Körfubolti

Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jamal Murray steinlá eftir spark Dillon Brooks á slæman stað.
Jamal Murray steinlá eftir spark Dillon Brooks á slæman stað. Skjáskot

Dillon Brooks, leikmanni Phoenix Suns í NBA-deildinni, var hent út úr húsi fyrir að sparka í Jamal Murray, leikmann Denver Nuggets, og það á viðkvæman stað. Murray segir þá vera vini og trúir því ekki að sparkið hafi verið viljandi.

Brooks tók skot í leik næturinnar þegar Murray var að dekka hann. Við skottilraunina sparkaði hann hægri fæti sínum út, beint í klof Murray sem lá sárþjáður eftir.

Sóknarvilla var dæmd á Brooks á meðan Murray lá á vellinum. Dómarar leiksins endurskoðuðu atvikið og háskavilla (e. fragrant foul) dæmd á Brooks sem hefur í för með sér brottvísun.

Brooks var stigahæstur í liði Suns þegar hann lauk keppni í þriðja leikhluta, þar sem hann hafði hitt úr níu af tólf skotum og skorað 22 stig.

Murray lauk leiknum með 39 stig fyrir Nuggets en hann sagði eftir leik að þeir Brooks væru „vinir“ þar sem þeir eru liðsfélagar í kanadíska landsliðinu.

„Nei, auðvitað ekki,“ sagði Murray aðspurður um hvort hann telji sparkið hafa verið viljandi. „Hann er bara að skjóta boltanum. Ég meina, hann gæti hafa floppað (innsk. ýkt brotið) aðeins en ég held hann hefi ekki reynt að sparka í typpið á mér.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×