„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 09:07 Ásgeir Erlendsson segir Landhelgisgæsluna hafa undirbúið sig undir komu Paul Watson frá því í maí. Vísir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu.
Þetta er meðal þess sem fram kom í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Líkt og fram hefur komið lét varðskipið Þór úr höfn í gær og sigldi á slóðir Bandero. Menn frá sérsveit ríkislögreglustjóra eru um borð í varðskipinu og fylgir Þór skipinu nú eftir. Paul Watson hefur heitið því að stöðva hvalveiðar Íslendinga en sá ber ábyrgð á því að sökkva tveimur skipum Hvals árið 1986. „Þetta er mál sem er búið að eiga sér töluverðan aðdraganda. Í maí fóru að berast þessar hótanir Paul Watson í garð þessara hvalveiðiskipa á samfélagsmiðlum og þegar í stað var því tekið alvarlega. Gæslan hafði samband og er búin að vera í sambandi við Embætti ríkislögreglustjóra og sömuleiðis hefur dómsmálaráðuneytið verið upplýst. Auðvitað þegar það eru hótanir í þessa veru sem við túlkum að séu alvarlegar þá er brugðist við af fullum þunga. Strax var farið í að skipuleggja okkar aðgerðir og hvað hugsanlega yrði gert.“ Þið hafið frá því í maí teiknað upp allskonar sviðsmyndir? „Já. Og auðvitað er það þannig að það er eitt af meginhlutverkum Landhelgisgæslunnar að tryggja öryggi á hafssvæðinu. Og telji Landhelgisgæslan að öryggi sjófarenda sé ógnað með einhverjum hætti þá bregðumst við við, það er okkar skylda og það er það sem við munum gera.“ Þegar þú segir aðgerðir, hvað væri það versta sem gæti gerst í þessari stöðu? Undir hvað eruð þið að búa ykkur undir í verstu sviðsmyndinni? „Það sem er alvarlegast er ef að lífi og heilsu fólks á hafinu er ógnað, þess vegna er meginmarkmið gæslunnar þegar kemur að þessu öryggi. Þá er ég ekki bara að tala um öryggi áhafna hvalveiðiskipanna, heldur sömuleiðis öryggi þeirra sem eru um borð í Bandero, þar eru um borð 27 manns og að auki öryggi áhafnar gæslunnar. Það er meginstefið, það skiptir öllu máli að tryggja það, því við viljum ekki að því sé ógnað á neinn hátt.“ Ásgeir segir Landhelgisgæsluna hafa fylgst með skipinu frá því það kom inn í íslenska efnahagslögsögu. Eftirlitsflugvél gæslunnar TF-SIF hafi í tvígang flogið yfir skipið. Óskað hafi verið eftir því að skipið myndi kveikja á sjálfvirkum staðsetningarbúnaði en fyrstu svör hafi verið þau að sá búnaður væri bilaður. „Við óskuðum þá eftir því að skipið myndi senda okkur staðsetninguna með tölvupósti. Efitr að TF-SIF var farið yfir í annað sinn þá fóru þessar upplýsingar að berast. Það er kannski mikilvægast varðandi staðsetninguna er að þar einmitt viljum við tryggja öryggi þessarar áhafnar. Þarna eru 27 um borð, bara þannig að gæslan viti hverju sinni hvar þetta skip er statt, það eru náttúrulega bara alþjóðareglur sem kveða á um það að þetta skip eigi að vera með kveikt á þessum búnaði einmitt til þess að það sé hægt að bregðast við ef að eitthvað kemur upp á, þannig gæslan viti nákvæmlega hvar það er ef það þarf að senda út bjargir.“ Ásgeir segir kostnað af aðgerðunum óverulegan þegar horft sé á heildarmyndina. Um sé að ræða hluta af venjubundnum störfum gæslunnar. Hann segir nítján allajafna um borð í Þór, nú séu til viðbótar áðurnefndir sérsveitarmenn. „Þór kom að Bandero, eða í grennd við Bandero í gær og fylgir skipinu eftir og auðvitað veit Landhelgisgæslan ekki hvert skipið ætlar að sigla en auðvitað er það þannig að ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því og það er búið að teikna upp slíkar sviðsmyndir. Það skiptir máli að við tryggjum öryggi þessa fólks.“ Við getum ekkert farið út í sviðsmyndirnar? „Nei og það auðvitað bara fer eftir því hvað gerist. Það er bara okkar hlutverk að sinna þessari löggæslu og tryggja öryggi.“ Segir sitt skip hraðara Mögulegar aðgerðir Watson við Íslandsstrendur hafa vakið töluverða athygli erlendis. Þannig ræðir bandaríska sjónvarpsstöðin CNN við aðgerðarsinnann. „Markmið okkar er að binda enda á starfsemi þeirra,“ segir Watson meðal annars við sjónvarpsstöðina. Hann þrætir fyrir það að aðgerðir sínar setji fólk iðulega í hættu. „Skipið okkar er hraðskreiðara en skipin þeirra, auðveldara í stjórn, ég hef fimmtíu ára reynslu af því að trufla hvalveiðar.“ View this post on Instagram A post shared by CNN (@cnn)
Bítið Landhelgisgæslan Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira