Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2025 22:10 Gabriel fagnar eftir að hafa skorað fyrsta mark Arsenal gegn Aston Villa. getty/Justin Setterfield Eftir ellefu sigra í röð í öllum keppnum var Aston Villa skellt hressilega niður á jörðina af Arsenal í kvöld. Skytturnar unnu 4-1 sigur og náðu fimm stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Villa vann Arsenal, 2-1, fyrr í þessum mánuði en viðureign kvöldsins var ójöfn, allavega seinni hálfleikurinn þar sem öll mörk leiksins komu. Gabriel kom Arsenal yfir með skalla eftir hornspyrnu Bukayos Saka á 48. mínútu. Fjórum mínútum síðar sendi Martin Ødegaard á Martín Zubimendi sem skoraði annað mark heimamanna. Á 69. mínútu jók Leandro Trossard muninn í 3-0 með skoti fyrir utan vítateig og níu mínútum síðar skoraði varamaðurinn Gabriel Jesus fjórða mark Arsenal með laglegu skoti. Ollie Watkins lagaði stöðuna í uppbótartíma með sínu þriðja marki í síðustu tveimur leikjum. Lokatölur 4-1, Arsenal í vil. Þetta var fjórði deildarsigur Arsenal í röð en liðið er með 45 stig á toppnum, fimm stigum meira en Manchester City sem á leik til góða. Villa er í 3. sætinu með 39 stig en þetta var fyrsta tap liðsins síðan 1. nóvember. Arsenal FC Aston Villa FC Enski boltinn