Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Þórarinn Þórarinsson skrifar 11. mars 2026 06:47 Vinahjónin Agnes, Jóel Darri, Rannveig og Páll geta brosað breitt því meir en nóg er að gera á Þúfunni sem þau eru þó enn á fullu við að standsetja. Mynd/Aðsend Þegar hinn rómaði flatbökustaður La Colina í Borgarnesi hætti sáu vinkonurnar Rannveig Rögn Leifsdóttir og Agnes Hjaltalín Andradóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafnaklett. Undirtektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins.
Pizzastaðurinn La Colina opnaði við Hrafnaklett í Borgarnesi í mars 2016 og festi sig fljótt í sessi sem huggulegur ef ekki nánast ómissandi viðkomustaður jafnt í hugum heima- og ferðafólks. Rekstri La Colina var hætt í janúar en ofnarnir eru nú þegar aftur orðnir funheitir með tilkomu Þúfunnar – Pizzeria & Espresso Bar sem vinkonurnar Rannveig Rögn og Agnes Hjaltalín opnuðu nýlega ásamt eiginmönnum sínum, þeim Páli Einarssyni og Jóel Darra Ólafssyni.„Við, vinahópurinn, vorum búin að vera að leita að einhverju skemmtilegu til að gera saman og langaði að fara út í einhvern svona rekstur,“ segir Rannveig. „Einn okkar er mjög áhugasamur og mikill pizzupælari þannig að hugmyndin fór bara að rúlla og endaði svona. Það var nú ekkert mikið flóknara en það,“ heldur hún áfram og bætir við að hópurinn leggi einnig upp með samfélagslegar áherslur og að flétta menningarstarfsemi saman við veitingareksturinn. Strax nóg að gera „Við vorum búin að skoða alls konar möguleika og síðan þegar þetta tækifæri kom þá hentaði það bara fjandi vel. Maður þarf náttúrlega alltaf meiri tíma til að gera og græja en þetta er bara búið að ganga ofboðslega vel,“ segir Rannveig og ekki ber á öðru því staðurinn er ekki fullkláraður en samt meira en nóg að gera. Hún segir að í upphafi hafi staðið til að gera hálfgerða tilraun með rólegri opnun í nýliðnu vetrarfríi án þess að auglýsa neitt eða vekja sérstaka athygli á staðnum. „Planið var alltaf að loka síðan bara alveg í eina eða tvær vikur í mars og halda áfram að klára það sem er enn ógert. Síðan er bara búið að ganga ofboðslega vel og þegar straumurinn byrjaði ákváðum við að hafa bara lokað á mánudögum og þriðjudögum í mars og reyna að klára þá,“ segir Rannveig og hlær. Flatbökurnar á matseðlinum eru sex til að byrja með og eru allar þróaðar og unnar frá grunni á staðnum. „Við þróum þetta allt sjálf, gerum deigið og allt frá grunni. Matseðillinn núna er tímabundinn en við ákváðum að byrja ekki með of margar tegundir heldur byrja á einhverju sem við ráðum vel við.Við erum að vinna í aðeins flóknari matseðli en fókusinn er alltaf á góðu hráefni frekar en of miklu úrvali. Við viljum frekar halda því fersku og góðu sem við erum með.“ Skiltið ekki komið upp Rannveig segir heimafólk búið að vera ofboðslega duglegt að mæta og sé „greinilega spennt fyrir því að eitthvað nýtt sé að koma með meiri fjölbreytni í flórunni hérna í heimabyggðinni. Síðan hefur alls konar fólk líka bara staldrað við. Fólk á ferðalagi, útlendingar og allur skarinn.“ Rannveig segir ljóst að þarna fari bæði fólk sem hefur vanið komur sínar á La Colina sem og fólk sem eigi bara leið fram hjá. „Mér finnst þetta stundum bara alveg ótrúlegt. Við erum ekki einu sinni búin að ná að setja upp skilti hérna fyrir utan og höfum ekkert auglýst eða neitt.“ Rannveig segir skilti staðarins og auglýsingar enn í vinnslu, eins og svo margt annað. „Þannig að þetta er bara mjög fín byrjun. Það þurfti að gera margt og við höfum gert helling og enn er fullt eftir. Þetta mun bara koma til með að vera svolítið lifandi, bara í stöðugri þróun og breytast hægt og rólega.“
Borgarbyggð Veitingastaðir Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Sjá meira