Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2026 14:23 Hermenn standa vörð Suður-Kóreumegin við landamærin á sameiginlegu öryggissvæði ríkjanna við friðarþorpið svokallaða, í Panmunjom. Getty/Soeren Stache, DPA Ráðamenn í Suður-Kóreu heita hörðum viðbrögðum standi einræðisstjórn Norður-Kóreu við þær hótanir að auka viðbúnað á landamærum ríkjanna. Aukin spenna er á Kóreuskaga eftir að hermenn frá Suður-Kóreu særðust alvarlega vegna jarðsprengja sem Suður-Kóreumenn segja að hafi verið komið fyrir af hermönnum frá Norður-Kóreu.
Eftir að Suður-Kóreumenn sökuðu Norður-Kóreu um að bera ábyrgð á jarðsprengjunum, sem er brot gegn vopnahléssamkomulagi ríkjanna, sendi Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, út yfirlýsingu þar sem hún sparaði ekki stóru orðin. Meðal annars kallaði hún ráðamenn í Suður-Kóreu glæpamenn og kvartaði yfir því að hermenn Suður-Kóreu hefðu ítrekað skotið aðvörunarskotum nærri hermönnum Norður-Kóreu. Þá sagði hún að verið væri að skoða að auka viðbúnað á landamærunum og bæta árásagetu þar. Auk þess yrði mögulega byrjað að básúna aftur áróður yfir landamærin með stórum hátölurum. Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir að viðvörunarskot til að vara hermenn frá Norður-Kóreu við því að fara inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og þvinga þá sem hafa farið inn á það til að snúa við, séu lögmæt varnarviðbrögð. „Ef Norður-Kórea notar lögmætar ráðstafanir okkar sem yfirskin fyrir frekari ögranir munum við refsa henni af fullri hörku,“ sagði ráðuneytið, samkvæmt frétt Reuters. Enn frekar voru Norður-Kóreumenn hvattir til að hætta grunnlausum kröfum sínum, hætta að senda hermenn inn á hlutlausa svæðið milli ríkjanna og að opna aftur á uppbyggileg samskipti ríkjanna á milli. Ráðuneytið fordæmdi einnig ummæli Kim You Jong og sagði þau til þess fallin að auka spennuna milli ríkjanna enn frekar. Sagði hermönnum að bregðast við ögrunum af festu Yonhap-fréttaveitan segir að Jin Young Sung, formaður herforingjaráðs Suður-Kóreu, hafi í morgun heimsótt hersveit á landamærunum. Þar sagði hann hermönnum að bregðast af festu við hvers kyns ögrunum Norður-Kóreumanna. Þá sagði hann stjórnendum á svæðinu að auka viðbragðsstig við hlutlausa svæðið. Talsmaður ráðuneytisins vildi ekki útskýra nánar hvað fælist í því í samtali við blaðamenn í dag. Hermaður stendur vörð í Norður-Kóreu og fylgist með hlutlausa svæðinu. Suður-Kóreumenn segja að hermenn frá Norður-Kóreu hafi farið um fimmtíu sinnum inn á svæðið eða yfir það.AP/Ahn Young-joon Heimildarmaður Yonhap segir þó að meðal annars geti þessi skipun falið í sér að bæta slóða og vegi til að auðvelda hermönnum að bregðast við ef eitthvað gerist á svæðinu. Þá geti einnig staðið til að bæta eftirlit með hlutlausa svæðinu með því að setja upp eftirlitsstöðvar og myndavélar. Samskipti Norður- og Suður-Kóreu þykja ekki góð um þessar mundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, um að bæta þau samskipti. Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu. Yfirvöld í Suður-Kóreu segja að allt að sjö þúsund verkamenn hafi verið sendir að landamærunum á þessu ári, þar sem þeir hafa unnið við að víggirða þau frekar. Þá hafa Suður-Kóreumenn greint um fimmtíu tilfelli þar sem hermenn frá Norður-Kóreu hafa farið inn á og jafnvel yfir hlutlausa svæðið.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Sjá meira