Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2026 11:51 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu. Úkraínumenn haffa byggt upp lagaskipt varnarkerfi gegn sjálfsprengidrónum sem gengur út að granda drónunum með eins ódýrum hætti og hægt er. Þetta er þekking sem ríki Mið-Austurlanda vilja öðlast. AP/Andreea Alexandru Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn þurfa peninga og tækni frá Mið-Austurlöndum í skiptum fyrir tæknilega aðstoð og þekkingu hvað varðar varnir gegn írönskum sjálfsprengidrónum. Þrjú teymi úkraínskra sérfræðinga hafa verið send til Mið-Austurlanda til að aðstoða hermenn og ráðleggja þeim varðandi hvernig best sé að verjast drónunum, sem Úkraínumenn hafa verið að verjast um árabil.
Herir Mið-Austurlanda hafa ítrekað notað mjög dýr flugskeyti úr háþróuðum loftvarnarkerfum sem hönnuð eru til að skjóta niður skotflaugar og herþotur til að granda tiltölulega ódýrum írönskum sjálfsprengidrónum. Íranar hafa flogið þessum drónum að ýmsum skotmörkum víðsvegar um Mið-Austurlönd á undanförnum tveimur vikum. Írönsku drónarnir kallast Shahed-drónar en nokkur ár eru síðan klerkastjórnin í Íran gaf Rússum þessa tækni og hjálpaði Rússum að reisa drónaverksmiðju í Rússlandi. Síðan þá hefur tugum og hundruðum þessara dróna verið flogið til Úkraínu nánast daglega. Úkraínumenn hafa á undanförnum árum þróað lagaskipt varnarkerfi gegn þessum drónum. Notast er við margskonar skynjara til að kortleggja ferðir drónanna yfir Úkraínu og til að skjóta þá niður eða granda með rafrænum truflunum. Meðal annars notast Úkraínumenn við þyrlur, ódýr eldri flugskeyti sem búið er að breyta svo hægt sé að stýra þeim með leisergeislum, teymi hermanna á pallbílum með loftvarnarbyssur, önnur sérstök loftvarnarkerfi og jafnvel gamlar tveggja sæta flugvélar þar sem farþeginn er vopnaður haglabyssu og/eða riffli til að skjóta drónana niður. Ein besta leiðin sem Úkraínumenn hafa þróað til að granda sjálfsprengidrónum eru hraðskreiðir fyrstu persónu drónar, sem stýrt er með sýndarveruleikagleraugum, en þeir eru tiltölulega ódýrir og auðveldir í framleiðslu. Selenskí hefur áður sagt að Bandaríkin, ríki í Evrópu og í Afríku hafi leitað til Úkraínumanna eftir aðstoð. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur þó sagt að Bandaríkjamenn þurfi enga aðstoð. Countries in the Middle East and U.S. bases in the region need to be better protected. That is why they require drone interceptors. It's our new technological know-how. The war in the Middle East is not a land war, it’s aerial warfare. Hence, they need a lot of air defense… pic.twitter.com/yhvtbPHR4W— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) March 15, 2026 Reuters hefur eftir Selenskí að Úkraínumenn séu tilbúnir til að gera langvarandi samninga við ríki Mið-Austurlanda um framleiðslu þessara litlu dróna og aðstoð við beitingu þeirra. Úkraínumenn eigi í eigin stríði og muni þurfa eitthvað í staðinn. Nefndi hann sérstaklega bæði tækni og fjármagn og segir það gífurlega mikilvægt fyrir Úkraínu. Þá sagðist forsetinn hafa áhyggjur af því að langvarandi átök í Mið-Austurlöndum gætu haft afdrifarík áhrif á birgðir á flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi eins og Patriot. Slík kerfi eru einu varnirnar sem Úkraínumenn hafa gegn rússneskum skotflaugum. Ríki Evrópu hafa að undanförnu verið að kaupa flugskeyti fyrir þessi kerfi af Bandaríkjamönnum og senda til Úkraínu, meðal annars gegnum PURL-verkefnið svokallaða á vegum NATO.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Rússland Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira