Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Kjartan Kjartansson skrifar 7. apríl 2026 14:44 Donald Trump hefur átt í digurbarkalegum hótunum í garð Írana að undanförnu. Nýjasta færsla hans færir þær hótanir upp á enn alvarlegra stig. AP/Alex Brandon Bandaríkjaforseti virðist hóta kjarnorkustríði á hendur Íran í vanstilltri færslu á samfélagsmiðli. Þar fullyrðir hann að „heil siðmenning deyi út í nótt“. Hótunin tengist fresti sem forsetinn gaf Írönum að opna Hormússund og hann hefur ítrekað framlengt. „
Heil siðmenning deyr í nótt og verður aldrei endurreist. Ég vil ekki að það gerist en það gerir það líklega,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti á eigin samfélagsmiðil í dag. Skjáskot af samfélagsmiðlafærslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann hótaði Írönum gereyðingu.Skjáskot Frestur sem Trump gaf Írönum til þess að semja við Bandaríkjastjórn og Ísraela eða opna Hormússund fyrir skipaflutningum á að renna út í kvöld. Trump hefur ítrekað hótað Írönum alls kyns stríðsglæpum verði þeir ekki við kröfum hans, þar á meðal að sprengja upp orkuinnviði, brýr og afsöltunarstöðvar vatns. Upphaflega lagði Trump afarkosti sína fram 21. mars og gaf Írönum tvo sólarhringa. Hann hefur framlengt frestan endurtekið síðan. Um páskahelgina jós Trump fúkyrðum yfir Írani í samfélagsmiðlafærslu og skipaði þeim að opna „helvítis sundið, klikkuðu bastarðar eða þið lendið í helvíti“. Í gær sagði hann svo að hann gæti „tekið út“ Íran eins og það legði sig á einni nóttu og það gæti verið næstu nótt. Í færslunni í dag virtist Trump stilla mögulegri gereyðingu írönsku þjóðarinnar sem raunveruleikaþætti. Nú væri komin til valda í Íran ný stjórnvöld sem væru ekki eins róttækt og fyrri stjórn Ali Khamenei æðstaklerks sem Bandaríkjamenn myrtu. „Kannski gerist eitthvað byltingarkennt dásamlegt, HVER VEIT? Við komumst að því í nótt, á einu miklvægasta augnabliki í langri og flókinni sögu heimsins,“ skrifar forsetinn. Stríðið sem er ekki stríð Óljóst er hvort hótunin um eyðingu siðmenningar í dag sé innantóm líkt og fyrir hótanir forsetans en hann og fulltrúar hans hafa talað þvers og kruss um stöðuna á hernaðaraðgerðum hans og Ísraela. Trump hefur ýmist sagt hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna í Íran vera í þann veginn að ljúka og hótað Írönum gereyðingu. Hann hefur talað um að markmið aðgerðanna hafi verið að koma klerkastjórninni frá völdum en aðrir talsmenn ríkisstjórnarinnar sagt að það hafi ekki verið tilgangurinn. Kjarnorkuáætlun Írana hefur einnig verið nefnd sem réttlæting fyrir aðgerðunum nú þó að Trump hafi sagt að henni hafi algerlega verið rústað í árásum Bandaríkja- og Ísraelshers í fyrra. Þeir hafa heldur ekki talað einu máli um hvort að árásirnar á Írani teljist stríð eða „sérstök hernaðaraðgerð“. Einn talpunkta Trump og félaga er að árásirnar séu liður í stríði en að það hafi ekki verið þeir sem hófu það heldur íranska klerkastjórnin og að það hafi hafist strax þegar hún komst til valda fyrir 47 árum. Þá hafa sumir repúblikanar talað um að það að senda bandaríska hermenn á íranska grundu jafngilti því ekki í raun að senda bandaríska hermenn á íranska grundu.
Bandaríkin Íran Ísrael Hernaður Kjarnorkuvopn Kjarnorka Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Sjá meira