Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Jakob Bjarnar skrifar 9. júlí 2026 11:01 Hanna Katrín velkist ekki í vafa um hvaða erindi þeir voru að reka sem máluðu íslenska fánann yfir fána inngildingar: „Það er sorglegt að horfa upp á (og hlusta á) fólk sem virðist vilja fela fánanum nýtt og ógeðfellt hlutverk. Gera hann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa í samfélaginu." vísir/Lýður/Vilhelm Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra blandar sér í umræðuna um íslenska fánann, sem hefur verið í deiglunni frá því að tveir ónefndir aðilar tóku sig til og máluðu hann yfir inngildingarfána sem hefur verið við tröppur Grafarvogskirkju.
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á lögreglustöð fjögur, hefur lýst því yfir að málið sé rannsakað sem hatursglæpur. Á upptöku úr eftirlitsmyndavélum sjáist tveir menn við verknaðinn en lögreglan getur ekki fullyrt hvort fleiri hafi komið að skemmdarverkinu. Nútíminn greindi frá því í morgun að sá sem segist bera ábyrgð á verkinu hafi „stigið fram“, sá sent frá sér nafnlausa yfirlýsingu þar sem hann segist meðal annars ekki bera hatur í brjósti í garð samkynhneigðra. En Hanna Katrín gefur ekkert fyrir það í örpistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni í morgun. „Íslenski fáninn hefur frá upphafi verið sameiningartákn þjóðar sem stendur fremst meðal jafningja þegar kemur að frelsi, jafnrétti og virðingu fyrir mannréttindum. Þannig verður það vonandi um ókomna tíð,“ segir Hanna Katrín í Facebook-status. En nú kveður við annan tón að mati ráðherrans. Hanna Katrín telur að nú vilji popúlistar og rasistar endurskilgreina hlutverk fánans: „Það er sorglegt að horfa upp á (og hlusta á) fólk sem virðist vilja fela fánanum nýtt og ógeðfellt hlutverk. Gera hann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa í samfélaginu. Við munum ekki leyfa því að gerast. Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð einn daginn að popúlistar og rasistar hafi náð að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans og hvað það þýðir að flagga honum.“ Hanna Katrín segir íslenska fánann okkar allra. „Og hinsegin fáninn er allra þeirra sem vilja leggja áherslu á að hinsegin fólk er öruggt og frjálst í samfélaginu okkar. Báðir fánarnir eru tákn samstöðu gegn sundrungu. Báðir fánarnir eiga sitt mikilvæga pláss. Látum engan segja okkur annað.“
Íslenski fáninn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hinsegin Þjóðkirkjan Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira