, sagði að Álftanes væri best mannaða lið deildarinnar.

„[Álftanes] er með besta liðið og þeir líta vel út. Það er orka og ákefð og það er strax kominn stemning. Það var eiginlega vitað að þeir myndu mæta tilbúnir.“

Álftanes sótti Joran Semple frá Grindavík, Dedrick Basile frá Tindastól, Luka Gasic frá Stjörnunna og Frank Aron Booker frá Val. Öll þessi fjögur lið eru líklegust til að vera í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og var Álftanes að veikja öll þessi lið.

Benedikt Guðmundsson tók undir og lýsti stöðu Álftanes á fótboltamáli.

„Þetta minnti mig á í gamla daga þegar Bayern München í fótboltanum var orðið þvílíkt stórveldi. Um leið og eitthvað lið var orðið óþægilegt fyrir þá í deildinni þá keyptu þeir bestu leikmennina þeirra.“

Umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×