Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. maí 2026 07:41 Bessent kynnti hönnun seðilsins í Hvíta húsinu í gær. Getty/Tom Williams Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, greindi frá því í gær að starfsmenn ráðuneytisins hefðu unnið að undirbúningi nýs 250 dollara seðils sem skartar mynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Breyta þarf lögum ef stjórnvöld hyggjast gefa út seðilinn, þar sem þau kveða á um að aðeins látnir einstaklingar geti prýtt gjaldmiðilinn. Trump hefur einnig þrýst á að fá andlitsmynd sína á eins dollara mynt og þá verður undirskrift hans sett á alla seðla síðar á þessu ári. Eins og þekkt er orðið virðist forsetinn afar upptekinn af því að tryggja arfleifð sína en hann hefur verið iðinn við að koma nafni sínu og ásýnd á byggingar og ýmis konar útgefið efni, auk þess að gylla sem flest í nærumhverfi sínu. „Mér finnst það ekki óviðeigandi að manneskjan sem nú er forseti Bandaríkjanna prýði 250 ára afmælisseðilinn,“ sagði Bessent í gær. Ákvörðunin hefur hins vegar þegar verið gagnrýnd af Demókrötum og þykir ekki líkleg til að auka á vinsældir Trump. „Ef þetta Hvíta húss eyddi bara helmingi þeirrar orku sem hún ver í að koma til móts við egó forsetans í að lækka útgjöld, þá þyrftu bandarískar fjölskyldur ekki að nota þennan 250 dollara seðil til að geta fyllt á bílinn sinn,“ sagði Mark Warner, öldungadeildarþingmaður frá Virginíu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira