Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. ágúst 2026 12:01 Skólakrakkar eru mættir aftur í skólann. Vísir/Vilhelm Þúsundir skólakrakka snúa aftur í skólann í þessari viku um land allt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aukið umferðareftirlit sitt í kringum grunnskóla að sögn varðstjóra sem segir umferðina hafa þyngst mjög, enda skólastarf hafið á öllum skólastigum.
Skólasetning var víða í grunnskólum landsins í gær, mánudag og hafa flestir ekki farið varhluta af því enda eykst bílaumferð gjarnan á ári hverju þegar skólarnir hefjast að nýju eftir sumarfrí. Þá hófst kennsla í framhaldsskólum í síðustu viku, sem og í háskólum landsins. Því er ljóst að þúsundir nemenda á öllum skólastigum eru því á ferðalagi á háannatíma. Logi Sigurjónsson aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir árið í ár enga undantekningu, umferðin hafi gengið vel hingað til. „Ökumenn hafa bara verið að haga sér vel og við höfum ekkert orðið vör við nein stór vandamál. Það er náttúrulega bara núna meiri umferð í kringum skólana, sérstaklega núna fyrstu dagana, við brýnum bara fyrir ökumönnum að fara varlega, virða hámarkshraðann og vera með augun opin.“ Umferðin sé sérstaklega þung á morgnana og seinnipartinn, þá séu flestir ökumenn á ferð á sama tíma og mörg skólabörn fótgangandi á leið í og úr skólanum. Logi segir þeim mun mikilvægara að ökumenn fari með öllu að gát og virði umferðarreglur. „Við leggjum ríka áherslu á það og hámarkshraðamerkingar miðast við bestu aðstæður, þannig ef það er mikil umferð og mikið af gangandi vegfarendum þá brýnum við fyrir ökumönnum að hafa varann á.“ Lögregla muni í ljósi stöðunnar næstu daga og vikur fylgjast sérstaklega með umferð í kringum grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, þar sem íbúar geti búist við því að sjá reglulega til lögreglunnar í eftirliti. „Við höfum yfirleitt gert það, við reynum að skipta okkur á milli hverfa og hafa smá sýnilegt eftirlit.“
Umferð Skóla- og menntamál Reykjavík Grunnskólar Umferðaröryggi Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira