Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 13. mars 2026 10:00 Í fyrsta skipti beitum við nú Loftslags- og orkusjóði með markvissum hætti til þess að ýta undir framþróun í landbúnaði og styðja bændur til fjárfestinga í tæknilausnum og skilvirkari áburðardreifingu. Ekki veitir af þessa dagana þegar gert er ráð fyrir hækkandi áburðarverði vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Loftslags- og orkusjóður úthlutar í dag samtals 80 milljónum króna til 42 verkefna. Þetta eru kaup á GPS-stýrðum áburðardreifurum, bættri tækni fyrir lífrænan áburð, dráttarvélum, sáningarvélum og svona mætti áfram telja. Um er að ræða eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem ég kynnti 12. september 2025. Áætlaður samdráttur vegna þessarar loftslagsaðgerðar nemur 1.007 tonnum CO2-íg/ári. Það samsvarar um 18% af allri losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar árið 2024. Ávinningurinn er fjölþættur. Hann felst ekki aðeins í minni losun gróðurhúsalofttegunda heldur líka í rekstrarsparnaði í búrekstri, betri meðferð á takmörkuðum auðlindum og minni vistkerfisröskun. Þetta er loftslagspólitík sem er góð fyrir bændur, góð fyrir hinar dreifðu byggðir á Íslandi og skilar sér í aukinni framleiðni, fæðuöryggi og verðmætasköpun. Við erum rétt að byrja og höldum áfram á þessari braut. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landbúnaður Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Í fyrsta skipti beitum við nú Loftslags- og orkusjóði með markvissum hætti til þess að ýta undir framþróun í landbúnaði og styðja bændur til fjárfestinga í tæknilausnum og skilvirkari áburðardreifingu. Ekki veitir af þessa dagana þegar gert er ráð fyrir hækkandi áburðarverði vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Loftslags- og orkusjóður úthlutar í dag samtals 80 milljónum króna til 42 verkefna. Þetta eru kaup á GPS-stýrðum áburðardreifurum, bættri tækni fyrir lífrænan áburð, dráttarvélum, sáningarvélum og svona mætti áfram telja. Um er að ræða eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem ég kynnti 12. september 2025. Áætlaður samdráttur vegna þessarar loftslagsaðgerðar nemur 1.007 tonnum CO2-íg/ári. Það samsvarar um 18% af allri losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar árið 2024. Ávinningurinn er fjölþættur. Hann felst ekki aðeins í minni losun gróðurhúsalofttegunda heldur líka í rekstrarsparnaði í búrekstri, betri meðferð á takmörkuðum auðlindum og minni vistkerfisröskun. Þetta er loftslagspólitík sem er góð fyrir bændur, góð fyrir hinar dreifðu byggðir á Íslandi og skilar sér í aukinni framleiðni, fæðuöryggi og verðmætasköpun. Við erum rétt að byrja og höldum áfram á þessari braut. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar