Umferð

Fréttamynd

Búið að opna Hellis­heiði á ný

Hellisheiði var lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss í gær og í nótt. Slysið átti sér stað á tíunda tímanum og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Innlent
Fréttamynd

Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús

Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl.

Innlent
Fréttamynd

Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu

Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með þessu verður hægt að loka veginum með stuttum fyrirvara, til dæmis þegar slys verða eða þegar færð spillist.

Innlent
Fréttamynd

Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum

Víða var hálka á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi veður í nótt. Vegagerðin hvetur ökumenn til varkárni. Að sögn yfirlögregluþjóns var þó lítið um umferðaróhöpp í morgun en nóg var hins vegar að gera á dekkjaverkstæðum.

Innlent
Fréttamynd

Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara

Vegagerðin vekur athygli á því að vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar á norðanverðu Snæfellsnesi upp úr hádegi gæti komið til lokana á vegum með stuttum fyrirvara. Búast má við hviðum allt að 45 metrum á sekúndu á svæðinu.

Veður
Fréttamynd

Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og telur mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum.

Innlent
Fréttamynd

Sinntu út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut

Lögreglustöð eitt barst tilkynning í morgun eða í dag þar sem kom fram að grindverk hefði fokið fyrir akbraut. Voru gerðar viðeigandi ráðstafanir en líkt og fram hefur komið er útlit fyrir vonskuveður um mestallt landið á miðvikudag þegar dýpsta októberlægð í rúm sex­tíu ár gengur yfir. Þá hefur fólk verið hvatt til að taka inn lausamuni og hliðra plönum.

Innlent
Fréttamynd

Kveikja og slökkva á ljósa­staurum vegna bilunar

Víðtæk bilun varð á ljósastaurum víða á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í gærkvöldi. Samkvæmt svörum frá Veitum er um að ræða bilun í ljósnema sem nemur birtustigið úti. Samkvæmt svari átti að taka hann úr rekstri um áramótin. Hann verður gerður óvirkur fyrr og verður ljósunum handstýrt þar til nýtt kerfi er komið í notkun.

Innlent
Fréttamynd

Opnuðu Arnarnesveg að hluta

Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga.

Innlent
Fréttamynd

Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið

Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Vill breyta um­deildum gatna­mótum

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent
Fréttamynd

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Tals­vert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir á­hrifum

Alls voru tuttugu og fjórir ökumenn stöðvaðir í akstri á höfuðborgarsvæðinu um síðastliða helgi sem reyndust vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þar af voru tvær konur og tuttugu og tveir karlar en þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír aldrei öðlast ökuréttindi.

Innlent
Fréttamynd

Reykja­nes­braut verður lokað vegna fram­kvæmda

Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt mun fara fram á milli Kaplakrika og Kauptúns frá klukkan 20:00 til 07:00 í nótt. Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir við vinnusvæðin en lokað verður fyrir umferð á vegkaflanum.

Innlent
Fréttamynd

Loka hring­veginum við Jökuls­ár­lón

Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu. Lokað verður frá klukkan 20:00 annað kvöld, sunnudaginn 27. september, til klukkan 07:00 mánudagsmorguns, 28. september.

Innlent
Fréttamynd

Hvers vegna er ég ekki kominn lengra?

Ég þekki ákveðna tegund af pirringi úr umferðinni. Ég sit á akrein sem virðist varla hreyfast á meðan bílarnir við hliðina á mér renna fram hjá, hver á fætur öðrum. Fyrst tek ég varla eftir því, en svo fer ég ósjálfrátt að telja þá, fimm bílar, svo tíu og jafnvel bíllinn sem var langt fyrir aftan mig er allt í einu kominn fram úr.

Skoðun
Fréttamynd

Ölvunar­akstur ung­menna nálgast sögu­legt há­mark

Sífellt fleiri ungmenni viðurkenna ölvunarakstur í viðhorfskönnun Samgöngustofu og hlutfall þeirra sem segjast hafa ekið eftir að hafa fengið sér fleiri en einn drykk nálgast sögulegt hámark. Sérfræðingur segir þróunina áhyggjuefni og telur þörf á átaki.

Innlent
Fréttamynd

Tafir við gönguljós á Hring­braut ekki vegna bilunar

Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavík segir tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar. Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa síðustu vikur innleitt nýtt ljósastýringakerfi, rauntímastýringu umferðarljósa, á Hringbraut. 

Innlent
Fréttamynd

Tíma­bært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar

Nýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Þá segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs tímabært að ræða vaxtarmörk borgarinnar og aukna uppbyggingu í austurhluta borgarinnar. 

Innlent
Fréttamynd

Unnið að upp­færslu um­ferðar­ljósa

Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. 

Innlent
Fréttamynd

Lifði af bíl­slys en missti besta vin sinn

Haraldur Már Haraldsson lenti í alvarlegu bílslysi 18. febrúar árið 2008 á Akranesi. Besti vinur hans lést í slysinu. Hann kenndi sjálfum sér um lengi en segist á betri stað í dag. Haraldur hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar áður en það skilur eftir athugasemdir um alvarleg slys og fólkið sem verður fyrir áhrifum af því. 

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á há­lendið

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna manns sem hafði slasast á fæti þar sem hann var í mótorhjólaferð á hálendinu. Hann var í kjölfarið sóttur af sjúkrabíl á flugvöllinn í Reykjavík og fluttur undir læknishendur.

Innlent