Liðið sem gerir stólpagrín að xG Sindri Sverrisson skrifar 30. desember 2025 12:46 Morgan Rogers hefur skorað mörk úr erfiðum færum fyrir Villa. Getty Arsenal tekur á móti Aston Villa í sannkölluðum stórleik í kvöld í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Villa-menn hafa gert ótrúlega hluti varðandi vænt mörk (xG eða Excpected Goals) í leikjum sínum og geta með sigri í kvöld jafnað Arsenal að stigum á toppnum.
Leikur Arsenal og Aston Villa er í beinni á Sýn Sport 3 í kvöld klukkan 19:55. Fylgst er með öllum leikjum kvöldsins í Doc Zone sem hefst á Sýn Sport klukkan 19:15. Aðeins þrjú stig skilja liðin að eftir að Villa vann sinn áttunda deildarleik í röð um helgina, með endurkomunni gegn Chelsea, í kjölfar sigurs Arsenal á Brighton. Manchester City er svo einnig í titilbaráttunni, tveimur stigum frá toppnum, en spilar ekki fyrr en á nýársdag, við Sunderland. Unai Emery hefur þegar stýrt Villa til dramatísks 2-1 sigurs gegn sínu gamla félagi fyrr í þessum mánuði, þar sem Emiliano Buendia skoraði sigurmarkið á fimmtu mínútu uppbótartíma. Villa-menn hafa gert það hreinlega að listgrein að skora mörk úr hálfómögulegum færum á leiktíðinni og hér að neðan má sjá nokkur marka þeirra sem haft hafa lægsta xG-gildið (gildið væri til dæmis 1 ef færið væri svo gott að það væri ekki fræðilega annað hægt en að skora, 0 ef það væru nákvæmlega engar líkur á að skora úr færinu, og 0,5 ef helmingslíkur væru á að boltinn færi inn). Klippa: Aston Villa raðar inn mörkum úr afar erfiðum færum Í ellefu síðustu deildarleikjum Villa hefur liðið aðeins þrisvar sinnum verið með hærra samanlagt xG, það er að segja vænt mörk, heldur en mótherjinn. Samt hefur liðið unnið tíu af þessum ellefu deildarleikjum. Sigurinn gegn Arsenal 6. desember er þannig einn fárra leikja þar sem Villa hefur verið með hærra xG en mótherjinn, ea 2,51 gegn 1,98 hjá Arsenal, í leik sem endaði 2-1 fyrir Villa. Vænt mörk í síðustu ellefu leikjum Aston Villa. Aðeins þrisvar hefur Villa verið með fleiri vænt mörk en mótherjinn.Tribuna Samanlagt hefur Villa skorað 23 mörk í síðustu ellefu deildarleikjum en ætti samkvæmt væntum mörkum að hafa skorað 13 mörk. Liðið hefur svo bara fengið á sig 12 en ætti að hafa fengið á sig 18. Samtals gerir þetta mun upp á 16 mörk, Villa í hag.
Enski boltinn Arsenal FC Aston Villa FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira