Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. júlí 2026 14:05 Ice Spice segir af og frá að hún hafi kysst Tobey Maguire í stjörnuteiti Michaels Rubin í vikunni. Slúðurmiðlar vestanhafs fóru á flug eftir að myndir náðust af leikaranum Tobey Maguire, sem er þekktastur fyrir að leika köngulóarmanninn, í nánum samskiptum við tónlistarkonuna Ice Spice í risapartýi Michaels Rubin í New York. Virtust þau vera að kyssast en í kjölfar fréttaflutnings af málinu hafnaði Ice Spice því og sagðist einungis hafa deilt rafrettu með leikaranum.
Viðskiptamaðurinn Michael Rubin heldur árlega svokallað „White Party“ sem mætti íslenska sem „Hvítþvegið teiti“ í Hamptons-höll sinni í New York en nafnið er dregið af því að gestirnir klæðast allir hvítu. Þangað mæta gjarnan stærstu tónlistarstjörnur Bandaríkjanna, leikarar, íþróttastjörnur og annað þotulið. Ice Spice, réttu nafni Isis Naija Gaston, og Maguire voru bæði gestir í veislunni í ár og náðust myndir af þeim tveimur í nánum samskiptum á svölum hússins. Á einni myndinni mátti sjá tónlistarkonuna halla sér alveg upp að andliti leikarans og töldu margir það sýna að þau væru þar í kossaflensi. Myndirnar má meðal annars sjá í umfjöllun Just Jared hér að neðan. Fréttirnar vöktu ekki síst athygli vegna aldursmunarins á milli þeirra, Gaston er 26 ára gömul en Maguire 51 árs og því kvartöld sem skilur þau að. En myndir eiga það til að blekkja og eftir að slúður- og dægurmálamiðlar vestanhafs slógu upp fregnum af kossinum hefur Ice Spice hafnað því algjörlega. Talsmaður Ice Spice tjáði sig við útvarpsþáttinn The Breakfast Club og sagði sjónarhorn myndarinnar vera blekkjandi. Þau hefðu einungis verið að spjalla saman og hún hefði hallað sér upp að honum til að deila rafrettu. Tobey er Íslandsvinur og kom til landsins fyrir tveimur árum.Getty Maguire hefur undanfarið verið orðaður við enn yngri konu en Ice Spice, tvítugu fyrirsætuna Mishku Silva en þau sáust saman á Ofurskálinni í febrúar. Maguire var þar áður í þriggja ára sambandi við fyrirsætuna Tatiönu Dieteman frá 2018 til 2021 en sautján ára aldursmunur er á þeim. Fyrir það var Maguire í níu ára hjónabandi með skartgripahönnuðinum Jennifer Meyer sem hann á tvö börn með. Sambandssaga Ice Spice, sem sló fyrst í gegn með laginu „Munch“ sumarið 2022, er ekki eins opinber og Maguire en hún deitaði NFL-leikmanninn Sauce Gardner um tíma, Stranger Things-leikarann Caleb McLaughlin og tónlistarpródúsentinn Riot USA. Tónlistarkonan hefur þó haldið þeim samböndum utan sviðsljóssins og ekki viljað tjá sig um sitt persónulega líf.
Hollywood Bandaríkin Samkvæmislífið Tónlist Bíó og sjónvarp Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira