Innlent

Í beinni frá höfuð­stöðvum Öl­gerðarinnar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. Eftirlitið grunar Beru um brot á 11. grein samkeppnislaga sem leggur bann við hvers konar misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12 og við verðum í beinni frá höfuðstöðvunum.

Hér má hlusta í vefspilaranum.

Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjdag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum. 

Forsætisráðherra segir að aðkoma ríkisins að lyktum málsins muni kosta 1,6 milljarða króna, samanborið við tugmilljarða króna kostnað við fyrri aðgerðapakka ríkisins í kjaramálum.

Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið.

Í dag er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sýndur á Sýn og Vísi í kvöld.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 9. október 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×