Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. mars 2026 22:40 Frá jarðarför stúlknanna og starfsfólki skólans. Getty Erlendir fjölmiðlar hafa birt sönnungargögn sem benda til þess að bandarískt flugskeyti hafi hæft stúlknaskóla í Íran. Að minnsta kosti 168 létust í árásinni, af þeim voru langflestir ungir nemendur við skólann. Bandaríkjaforseti segir Írani ábyrga.
Á fyrsta degi árása Bandaríkjanna hæfði flugskeyti Shajareh Tayyebeh, stúlknaskóla í Íran, en bæði nemendur og kennarar voru í byggingunni. Stór hluti skólans hrundi en hann var í jaðri lóðar herstöðvar Minab í suðurhluta Íran. Herstöðin er flotastöð Byltingarvarðar Íslam. Byggingin var áður hluti af herstöðinni en var fyrir níu árum aðskilin herstöðinni og breytt í skóla. Þegar hefur verið staðfest að þegar flugskeytið hæfði skólann voru Bandaríkjamenn að gera árásir á aðrar byggingar í áðurnefndri herstöð. Nú hafa fjölmiðlarnir New York Times, BBC og The Guardian birt sönnunargögn sem benda öll til þess að Bandaríkjamenn séu ábyrgir. Leitað í rústum skólansAP Á myndskeiðum sem fréttastofurnar hafa undir höndum sé hægt að fullyrða að bandarísk flugskeyti af gerðinni Tomhawk hafi hæft herstöðina við hlið skólans á sama tíma og árásin var gerð á stúlknaskólann. Her Bandaríkjanna er sá eini sem bæði tekur þátt í átökunum og notar flugskeyti af þessari gerð. Fyrir helgi var greint frá því að að rannsakendur Bandaríkjahers telji líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árásinni en það ekki fullyrt. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður út í árásina um helgina og sagði hann Írani bera ábyrgð á árásinni. „Við höldum að skotið hafi komið frá Írönum því þeir eru mjög ónákvæmir, eins og þú veist, með skotvopnin þeirra. Þeir eru alls ekki nákvæmir,“ sagði forsetinn við blaðamenn um borð í Air Force 1 flugvélinni. Gervihnattarmynd af herstöðinni og skólanum eftir árásina. Skólinn var efst fyrir miðju.AP Enginn fulltrúi Bandaríkjanna hefur endurtekið orð forsetans heldur sé árásin einungis til rannsóknar. Á korti sem Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sýndi á blaðamannafundi 4. mars sést hvar Bandaríkjamenn gerðu árásir í Íran. Á kortinu má sjá að Bandaríkjamenn gerðu fyrst árásir á sunnarverðan hluta landsins, þar sem stúlknaskólinn var. Umrætt kort sem sýnir árásir framkvæmdar af Bandaríkjunum á fyrstu hundrað klukkustundum átakanna.AP The Guardian birti mynd af leifum sprengjunnar en getur þó ekki staðfest að þær komi frá flugskeytinu sem lenti á skólanum. New York Times hefur greint myndina og greinir frá því að þar megi sjá merki Globe Motors, framleiðenda frá Ohio-fylki. Þá sjást orðin „Búið til í Bandaríkjunum“ (e. Made in the USA). Fordæma árásirnar Sameinuðu þjóðirnar gagnrýndu árásina harðlega og sögðu í yfirlýsingu að þau hefðu miklar áhyggjur af áhrifum hernaðarárásanna. Nemendur sem væru á stað sem helgaður er námi séu verndaðir samkvæmt alþjóðalögum um mannréttindi. Flestar stúlkurnar voru á milli sjö og tólf ára gamlar. Árásin er sú mannskæðasta af árásum Ísraela og Bandaríkjamanna frá upphafi átakanna 28. febrúar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Sjá meira