Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 1. ágúst 2026 17:02 í beinni útsendingu Vísis í gær mátti sjá áhöfnina koma upp á þilfar skipsins í stutta stund. Lögregla viðhafði mikla gæslu við skipið í allan gærdag. Vísir Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum.
Í tilkynningu frá samtökunum er staðhæft að eigur áhafnarmeðlima hafi verið haldlagðar án þess að fyrir því væri heimild. Haldið hafi verið fram af lögreglumönnum að þeir hefðu sérstaka heimild en aldrei hafi verið sýnt fram á slíkt. Þá hafi áhöfninni ekki verið birtur listi yfir allar þær eigur sem gerðar hafi verið upptækar. Hér má sjá skjáskot úr beinni útsendingu okkar frá því í gær þegar áhafnarmeðlimur er leiddur út í lögreglubíl. Skjáskot/Vísir Gagnrýnt er að skipverjar hafi ekki fengið sjálfir að velja sér lögmann og komið hafi verið í veg fyrir að lögmaður þeirra næði sambandi við þá. Sömuleiðis hafi þeir ekki fengið að setja sig í samband við fjölskyldur sínar. Einnig er í tilkynningunni gagnrýnt að á skipinu skorti aðgengi að grunnaðstöðu, líkt og sturtu. Áhöfnin hafði fyrir handtöku búið sjálfviljug á Bandero vikum saman. Ekkert hefur komið fram opinberlega um hvernig grunnþörfum áhafnarinnar er mætt meðan á haldi hennar stendur, svo sem með tilliti til baðherbergisaðstöðu og matar. Staðfest hefur verið af lögreglu að áhöfnin verði í haldi á skipinu fram yfir verslunarmannahelgi hið minnsta. Samtökin birtu fyrr í dag myndbandsupptöku af því þegar sérsveitin réðst inn í skipstjórnarklefann: Samtökin kalla í yfirlýsingu sinni eftir því að skipverjar fái hið snarasta aðgang að lögmanni og að komið verði á samskiptum milli skipverja og fjölskyldna þeirra. Einnig er krafist fulls gagnsæis varðandi þær aðstæður sem áhöfninni er haldið við og skýrra skilaboða frá stjórnvöldum hérlendis varðandi lagalegan grundvöll þess að skipverjum sé enn haldið föngnum þrátt fyrir að sólarhringsfrestur lögreglunnar til að fara fram á gæsluvarðhald hafi runnið út.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Lögreglumál Mannréttindi Hvalveiðar Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira