„Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 30. október 2026 22:27 Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, sést hér á hliðarlínunni á Hlíðarenda í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var svekktur eftir naumt tap gegn Val, 87-84, í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Hann hrósaði þó sínu liði fyrir baráttuna í síðari hálfleik þegar Ármenningar náðu að snúa þrettán stiga mun í forystu. „
Ég er náttúrulega bara drullusvekktur sko.“ Ármann var enn án sigurs eftir fjórar umferðir en Steinar sá ýmislegt jákvætt í frammistöðu sinna manna á Hlíðarenda. „Ég vil hrósa liðinu fyrir að koma til baka og taka alvöruleik hérna við Val á þeirra heimavelli.“ Steinar var ósáttur við frákastabaráttu liðsins í fyrri hálfleik og skilaboðin til leikmannanna í hléinu voru skýr. „Þeir voru að slátra okkur í fráköstunum í fyrri hálfleik. Ég bað strákana um eitt verkefni og það var að vinna frákastabaráttuna. Það myndi skila okkur inn í leikinn aftur, sem að það gerði.“ Hann taldi meiri ákefð og baráttu hafa skilað sér í síðari hálfleik. Trú á sigur hefði ein og sér ekki verið nóg. „Það þyrfti að fylgja því eftir með ákefð og baráttu. Það var ekki alveg nógu mikið í fyrri hálfleik en það kom seinna alveg. Þetta er voða einfalt oft.“ Ármenningar komust yfir snemma í fjórða leikhluta en náðu ekki að fylgja því eftir með sigri. Steinar taldi það hafa kostað sitt að þurfa að vinna upp forskot Vals. „Við byrjum ekki nógu vel og við þurfum að koma okkur inn í leikinn og það tekur orku.“ „Ef við hefðum verið allan leikinn af sama krafti og í seinni hálfleik þá hefðum við líklega tekið þetta en Valur er með reynslumikið lið og þeir þarna klára þetta.“ Þrátt fyrir vonbrigðin taldi Steinar leikinn hafa verið skref í rétta átt. „Klárlega. Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til.“ Honum fannst leikmenn hafa sýnt trú á verkefninu þótt á móti hefði blásið. „Við höfum alltaf trú á þessu liði og við viljum að menn í liðinu hafi trú á okkur. Mér fannst það koma þarna í seinni hálfleik.” Steinar taldi þó enn margt þurfa að bæta, sérstaklega í sóknarleiknum. „Samt sé ég alveg ennþá ákveðna hluti sóknarlega þar sem við verðum staðir og getum leyst betur þarna bara kerfin okkar og flæði þar. Þannig að það er fullt sem við þurfum að bæta.“
Bónus-deild karla Valur Ármann Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Sjá meira