Notum þau verkfæri sem nýtast okkur best Kristín Linda Árnadóttir skrifar 11. mars 2026 09:02 Oft hafa verið hafðar uppi heitstrengingar um að einfalda verði regluverk hér á landi enda líði atvinnulífið og þar með samfélagið allt fyrir flókið kerfi sem á stundum geti virkað sem spennitreyja á umsvif og framfarir. Núverandi stjórnvöld hafa vissulega brett upp ermar og við hjá Landsvirkjun höfum mikla trú á að árangur sé í sjónmáli. Það skýtur því óneitanlega skökku við að á sama tíma skuli vera ætlunin að innleiða evrópskar reglur frá 2018 sem Evrópusambandið sjálft hefur þegar áttað sig á að gengu ekki nægilega langt. Reglur, sem óbreyttar geta dregið úr samkeppnishæfni okkar á alþjóðamarkaði. Breyttur heimur Íslendingar eiga aðild að innri markaði ESB í gegnum EES-samninginn. Í þeirri aðild felst sú skuldbinding að innleiða þær reglur sem gilda á innri markaðnum. Í sumum málaflokkum, til dæmis orkumálum, er innleiðingarhalli, þ.e. við höfum ekki innleitt allar þær reglur sem við höfum skuldbundið okkur til. Sú staðreynd, að við höfum látið tíma líða án þess að innleiða reglur, þýðir hins vegar að þessar sömu reglur eru nú orðnar úreltar. Heimurinn hefur breyst og við þurfum reglur sem endurspegla það. Tilefni þessara skrifa er að nú stendur til að innleiða hér á landi tilskipun um aukna notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, svokallaða RED II tilskipun (Renewable Energy Directive). Sá hængur er á, að innan Evrópusambandsins hefur endurskoðun þessarar tilskipunar (RED III) þegar tekið gildi og hraðað leyfisferlum sem varða uppbyggingu á endurnýjanlegri orkuvinnslu. Sú staðreynd er tilefni til að staldra við. Almannahagsmunir ráði Dæmi um breytingu milli tilskipana, sem við hjá Landsvirkjun teljum mikilvægt að innleiða hér á landi, er ákvæði nýju RED III tilskipunarinnar um almannahagsmuni. Þar er kveðið á um að leyfisveitingaferlið, uppbygging og rekstur endurnýjanlegrar orkuvinnslu og tilheyrandi innviðir skuli teljast til brýnna almannahagsmuna sem þjóni lýðheilsu og almannaöryggi. Þessi skilgreining getur haft áhrif á mat á umhverfisáhrifum og heimild til breytinga á umhverfismarkmiðum vatnshlota, svo dæmi séu nefnd. Það myndi einfalda og gera leyfisveitingaferlið fyrirsjáanlegra. Við hjá Landsvirkjun höfum alltaf vandað okkur við undirbúning, byggingu og rekstur virkjana og munum sannarlega gera það áfram. Leyfisveitingaferlið, sem við höfum byggt upp hér á landi, er hins vegar allt of tímafrekt og flókið. Virkjunarkostir sitja fastir í því ferli árum, jafnvel áratugum, saman. Á þeim árum og áratugum höldum við áfram að flytja inn og brenna jarðefnaeldsneyti, sem sannarlega þjónar ekki almannahagsmunum. Á þeim árum og áratugum fáum við ekki heldur þann fyrirsjáanleika í framboði á orku sem getur tryggt samkeppnisstöðu Íslands, því þrátt fyrir að við búum við lokað orkukerfi þá keppum við á alþjóðavettvangi um þau stórfyrirtæki sem vilja nýta orkuna okkar. Verðum að huga að samkeppnishæfni Orkuskipti fela í sér aukna vinnslu á innlendri orku sem jafnframt þýðir minni innflutning á jarðefnaeldsneyti. Ríkissjóður, atvinnulífið og allur almenningur myndu sannarlega njóta góðs af slíkum umskiptum. Aukin endurnýjanleg orkuvinnsla verður hins vegar vart að veruleika nema jafnframt verði hugað að því að auðvelda allan aðdraganda hennar og undirbúning. Það er hagur okkar allra að innleiða líka þær reglur sem auðvelda ferlið en ekki aðeins þær kröfur sem íþyngja því. Leiðin til aukinnar grænnar orkuvinnslu og orkuskipta er sannarlega ekki flóknara regluverk. Sú leið hefur reynst illfær. Við þurfum að huga að samkeppnishæfni Íslands og íslensks atvinnulífs og það gerum við með nýrri grænni orku inn á kerfið og hún þarf að vera samkeppnishæf í alþjóðlegu samhengi. Við þurfum einfaldari, hraðari og fyrirsjáanlegri leyfisveitingarferla fyrir orkumannvirki, traust flutnings- og dreifikerfi og skýra orkupólitík og atvinnustefnu. Vinnum ekki eftir reglum gærdagsins Það er ekki skynsamlegt að innleiða regluverk sem var hannað fyrir nær áratug — áður en orkukreppan skall á og áður en Evrópa sjálf hóf að endurskrifa leikreglurnar. Það er hins vegar sannarlega tímabært að innleiða tilskipanir sem auðvelda okkur að halda áfram á braut endurnýjanlegrar orkuvinnslu. Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð og vitum að við getum gert enn betur. Það gerum við með því að nýta lærdóm og reynslu annarra þjóða. Við getum ekki innleitt þegar úreltar reglur og beðið svo árum saman eftir þeim lausnum sem Evrópa er þegar farin að innleiða. Við höldum ekki samkeppnisstöðu okkar meðal þjóða á morgun ef við vinnum eftir reglum gærdagsins. Höfundur er aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Orkumál Kristín Linda Árnadóttir Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar