Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. mars 2026 20:40 Breska herstöðin Diego Garcia er á Chagos-eyjum í um fjögur þúsund kílómetra fjarlægð frá Teheran. AP Íranir skutu tveimur eldflaugum að sameiginlegri herstöð Bretlands og Bandaríkjanna á Chagos-eyjum í Indlandshafi í dag. Önnur eldflaugin var skotin niður af Bandaríkjaher en hin hrapaði vegna bilunar.
Árásirnar voru gerðar skömmu eftir að Íranir sögðu líf Breta í hættu eftir að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hvatti Donald Trump Bandaríkjaforseta til að bæta í árásir á Íran. Bandaríkjaher hefur ásamt Ísraelsher gert umfangsmiklar árásir á íranska hernaðar- og kjarnorkuinnviði auk annarra skotmarka undanfarnar fjórar vikur og Íran svarað með hefndarárásum, meðal annars á Ísrael, Hormússund og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Starmer hunsi eigin þjóð Varnarmálaráðuneyti Bretlands lýsti árásinni á herstöðina sem minni háttar en engu að síður gáleysislegri í yfirlýsingu. Íranir haldi Hormússundi í gíslingu með árásum sínum, sem ógni breskum hagsmunum og bandamönnum. Diego Garcia-herstöðin á Chagos-eyjum er í um fjögur þúsund kílómetra fjarlægð frá Íran. Wall Street Journal hefur eftir heimildum að Bandaríkjaher hafi skotið aðra eldflaugina niður en hin hafi hrapað vegna bilunar. Síðdegis í gær veittu ráðherrar Bretlands Bandaríkjaher leyfi til að gera loftárásir á þær eldflaugastöðvar í Íran sem beindu árásum sínum að Hormússundi, frá breskum herstöðvum, þar á meðal Diego Garcia. Áður var herstöðin einungis notuð til að vernda hagsmuni Breta í Persaflóa. Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran sagði í færslu á X að Íranir kæmu til með að beita rétti sínum til sjálfsvarnar og að yfirgnæfandi meirihluti Breta vildi ekki blanda sér í stríðið. „Starmer er að leggja líf Breta í hættu með því að hunsa eigin þjóð og heimila árásir gegn Íran á eigin herstöðvum,“ skrifaði Araghchi. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði aftur á móti að Bretar hefðu mátt bregðast mun skjótar við. Hann hefur þegar sakað bandamenn sína í Nató um heigulshátt fyrir að neita að bjóða fram aðstoð í stríðinu. Hótaði auknum árásum eftir árás á leikskóla Umfangsmiklar loftárásir voru gerðar á Teheran í nótt og í morgun, meðan þúsundir söfnuðust saman við moskur til að fagna lokum Ramadan. Israel Katz varnarmálaráðherra Ísraels sagði í dag að aukin harka myndi færast í árásir á Íran í komandi viku. Yfirlýsingin kom skömmu eftir að fréttir af loftárás á leikskóla í Tel Aviv bárust. Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa gefið misvísandi skýringar á stríðinu en annars vegar hafa þeir sagt tilganginn að koma af stað uppreisn í landinu til að steypa klerkastjórninni af stóli og hins vegar að hindra kjarnorkuáætlun Írana. Þar sem fjölmiðlafrelsi er ekkert og aðgangur að netinu í Íran takmarkað er margt á huldu í tengslum við ástandið í Íran. Ekki liggur fyrir hve mikið hefur eyðilagst í árásunum og tala látinna er á miklu reiki.
Bretland Íran Bandaríkin Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira