Mætti ekki í útför föður síns Agnar Már Másson skrifar 5. júlí 2026 19:49 Erfðaprinsinn var hvergi að sjá í „útför aldarinnar“, sem stendur þó enn yfir þessa vikuna. Samsett mynd Mojtaba Khamenei, sem tók nýlega við sem æðstiklerkur Írana, var hvergi að sjá í jarðarför föður síns, Ali Khamenei fyrrverandi æðstaklerks. Bræður hans mættu samt. Hann hefur verið í felum frá því að hann tók við sem æðstiklerkur eftir að Bandaríkjaher felldi föður hans í loftárás í lok febrúar.
Hinir þrír synir æðstaklerksins heitins, sem heita Masoud, Mostafa og Meysam, létu þó allir sjá sig í jarðarförinni sem haldin er í dag en stendur í raun yfir í viku að því er fram kemur í frétt Reuters um málið. Í frétt BBC segir að orðrómar hafi gengið á milli manna um heilsu Mojtaba, þar sem spurningar eru uppi um hvort hann hafi einnig særst í árásinni sem varð föður hans að bana. Ali Khamenei stýrði Íran frá 1989 þar til hann lést í febrúar. Opinber jarðarför hans hófst á föstudag og stendur yfir í viku og verða viðburðir tengdir útförinni haldnir víða um Íran og Írak. Írönsk stjórnvöld hafa sagt að tólf til tuttugu milljóna manns megi vænta á útfararathöfnina, sem þau hafa nefnt „útför aldarinnar“. Lík hans er geymt í helstu mosku Tehran en í kringum kistu leiðtogans eru kistur þeirra sem létust einnig í árásum Ísraela og Bandaríkjamanna. Að athöfnunum loknum verður Ayatollah jarðsettur í Imam Reza, grafhýsi áttunda imams sjía-íslams og mikilvægasta pílagrímastað Írans. Áfram verða haldnar athafnir í minningu hans í eitt ár eftir jarðsetninguna. Enn eru ekki komin formleg endalok eftir árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Samkvæmt umfjöllun BBC sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að írönsk yfirvöld gætu ekki beðið eftir því að undirrita vopnahléssamkomulag. „Við gáfum þeim frí í viku fyrir jarðarför því við erum svo almennileg,“ sagði Trump. Mojtaba, sonur Ayatollah, tók við stjórnartaumum landsins í kjölfar andláts föður hans. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við og segir BBC að spurningar séu uppi um heilsu hans.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Írak Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira