Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar 24. september 2026 15:15 Tuttugu árum síðar er Ásbrú ekki lengur fyrst og fremst „gamla varnarsvæðið“. Þar eru nú nær 70 fyrirtæki, þúsundir manna eiga þar heimili og á svæðinu hefur byggst upp fjölbreytt samfélag menntunar, atvinnulífs, hátækni, íþrótta og menningar. Það var langt frá því sjálfgefið að þannig færi. Nú eru aðeins fáeinir dagar þar til tuttugu ár verða liðin frá einum stærstu tímamótum í sögu Suðurnesja á síðari tímum. 30. september 2006 var bandaríski fáninn dreginn niður í síðasta sinn á Miðnesheiði. Þar með lauk 55 ára fastri viðveru bandaríska varnarliðsins á Íslandi. Fyrir Suðurnesjamenn var þetta gríðarlegt áfall. Hundruð starfa hurfu á skömmum tíma og fjölmargar fjölskyldur stóðu frammi fyrir óvissu. En um leið hófst eitt stærsta umbreytingarverkefni sem íslenskt sveitarfélag hefur staðið frammi fyrir. Við höfðum undirbúið okkur Brottförin kom hratt til framkvæmda en möguleikinn á breytingum hafði lengi verið fyrir hendi. Við í Reykjanesbæ höfðum því áður hafið vinnu við að skoða hvernig önnur samfélög erlendis hefðu brugðist við lokun herstöðva og hvernig mætti fjölga stoðum atvinnulífsins á Suðurnesjum. Þegar endanleg ákvörðun Bandaríkjamanna lá fyrir í mars 2006 þurftum við að bregðast hratt við. Þann 19. mars lögðum við fram þríþætta nálgun: að tryggja sem best stöðu fólksins sem missti vinnuna, sækja fram með ný atvinnutækifæri og undirbúa framtíðarnýtingu þess mikla lands, húsnæðis og innviða sem yrðu eftir. Daginn eftir, 20. mars, hittum við starfsmenn og fjölskyldur þeirra í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þar var óvissan mikil. Fólk hafði unnið á vellinum í áratugi og margir höfðu gert ráð fyrir að ljúka þar starfsævinni. Við settum fljótt á laggirnar sérstaka ráðgjöf og aðstoð við þá sem misstu vinnuna. Meginmarkmiðið var að fólk kæmist aftur til starfa sem fyrst. Við lögðum jafnframt áherslu á eitt grundvallaratriði: Suðurnesjamenn voru ekki að biðja um ölmusu. Við vildum fá tækifæri til að byggja upp ný störf, nýja menntun og nýja atvinnustarfsemi á grunni þeirra verðmæta sem fyrir voru á svæðinu. Þann 8. maí fórum við yfir stöðuna með Geir H. Haarde, þá utanríkisráðherra, á fjölmennum fundi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Krafa okkar var skýr: það yrði að líta á verkefnið sem stórt samfélagslegt umbreytingarverkefni, ekki eingöngu sem ráðstöfun fasteigna sem herinn skildi eftir. Menntun varð eitt fyrsta svarið Eitt mikilvægasta verkefnið sem spratt úr þessari vinnu var Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sem stofnaður var á Ásbrú vorið 2007. Þar var ekki aðeins um að ræða nýja menntastofnun. Menntunarstig á Suðurnesjum hafði lengi verið lægra en í öðrum landshlutum. Ein skýringin var sú að á svæðinu höfðu um árabil verið næg störf, meðal annars hjá varnarliðinu, þar sem fólk gat farið snemma út á vinnumarkað, fengið góða starfsþjálfun og unnið sig upp án þess að ljúka formlegu framhaldsnámi. Háskólabrú Keilis varð því sérstaklega mikilvæg. Hún opnaði fullorðnu fólki, sem ekki hafði lokið stúdentsprófi, leið til að undirbúa sig fyrir háskólanám og sækja inn í ný tækifæri á vinnumarkaði og í samfélaginu. Árangurinn er mælanlegur. Við útskrift Háskólabrúar í júní 2026 höfðu 2.771 nemendur lokið náminu frá upphafi. Þetta er ein skýrasta birtingarmynd þess hvernig umbreytingin á Ásbrú snerist ekki aðeins um ný fyrirtæki og ný störf heldur einnig um að byggja upp mannauð svæðisins til framtíðar. Hugmyndin var frá upphafi að nýta mannvirki og aðstöðu á gamla varnarsvæðinu til uppbyggingar þekkingar og menntunar og tengja hana atvinnulífinu. Þetta var táknrænt fyrir þá hugsun sem lá að baki umbreytingunni: herstöðin ætti ekki að verða minnisvarði um liðna tíð heldur vettvangur fyrir nýtt samfélag. