Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Lovísa Arnardóttir skrifar 28. apríl 2026 08:27 Logi fundaði með Apple og Spotify. Vísir/Ívar Fannar Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði í síðustu viku með fulltrúum Apple í Lundúnum og óskaði eftir því að íslenska verði hluti af iOs-stýrikerfi Apple. Logi fundaði í sömu viku með stjórnendum Spotify og óskaði eftir því að íslensk tónlist yrði kynnt betur á streymisveitunni.
Á fundinum sýndi Logi myndband með kveðjum frá íslenskum listamönnum sem hafa unnið með Apple þar sem þeir lýstu yfir mikilvægi íslenskrar tungu auk þess sem hann afhenti þeim áskorun frá ÖBÍ um aðgengisáskoranir fatlaðra. „Tilgangurinn var að ná fundi með Apple til að ræða íslenskuna í tækniheimi,“ segir Logi um myndbandið, en hann var til viðtals um þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Myndbandið kostaði um eina milljón að sögn ráðherra. Hann segir mörg önnur kerfi eins og Android og OpenAi þegar taka íslensku í sín kerfi en Apple hafi ekki gert það. Það sé bagalegt, sérstaklega í ljósi þess hversu margir eiga iPhone og nýta sér tækni þeirra á Íslandi. Bagalegt að stoðtækni virki ekki á íslensku Hann segir fyrirtækið einnig hafa verið leiðandi í ýmsum stoðlausnum fyrir fólk sem glímir við fötlun eða fólk með heilabilun og tækin nýtist ekki Íslendingum á meðan viðmótin, raddstýring og annað, eru ekki á íslensku. Logi segir afar bagalegt að fólk geti ekki nýtt þessa tækni aðeins vegna tungumálaörðugleika og stjórnendurnir sem þau hittu hjá Apple hafi tekið vel í þeirra ábendingar um það og áskorun ÖBÍ. „Apple hefur gjarnan hrósað sér fyrir það að vilja ná til allra og að inngilding allra hópa sé rauður þráður hjá þeim, og við vildum bara banka upp á hjá þeim og ræða við þau hvaða skref við gætum tekið saman, því að þau þurfa ekki að byrja á núlli,“ segir hann og að síðustu ár hafi verið unnin góð vinna við að safna íslenskum gögnum sem geti legið til grundvallar þessari þróun. Hann segir að eftir fundinn hafi hver „farið til síns heima“ og ætli að hugsa hvað hver geti gert svo þetta geti orðið að veruleika. Svo ætli þau að heyrast aftur. Hann segir að með myndbandi sem var gert hafi verið tilgangurinn að hreyfa við tilfinningum og Logi telur að það hafi tekist. Myndbandið hafi hreyft við þeim og þeim hafi þótt það „krúttlegt“. Þau hafi í framhaldi rætt önnur verkefni með Íslendingum sem hafi lukkast vel. „Á endanum gerir það það, en auðvitað er þetta bara stöðug vinna að nudda,“ segir hann um það hvort hann hafi trú á því að ferðin beri árangur. Það sé samt alls ekki þannig að fólk í fyrirtækjum um allan heim sitji og rýni í kort og bendi á Ísland. Það sé nauðsynlegt fyrir Ísland að minna á sig. Hann telur kostnaðinn við það að innleiða íslensku í stýrikerfið ekki mikinn þegar litið er til heildarkostnaðar fyrirtækisins en það sé í mörg horn að líta og mörg tungumál og hópar hafi verið afskipt. „Þetta er gríðarlega mikilvægt líka því við erum að sigla inn í tæknibyltingu sem við áttum okkur lítið á hvert mun leiða okkur og ef við ætlum að vera fullgildir meðlimir þar, ef við ætlum að koma okkur upp gervigreindarfullveldi þar sem við getum tryggt okkar gögn í þessum stafræna heimi… þá verðum við einfaldlega að búa til íslenskt risamállíkan,“ segir Logi. Lilja D. Alfreðsdóttir fór í svipaða ferð sem menningarráðherra og fékk það til dæmis í gegn að íslensk talsetning er inni á Disney streymisveitunni. Logi segir að það sé verið að halda áfram þessari góðu vinnu með þessari ferð. Verkefnið sé á ábyrgð Almannaróms og þau hafi verið með á fundinum vegna dýpri þekkingar sinnar. Hann segir ekki vera að ræða það núna hvort það eigi að leggja peninga í verkefnið heldur aðeins verið að vekja áhuga Apple á verkefninu. Hann segir fólk meðvitað um mikilvægi Íslendinga og menningararfs okkar. Flugu einnig til Svíþjóðar Logi segir að í sömu ferð hafi einnig verið flogið yfir til Svíþjóðar og rætt við Spotify sem hafi íslenskt viðmót en það hafi skort að það sé horft til Íslands og íslensks markaðar þegar komi að því að hvetja til hlustunar á íslenskri tónlist. Hann segir þeim hafa verið vel tekið þar en þau hafi ekki fengið svör. Logi ræddi einnig stuttlega um gervigreind og sagði ríkisstjórnina vinna að því að búa til íslenskt mállíkan og að því að tryggja aðgengi að því og færni fólks.
Íslensk tunga Apple Tækni Gervigreind Bítið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Disney Bíó og sjónvarp Menning Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira