Arsenal nálgast kaup á Konsa Arsenal er að nálgast samkomulag við Aston Villa um kaup á varnarmanninum Ezri Konsa. Enski boltinn 19.8.2026 10:47
Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Aston Villa hefur staðfest kaupin á markverðinum Zion Suzuki frá Parma og vinstri bakverðinum Matteo Ruggeri frá Atlético Madrid. Talið er að Villa borgi samtals 47 milljónir punda fyrir leikmennina. Enski boltinn 19.8.2026 10:32
Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jadon Sancho hefur fengið tilboð frá liðum í ensku úrvalsdeildinni en svo virðist sem hann vilji finna sér lið erlendis. Enski boltinn 14.8.2026 16:45
Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Enski boltinn 13.8.2026 14:00
Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Argentínski knattspyrnumaðurinn Alejandro Garnacho segir að hann vilji endurheimta sjálfstraustið undir stjórn Unai Emery eftir komu sína til Aston Villa. Enski boltinn 24. júlí 2026 15:47
Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Aston Villa hefur fengið argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho að láni frá Chelsea, gengið verður svo frá kaupum næsta sumar til að komast fram hjá fjárhagsreglum. Enski boltinn 23. júlí 2026 14:42
Aston Villa reynir að fá Garnacho Aston Villa er í viðræðum við Chelsea um að fá Alejandro Garnacho í sínar raðir. Búist er við að Garnacho komi að láni sem gæti endað með því að Villa kaupi leikmanninn. Fótbolti 21. júlí 2026 20:03
Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda Aston Villa hefur samþykkt kauptilboð Chelsea í enska landsliðsmanninn Morgan Rogers. Tilboðið hljóðar upp á 117 milljónir punda. Enski boltinn 18. júlí 2026 20:13
Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Aston Villa hefur gengið frá kaupum á svissneska miðjumanninum Johan Manzambi frá Freiburg fyrir metfé. Enski boltinn 17. júlí 2026 17:47
Villa að stela Manzambi af Newcastle Svo virðist sem Aston Villa sé að stela svissneska miðjumanninum Johan Manzambi beint fyrir framan nefið á Newcastle United. Enski boltinn 13. júlí 2026 11:32
Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Amadou Onana, leikmaður Aston Villa og belgíska fótboltalandsliðsins, verður frá næstu mánuðina eftir að hafa meiðst illa í leik Belgíu og Bandaríkjanna í sextán liða úrslitum á HM í gær. Enski boltinn 7. júlí 2026 16:02
Milner hættur í fótbolta Enski knattspyrnumaðurinn James Milner hefur tilkynnt að fótboltaskórnir hans séu komnir upp á hillu en þessi fertugi leikmaður bætti leikjametið á nýlokinni leiktíð. Enski boltinn 1. júní 2026 08:33
Vann tvo Evróputitla sama vorið Evann Guessand afrekaði það í gær að vinna annan Evróputitil sinn á leiktíðinni. Hann lék fyrir bæði Aston Villa og Crystal Palace, sem unnu sitthvora Evrópukeppnina. Enski boltinn 28. maí 2026 10:30
Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær. Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár, nýliðar eru á leið í Evrópu og þekkt lið á leiðinni niður. Deildin kveður goðsagnir í lifanda lífi. Enski boltinn 25. maí 2026 10:31
Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Líða fer að kveðjustund í enska boltanum þennan veturinn. Lokaumferð deildarinnar fer fram á sunnudag þar sem Arsenal mun lyfta langþráðum bikar og annað hvort Tottenham eða West Ham mun falla í B-deildina. Sýn Sport verður með puttann á púlsinum. Enski boltinn 22. maí 2026 11:00
Lítið þorp í Gana hélt skrúðgöngu fyrir Aston Villa Á sama tíma og lið Aston Villa fagnaði Evrópudeildartitlinum með skrúðgöngu í Birmingham var skrúðganga haldin í litlu þorpi í Gana af sama tilefni. Fótbolti 21. maí 2026 22:01
Spilaði úrslitaleikinn puttabrotinn Emiliano Martinez, markmaður Aston Villa, spilaði puttabrotinn í sigri liðsins í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á móti Freiburg sem fór fram í gærkvöldi. Fótbolti 21. maí 2026 10:30
Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Sigur Aston Villa í Evrópudeildinni í fótbolta hefur ansi áhugaverð áhrif á lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á sunnudaginn. Þar ræðst hvort það verða fimm eða sex ensk lið í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Enski boltinn 21. maí 2026 09:01
Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Aston Villa varð í gærkvöld Evrópudeildarmeistari með frábærum 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl. Mörkin mögnuðu úr leiknum og meistarafögnuðinn má sjá á Vísi. Fótbolti 21. maí 2026 08:31
Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Vilhjálmur Bretaprins lét sig ekki vanta þegar Aston Villa spilaði úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Freiburg og fagnaði manna mest þegar sigurinn var í höfn. Fótbolti 20. maí 2026 22:58
Aston Villa er Evrópudeildarmeistari Aston Villa vann Evrópudeildina með 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleiknum. Enska liðið hafði algjöra yfirburði gegn því þýska og mörkin skoruðu Youri Tielemans, Emiliano Buendia og Morgan Rogers. Fótbolti 20. maí 2026 18:31
Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 15. maí 2026 20:35
Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Ashley Young kvaddi fótboltaferil sinn formlega á samfélagsmiðlum í gær. Þessi fertugi fyrrum leikmaður lauk honum með því að fara upp um deild. Enski boltinn 14. maí 2026 15:01
Mistókst að lyfta sér upp fyrir Liverpool Þremur leikjum er lokið í dag í ensku úrvalsdeildinni og öllum lauk þeim með jafnteflum. Falldraugurinn vofir enn yfir Nottingham Forest og Aston Villa mistókst að gera fjórða sætið að sínu. Enski boltinn 10. maí 2026 15:01
Aston Villa - Nott. Forest | Létt veganesti gestanna Aston Villa þarf að vinna upp 1-0 forskot Nottingham Forest í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 7. maí 2026 18:32