Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Bjarki Sigurðsson skrifar 16. febrúar 2026 13:10 Hjalti Már Björnsson er formaður Félags lækna gegn náttúruvá. Vísir/Arnar Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil.
Enn mælist svifryksmengun langt yfir heilsuverndarmörkum við helstu umferðargötur Reykjavíkur. Ekkert rykbindiefni er til á landinu og því erfitt að bregðast við menguninni. Krabbameinsvaldandi Hjalti Már Björnsson, formaður Félags lækna gegn umhverfisvá, segir þessa miklu mengun alvarlegra mál en margir geri sér grein fyrir. „Svifrykið sem við búum við hér á höfuðborgarsvæðinu, og sennilegast á Akureyri, þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir okkur öll. Þetta eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum, þetta er krabbameinsvaldandi og í þessu svifryki eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda okkur heilsutjóni,“ segir Hjalti. Langtímaáhrifin safnast upp Erlendar rannsóknir sýni að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem svifryksmengun mælist mikil. Þá sé einnig algengt að afleiðingar birtist ekki fyrr en löngu síðar. „Það bendir allt til þess að þetta hafi langvarandi skaðleg áhrif á okkur. Alveg eins og við vitum að þegar einhver er að reykja veldur það ekki krabbameini yfir nóttu en langtímaáhrifin safnast upp. Vísindin benda til þess að nákvæmlega sama eigi við um loftmengunina í borginni í dag,“ segir Hjalti. Verra að vera í bíl Hann segir það verra fyrir viðkvæma að keyra í slíkri mengun en að ganga. „Bílarnir eru þeir sem bera ábyrgð á þessari svifryksmengun. Fólk gleymir því oft að mesti styrkurinn er í umferðaræðunum. Þannig að þeir sem sitja í bílunum í útblæstrinum frá bílnum á undan og í rykinu sem þyrlast upp frá bílunum í kring verða fyrir mestu menguninni,“ segir Hjalti.
Loftgæði Reykjavík Akureyri Kópavogur Garðabær Hafnarfjörður Seltjarnarnes Mosfellsbær Umhverfismál Umferð Heilsa Loftslagsmál Bílar Nagladekk Heilbrigðismál Samgöngur Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira