Hvalveiðar

Fréttamynd

Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir ver­tíðina

Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar.

Innlent
Fréttamynd

„Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“

Stofnun Paul Watson boðar „Aðgerð 86“ í sumar, til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Þetta segir í tilkynningu frá samtökunum, þar sem því er lýst með dramatískum hætti að fjögurra áratuga átök milli aðgerðasinna og „alræmdasta“ hvalveiðimanns Íslands, Kristjáns Loftssonar, séu enn á enda.

Innlent
Fréttamynd

Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarþing­maður segir Haf­ró í bullandi pólitík

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, telur Hafrannsóknarstofnun í bullandi pólitík. Hann telur stofnunina skulda svör í tengslum við veiðiráðgjöf á langreyði en þar mæla Hafró og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið ekki með meira en 150 dýrum. Þetta er 23 prósenta lækkun.

Innlent
Fréttamynd

Lækka veiðiráðgjöf á hval veru­lega

Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið, NAMMCO, ráðleggur að veiðar á langreyði árið 2026 verði ekki meiri en 150 dýr, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar, sem er um 28 prósenta lækkun frá fyrri ráðgjöf. Eins er ráðlagt að veiðar á hrefnu árið 2026 verði ekki meiri en 168 dýr á íslenska landgrunnsvæðinu, sem er 23 prósenta lækkun.

Innlent
Fréttamynd

Út­lit fyrir að ís­lensk stjórn­völd brjóti gegn alþjóða­samningum

Stjórn­völd geta verið að brjóta gegn alþjóð­legum skuld­bindingum sínum með því að leyfa hval­veiðar, að mati lög­fræðinga. Bjarni Bene­dikts­son, þáverandi for­sætis- og mat­vælaráðherra, gaf út hval­veiði­leyfi til fimm ára skömmu eftir kosningarnar 2024. Á sama tíma hefur Haf­rannsókna­stofnun ekki gefið út hval­veiðikvóta fyrir komandi hval­veiðitíma­bil.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er sorg­legur dagur fyrir lýð­ræðið“

Verjandi tveggja kvenna sem voru í dag sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip segir rétt til mótmæla hafa að engu verið hafður með dóminum. Önnur konan segir þá sem stunda borgaralega óhlýðni sjaldnast dæmda rétt af dómsvaldinu á hverjum tíma en þeir fái uppreist æru í þegar litið er í baksýnisspegil sögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir veiði­menn fengu tvær milljónir frá Hval

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt Hval hf. til að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum rúmar 2,1 milljónir króna hvorum í vangoldin laun vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023. Fyrirtækið var hins vegar sýknað af kröfum þriggja annarra starfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

„Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“

Aðalmeðferð hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli hvalveiðimótmælendanna Anahitu Babaei og Elissu Bijou sem hlekkjuðu sig við tunnur Hvals 8 og Hvals 9 í 33 klukkustundir árið 2023. Þær segjast tilbúnar til að standa á sínu í réttarsal og segja heiminn standa með sér.

Innlent
Fréttamynd

Hval­veiðar í sviðs­ljósinu

Við Anahita erum aftur í sviðsljósinu. Í þessari viku erum við að horfast í augu við afleiðingar mótmælaaðgerða okkar. Sakamálið á Íslandi verður loks tekið fyrir þann 22. janúar. Við vorum handteknar fyrir borgaralega óhlýðni, þar sem við mótmæltum friðsamlega hvalveiðum í atvinnuskyni.

Skoðun
Fréttamynd

Brutu stjórnsýslulög við út­gáfu hvalveiðileyfis

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða var ekki í samræmi við lög árið 2024. Þá var Bjarkey Olsen matvælaráðherra. Í áliti umboðsmanns segir að stjórnsýslulögum hafi ekki fylgt við meðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða.

Innlent
Fréttamynd

Vernd hvala er þjóðaröryggis­mál

Þann 22. janúar verður mál tveggja hafverndarkvenna, Anahita Babaei og Elissa Phillips, tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar verða þær ákærðar fyrir að klifra upp í mastur tveggja hvalveiðiskipa í september 2023 og koma tímabundið í veg fyrir dráp langreyða.

Skoðun
Fréttamynd

Ráð­herra telur enn tíma­bært að hætta hval­veiðum

Atvinnuvegaráðherra segist enn þeirrar skoðunar að tímabært sé að hætta hvalveiðum. Frumvarp um framtíð veiðanna verði þó líklega ekki lagt fram á þessu þingi líkt og til stóð. Málið sé umfangsmikið og vanda þurfi vel til verka.

Innlent
Fréttamynd

Magnús Guð­munds­son er látinn

Magnús Elías Guðmundsson, blaða- og kvikmyndagerðarmaður, er látinn 71 árs að aldri eftir erfið veikindi síðustu ár. Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Vildi kynnast Kristjáni en var í­trekað sagt að „fokka sér“

Sænskur fjárfestir sem styrkti gerð heimildarmyndar Davids Attenborough um hafið segir að Kristján Loftsson, hvalveiðimaður, hafi ausið yfir sig fúkyrðum á Umhverfisþingi í dag. Uppákoman hafi ekki verið stórmál en hins vegar taki hann svikabrigls Kristjáns um myndina alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Fimm af tíu veitinga­stöðum hættu með hval­kjöt

Við í Hvalavinum vernd hafsins höfum hafið nýja herferð sem miðar að því að fræða ferðamenn um hvali og lunda. Við viljum hvetja þá til að upplifa þessi stórkostlegu dýr í sínu náttúrulega umhverfi, en ekki á disknum.

Skoðun
Fréttamynd

Hvalur hf. stefnir ís­lenska ríkinu

Hvalur hf. hyggst höfða mál á hendur ríkinu til viðurkenningar bótaskyldu vegna þess tjóns sem félagið telur sig hafa beðið vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi matvælaráðherra, um að stöðva hvalveiðar tímabundið sumarið 2023.

Viðskipti innlent