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, síðar Kadeco, fékk það stóra verkefni að taka við, þróa og markaðssetja svæðið. Ásbrú varð smám saman til. Svo skall annað áfall á Það tókst betur en margir óttuðust að koma stórum hluta þeirra sem misstu störfin árið 2006 aftur út á vinnumarkað. Þegar brottflutningi lauk 30. september voru um eitt hundrað fyrrverandi starfsmenn varnarliðsins enn atvinnulausir og 137 höfðu meðal annars verið ráðnir til starfa við áframhaldandi flugvallarrekstur. En aðeins tveimur árum síðar skall fjármálakreppan á. Fyrir samfélag sem hafði rétt áður gengið í gegnum eitt stærsta atvinnuáfall á Suðurnesjum var það þungt högg. Margir sem höfðu rétt náð fótfestu í nýjum störfum stóðu aftur frammi fyrir óvissu. Uppbyggingin á gamla varnarsvæðinu varð hægari en menn höfðu vonað. En hún stöðvaðist ekki. Nær 70 fyrirtæki á Ásbrú Nú, tuttugu árum síðar, er myndin allt önnur. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Kadeco eru nær 70 fyrirtæki starfandi á Ásbrú. Þar er ekki lengur eitt ráðandi atvinnufyrirtæki eða ein starfsemi heldur fjölbreytt flóra fyrirtækja, menntunar, tækni, þjónustu, heilsu og nýsköpunar. Þar má meðal annars nefna fyrirtæki eins og Verne, sem hefur byggt upp umfangsmikla gagnaversstarfsemi á Ásbrú, Algalíf, sem hefur orðið leiðandi í hátækniræktun örþörunga, Íslandshús og fjölmörg önnur fyrirtæki af ólíkum toga. Á Patterson-svæðinu, gamla Patterson-flugvellinum austan Ásbrúar, hefur jafnframt orðið til merkilegur tæknikjarni. Þar er meðal annars umfangsmikil gagnaversstarfsemi og svæðið hefur verið skilgreint sem mikilvægt atvinnu- og þróunarsvæði til framtíðar. Þetta er athyglisverð umbreyting. Á svæði sem áður var hluti af hernaðarinnviðum Atlantshafsbandalagsins er nú alþjóðleg stafræn starfsemi knúin íslenskri endurnýjanlegri orku. Ekki aðeins vinnustaður – heldur samfélag Ásbrú hefur ekki aðeins þróast sem atvinnusvæði. Þar hefur byggst upp samfélag. Íbúðarhúsnæði gamla varnarsvæðisins fékk nýtt hlutverk og síðar hófst ný íbúðauppbygging, meðal annars í Hlíðarhverfi og Vesturhlíðum. Samhliða hafa samfélags-, íþrótta- og menningarstarfsemi fest þar rætur. Þar má nefna Sporthúsið, Ungleikhúsið, dansstarfsemi og Hjarta Ásbrúar. Þetta skiptir máli. Hverfi verður ekki til með því einu að fylla gömul hús af fyrirtækjum eða íbúum. Það verður til þegar fólk fer að lifa þar daglegu lífi – börn ganga í skóla, fólk stundar íþróttir, menningu og þjónustu og ný kynslóð tengir sjálfsmynd sína við staðinn. Næsti kafli er þegar hafinn Árið 2024 gerðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco samkomulag um næsta stóra áfanga uppbyggingarinnar þar sem meðal annars var gert ráð fyrir 800 nýjum íbúðum ásamt samfélagslegum innviðum og almenningsrýmum. Og nú í september 2026 var stigið enn eitt skrefið. Þann 16. september undirrituðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco viljayfirlýsingu um að hraða uppbyggingu Suðurbrekku. Þar er gert ráð fyrir um 200 íbúðum, meðal annars einbýlishúsum, raðhúsum og lágreistum fjölbýlishúsum. Það eitt gæti þýtt nýtt samfélag upp á um 500–600 íbúa þegar svæðið er fullbyggt, eftir því hver meðalstærð heimila verður. En langtímasýnin er miklu stærri. Samkvæmt núverandi framtíðarsýn Kadeco gæti íbúðum á Ásbrú fjölgað um 4.500 til ársins 2050 og þar orðið samfélag með allt að 14.000 íbúum. Þá verður gamla varnarsvæðið í raun orðið einn stærsti bæjarhluti Reykjanesbæjar. Tuttugu ár Þegar horft er til baka yfir þessi tuttugu ár er auðvelt að sjá það sem nú hefur orðið. Erfiðara er að rifja upp óvissuna eins og hún var vorið og haustið 2006. Við vissum ekki hvernig sagan myndi enda. Við vissum aðeins að við yrðum að bregðast við. Stór áföll kalla á skjót viðbrögð, en raunveruleg samfélagsbreyting tekur tíma. Ásbrú er kannski besta dæmið um það. Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjanesbær Keflavíkurflugvöllur Öryggis- og varnarmál Mest lesið „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun