Íranar gera árásir á Kúvæt og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. júní 2026 07:01 Hermenn standa við árásarbát sem var til sýnis á fjöldafundi til stuðnings stjórnvöldum í Tehran á laugardag. AP/Vahid Salemi Yfirvöld í Kúvæt greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina.
Yfirvöld í Kúvæt greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina. Um er að ræða þriðja skiptið sem brotið er gegn gildandi vopnahléi Bandaríkjanna og Íran en Bandaríkjamenn segja um varnaraðgerða að ræða og vísa meðal annars til þess að Íranir hafi skotið niður bandarískan MQ-1 dróna sem var á flugi yfir alþjóðlegu hafsvæði. Byltingavörðurinn í Íran sagðist í morgun hafa svarað aðgerðum Bandaríkjanna með árás á herstöð þaðan sem Bandaríkjamenn gerðu sínar árasir. Íranir segja MQ-1 drónana hafa verið yfir þeirra hafsvæði. Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því enn og aftur fram í morgun að Íranir væru mjög áfram um að komast að samkomulagi um varanlegt vopnahlé. Stjórnvöld vestanhafs hafa ítrekað lýst því yfir að samningar séu svo gott sem í höfn. Viðræður standa enn yfir og varða meðal annars hvað á að vera við birgðir Írana af auðguðu úrani. Olíuverð hækkaði um tvö prósent á mörkuðum í Asíu í morgun. Ísraelar taka Beaufort-kastala Stjórnvöld í Frakklandi hafa óskað eftir neyðarfundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eftir að Ísraelar tóku yfir Beaufort-kastala í Líbanon og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hét því að fara enn lengra inn í landið. Beaufort-kastali hefur verið notaður af ýmsum herjum í gegnum aldirnar.AP/Ariel Schalit Beaufort-kastali, sem er frá miðöldum, er norðan við þá línu sem Ísraelar höfðu áður markað samsíða ánni Litani sem nokkurs konar miðmið þegar íbúar í suðurhluta Líbanon voru hvattir til að flýja heimili sín. Ísraelar notuðu kastalann sem herstöð þegar hernám þeirra á svæðinu stóð yfir fyrir aldamót. Netanyahu sagði í yfirlýsingu að Ísraelar hefðu nú snúið aftur, „sameinaðir, staðfastir og sterkari en nokkru sinni fyrr“. Stjórnvöld í Ísrael segja aðgerðirnar miða að því að uppræta Hezbollah-samtökin en Nawaf Salam, forsætisráðherra Líbanon, hefur sakað Ísraelsher um að rústa borgum og bæjum. Milljónir hafa flúið heimili sín í landinu og um 3.300 verið drepnir, þeirra á meðal tugir barna. Sókn Ísraela dýpra inn í landið hefur verið fordæmd af leiðtogum í Evrópu.
Íran Ísrael Líbanon Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Innlent Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Innlent „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Innlent Íranar gera árásir á Kúvæt og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Erlent Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Innlent Fleiri fréttir Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúvæt og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Sjá meira