Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. júní 2026 07:01 Hermenn standa við árásarbát sem var til sýnis á fjöldafundi til stuðnings stjórnvöldum í Tehran á laugardag. AP/Vahid Salemi Yfirvöld í Kúveit greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina.
Um er að ræða þriðja skiptið sem brotið er gegn gildandi vopnahléi Bandaríkjanna og Íran en Bandaríkjamenn segja um varnaraðgerða að ræða og vísa meðal annars til þess að Íranir hafi skotið niður bandarískan MQ-1 dróna sem var á flugi yfir alþjóðlegu hafsvæði. Byltingavörðurinn í Íran sagðist í morgun hafa svarað aðgerðum Bandaríkjanna með árás á herstöð þaðan sem Bandaríkjamenn gerðu sínar árasir. Íranir segja MQ-1 drónana hafa verið yfir þeirra hafsvæði. Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því enn og aftur fram í morgun að Íranir væru mjög áfram um að komast að samkomulagi um varanlegt vopnahlé. Stjórnvöld vestanhafs hafa ítrekað lýst því yfir að samningar séu svo gott sem í höfn. Viðræður standa enn yfir og varða meðal annars hvað á að vera við birgðir Írana af auðguðu úrani. Olíuverð hækkaði um tvö prósent á mörkuðum í Asíu í morgun. Ísraelar taka Beaufort-kastala Stjórnvöld í Frakklandi hafa óskað eftir neyðarfundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eftir að Ísraelar tóku yfir Beaufort-kastala í Líbanon og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hét því að fara enn lengra inn í landið. Beaufort-kastali hefur verið notaður af ýmsum herjum í gegnum aldirnar.AP/Ariel Schalit Beaufort-kastali, sem er frá miðöldum, er norðan við þá línu sem Ísraelar höfðu áður markað samsíða ánni Litani sem nokkurs konar miðmið þegar íbúar í suðurhluta Líbanon voru hvattir til að flýja heimili sín. Ísraelar notuðu kastalann sem herstöð þegar hernám þeirra á svæðinu stóð yfir fyrir aldamót. Netanyahu sagði í yfirlýsingu að Ísraelar hefðu nú snúið aftur, „sameinaðir, staðfastir og sterkari en nokkru sinni fyrr“. Stjórnvöld í Ísrael segja aðgerðirnar miða að því að uppræta Hezbollah-samtökin en Nawaf Salam, forsætisráðherra Líbanon, hefur sakað Ísraelsher um að rústa borgum og bæjum. Milljónir hafa flúið heimili sín í landinu og um 3.300 verið drepnir, þeirra á meðal tugir barna. Sókn Ísraela dýpra inn í landið hefur verið fordæmd af leiðtogum í Evrópu.
Íran Ísrael Líbanon Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Kúveit Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira