Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Agnar Már Másson skrifar 6. júní 2026 18:54 Frá 15. apríl er ólöglegt að aka um á nagladekkjum. Hálfur annar mánuður er liðinn síðan þá. Vísir/Vilhelm Tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu voru í dag kærðir fyrir að aka bifreið á nagladekkjum. Samkvæmt lögum er óheimilt að aka á nagladekkjum frá og með 15. apríl hvert ár innanbæjar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Annað brotið er bókfært undir lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, og hitt undir lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti. Ararúi umferðarlagabrota Þar er enn fremur greint frá afskiptum lögreglu af fjölda umferðarlagabrota í dag í dagbók lögreglu. Á lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í miðborginni segir að nokkrir ökumenn hafi verið kærðir fyrir umferðarlagabrot, þar á meðal tveir kærðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi, einn kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum, einn kærður fyrir að aka án gildra ökuréttinda og einn kærður fyrir að aka með filmur í framrúðum. Ók á vegrið Á lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, er greint frá tveimur ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá er greint frá tveimur ökumönnum sem óku án ökuréttinda; annar þeirra hafi ekið án þess að endurnýja ökuréttindi en hafi aldrei öðlast ökuréttindi. Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, greinir frá því að ökumaður hafi verið handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Tveir hafi verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Einn ökumaður hefur ekið á vegrið, en engin slys orðið á fólki. Tilkynnt um konu í annarlegu ástandi á bifreið. Lögreglumenn gáfu sig á tal við konuna og reyndist hún vera á stolinni bifreið. Konan handtekin og vistuð í fangaklefa. Laus að skýrslutöku lokinni. Slys á hopphjóli: Grunaður um að vera fullur Á lögreglustöð 4, sem sinnir verkefnum austan Elliðaáa, var tilkynnt um slys á hopphlaupahjóli. Hjólreiðamaðurinn hafi verið grunaður um að vera undir áhrifum áfengis og tekinn í blóðsýnatöku. Auk þess var einn ökumaður handtekinn og fluttur á lögreglustöð grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Nagladekk Lögreglumál Umferðaröryggi Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira