Gefur skít í helvítishótanir Trumps Agnar Már Másson skrifar 4. apríl 2026 22:10 Trump hét því að allt færi til fjandans í Íran ef Íranir samþykktu ekki kröfur Bandaríkjamanna. Íranir gefa lítið fyrir þær hótanir. WikipediaCommons/AP Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa.
Katarski ríkismiðillinn Al Jazeera hefur upp úr yfirlýsingu frá íranska hershöfðingjanum Ali Abdollahi Aliabadi að hótun Trumps bæri merki um „ráðaleysi, taugaveiklun, óstöðugleika og heimsku“. Vísaði hann þar til ummæla Trump þess efnis að Íranir hefðu „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“. Íraninn tekur í sama streng og svarar Bandaríkjamönnum á þá vegu að „hlið heljar muni opnast ykkur“. Trump hótaði Írönum helvíti á jörðu ef þeir yrðu ekki við kröfum Bandaríkjamanna innan við 48 stundir.AP Trump vísar meðal annars til þess að Bandaríkin hyggjast gera árás á orkuinnviði Írana ef samkomulag næst ekki á mánudag. Hann hefur hótað þessu áður á síðustu mánuðum og framlengt þennan frest tvisvar. Hann framlengdi hann síðast um tíu daga hinn 27. mars með vísan til þess að árangur hefði náðst í viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Segir fjölda hershöfðingja fellda í árás Á níunda tímanum í kvöld að íslenskum tíma birti Bandaríkjaforsetinn svo myndefni á samfélagsmiðlum þar sem sjá mátti sprengingar úr fjarlægð. Myndefnið hefur ekki verið staðfest og ekki heldur ummælin sem fylgja færslunni þar sem Trump hélt því fram að fjöldi háttsettra íranskra hershöfðingja hefðu verið felldir í téðri árás. Ekki er ljóst hvar eða hvenær myndskeiðið er tekið upp. Many of Iran’s Military Leaders, who have led them poorly and unwisely, are terminated, along with much else, with this massive strike in Tehran! President DONALD J. TRUMP(TS: 04 Apr 16:37 ET)… pic.twitter.com/tD59eIoVVY— Commentary: Trump Truth Social Posts On X (@TrumpTruthOnX) April 4, 2026 Keppast um að finna týndan flugmann Á sama tíma hefur Bandaríkjaher staðið í ströngu við að leita að týndum flughermanni sem kastaði sér út úr orrustuþotu í gær þegar hún var skotin niður á flugi yfir Íran. Íranir reyna einnig að hafa hendur í hári flugmannsins og hafa jafnvel boðið fundarlaun. Önnur bandarísk herflugvél var svo skotin niður yfir Persaflóa í gær en flugmaðurinn komst af heill á húfi. Þá varð leitarþyrla á vegum Bandaríkjahers fyrir skothríð frá jörðu niðri í Íran í gær en flugmenn náðu að koma sér undan. Trump og Hvíta húsið hafa lítið tjáð sig um týnda flugmanninn og í samtali við Independent í gær neitaði forsetinn að segja til um hver viðbrögð hans yrðu ef íranskar hersveitir næðu til flugmannsins. „Við vonum að það muni ekki gerast,“ sagði Trump í gær. New York Times greinir frá því að áhyggjur séu uppi um að Íranir reyni að nýta sér flughermanninn sem skiptimynt við samningaborðið, ef þeim tækist að handsama hann. Árás við kjarnorkuver Mannvirki í nágrenni við kjarnorkuverið í Bushehr í Íran urðu svo einnig fyrir loftárás í dag og segja írönsk kjarnorkuyfirvöld að starfsmaður orkuversins hafi látið lífið í árásinni. Íranir kenna Ísrael og Bandaríkjunum um árásina. Bushehr kjarnorkuverið.Google Maps Orkuverið er eina starfandi kjarnorkuver í landinu og var byggt með aðstoð rússneskra stjórnvalda, að því er BBC greinir frá. Alþjóðakjarnorkustofnunin lýsti miklum áhyggjum af árásinni í yfirlýsingu en sagði þó að engar tilkynningar um aukna geislavirkni á svæðinu hefðu borist. Íranir hafa einnig haldið áfram árásum sínum á Persaflóaríkin og Írak og Ísrael.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Donald Trump Ísrael Bandaríkin Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Fleiri fréttir „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Lokatölur í Garðabæ: Sjálfstæðismenn bæta við sig fulltrúa Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Sjá meira