Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2025 22:02 Rayan Cherki fagnar sigurmarki sínu fyrir Manchester City en leikmenn Nottingham Forest eru mjög ósáttir. Getty/Catherine Ivill Forráðamenn Nottingham Forest eru mjög ósáttir með að sigurmark Manchester City hafi fengið að standa en City vann 2-1 sigur í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Forest hefur beðið um hljóðupptökur frá myndbandsdómurum á meðan félagið íhugar að leggja fram formlega kvörtun í kjölfar tapsins gegn Manchester City. Félagið er afar óánægt með ákvarðanir dómarans Rob Jones í 2-1 tapi liðsins á City Ground á laugardaginn. Forest hefur snúið sér til PGMOL-dómaranefndarinnar og beðið um að fá að heyra samtöl milli dómara á vellinum og myndbandsdómarateymisins á lykilaugnablikum leiksins. Sean Dyche yfirþjálfari taldi að sigurmark Rayan Cherki á 83. mínútu hefði átt að vera dæmt af vegna brots á Morgan Gibbs-White og að Jones hefði átt að sýna Ruben Dias, varnarmanni City, seinna gula spjaldið eftir hlé. „Svo auðveldur leikur að dæma, að mínu mati, svo auðveld ákvörðun fyrir VAR,“ sagði Sean Dyche eftir þennan æsispennandi leik á laugardaginn. „Þegar þú hefur spilað svona vel, að koma inn og þurfa að tala um að dómarar hafi áhrif á leikinn – en þeir gerðu það svo sannarlega. Allir á vellinum og allir sem horfðu heima gátu séð það,“ sagði Dyche. Leikmenn Forest kvörtuðu við dómarann Jones og héldu því fram að Nico O'Reilly hefði ýtt Gibbs-White þegar hann varðist í hornspyrnu og þar með komið í veg fyrir að hann gæti varið sigurmark Cherki. „Það er alveg augljóst að Morgan Gibbs-White er ýtt í gólfið og sami leikmaður á þátt í að verja skotið,“ sagði Dyche. „En hann getur ekki varið það því þegar hann stekkur upp fer boltinn í gegnum þann hluta líkamans sem hann hefði varið boltann með. Hvernig sem á það er litið, þá er þetta brot,“ sagði Dyche. Myndbandsdómarar skoðuðu markið en leyfðu ákvörðun Jones á vellinum að standa. Eftir tapið er Forest fimm stigum fyrir ofan fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. PGMOL hefur áður spilað hljóðupptökur fyrir félög í einrúmi, þar á meðal fyrir Nottingham Forest.
Enski boltinn Manchester City Nottingham Forest Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira