Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga

Fréttamynd

Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey.

Innlent
Fréttamynd

„Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“

„Það er auðvitað óheppilegt og það mátti lágmarka skaða og hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta þeirra sem eru að starfa á skipum Hvals ef Matvælastofnun hefði nú kannski farið eftir því sem kalla má vandaða stjórnsýsluhætti.“ 

Innlent
Fréttamynd

Þrjú til­vik til rann­sóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum

Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú hraðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur leikur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum.

Innlent
Fréttamynd

Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna

Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna.

Innlent
Fréttamynd

Spiluðu þjóð­sönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson

Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá

Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgist enn grannt með ferðum Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu frá. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna ekki hafa lagalega heimild til þess.

Innlent
Fréttamynd

„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“

Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar.

Innlent
Fréttamynd

„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Sér­sveitar­menn um borð í Þór

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki gefið Land­helgis­gæslunni upp stað­setningu Bandero

Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins.

Innlent
Fréttamynd

„Þegar við komum til Ís­lands munum við stöðva hann“

Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri and­vígir hval­veiðum en fylgjandi

Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum.

Innlent
Fréttamynd

Hvalveiðiundirbúningur von­brigði en styðja ekki að­gerðir Watson

Fulltrúar Landhelgisgæslunnar munu fylgjast ferðum skipaáhafnar aðgerðasinnans Paul Watson, en skip á hans vegum er á leið til landsins í þeim tilgangi að stöðva hvalveiðar. Formaður Hvalavina styður ekki aðgerðir Watson en segir það mikil vonbrigði að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar.

Innlent
Fréttamynd

„Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“

Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda.

Innlent
Fréttamynd

Hvalavinurinn ekki lengur eftir­lýstur

Alþjóðalögreglan Interpol hefur fjarlægt aðgerðarsinnann og hvalavininn Paul Watson af lista sínum yfir eftirlýsta glæpamenn. Hann var handtekinn á síðasta ári á Grænlandi en er einnig alræmdur innan hvalveiðiiðnaðarins á Íslandi.

Erlent
Fréttamynd

Paul Watson heitir að trufla hval­veiðar á Ís­landi í sumar

Hvalavinurinn kanadíski Paul Watson, sem er vel kunnugur landsmönnum, heitir því að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar. Hann varði drjúgum hluta vetrarins í fangelsi á Grænlandi en mikið hefur verið fjallað um það kast sem hann hefur komist í við lögin hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Wat­son skal á­fram sæta gæslu­varð­haldi

Dómstóll í Nuuk í Grænlandi hefur úrskurðað að kanadíski hvalveiðiandstæðingurinn Paul Watson skuli sæta gæsluvarðhaldi í þrjár vikur til viðbótar, eða til 23. október næstkomandi. 

Erlent
Fréttamynd

Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimm­tán ára fangelsis­vist

Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist í Japan. Hann var handtekinn við höfnina í Nuuk fyrr í mánuðinum en hann hefur vakið athygli hér á landi fyrir að hafa meðal annars sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. á níunda áratugnum.

Erlent
  • «
  • 1
  • 2