Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Lovísa Arnardóttir skrifar 10. desember 2025 06:30 Líf segir stýrihópinn samstíga. Þau séu enn að fara yfir tillögurnar. Vísir/Sigurjón Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót. „
Við erum búin að vinna töluvert með tillögurnar og þær hafa tekið talsverðum breytingum. Við erum ekki alveg búin að botna þær,“ segir Líf sem vill ekkert segja um innihald breytinganna. Hún segir að eftir áramót verði breytingartillögur kynntar fyrir íbúum borgarinnar og auk þess sérstaklega fyrir ýmsum hagsmunahópum. Fjölmörg samtök skiluðu umsögn um málið, bæði hagsmunasamtök og stéttarfélög. Harðasta gagnrýnin var ef til vill frá stéttarfélögum og ákveðnum hópum foreldra, einstæðum og einstökum foreldrum. Sem dæmi sagði formaður BSRB tillögurnar vonbrigði. Formaður Eflingar, Félags leikskólakennara og grunnskólakennara fögnuðu aftur á móti tillögunum. Fjallað var um umsagnir í þessari frétt: „Við kynnum þær fyrir hagsmunahópum í samtali áður en við tökum ákvörðun. Við fengum rosalega harða gagnrýni frá verkalýðsforystunni,“ segir hún. Líf segist ekkert vilja gefa upp um hvaða breytingar verði gerðar á leiðinni en sagði í viðtali í nóvember að hópurinn væri til dæmis með tekjubil og skráningu á skráningardögum til skoðunar. Hún segir áskorun að búa til kerfi sem henti öllum en að stýrihópurinn, sem er þverpólitískur, sé samstíga í breytingunum. Hún segir hópinn enn eiga eftir að hittast nokkrum sinnum áður en breytingarnar verða kynntar. Vilja fækka fáliðunardögum Tveggja vikna samráði um tillögur um breytta gjaldskrá leikskóla í Reykjavík lauk í október. Alls bárust tæplega tvö hundruð umsagnir frá einstaklingum, stofnunum, samtökum og félögum. Breytingarnar voru kynntar í upphafi október og miða að því að fækka fáliðunardögum í leikskólum og auka fyrirsjáanleika fyrir starfsfólk, foreldra og aðra forráðamenn. Miklar breytingar eru í tillögunni gerðar á gjaldskrá og kynntir nýir afslættir sem eiga að hvetja foreldra til að stytta dvalartíma barna sinna. Vinnutími starfsfólks á að vera 36 klukkustundir en meðaldvalartími barna er yfir 40 klukkustundir. Breytingunum er ætlað að tryggja að vinnutími starfsfólks verði 38 klukkustundir. Einstæðir foreldrar með meðallaun sem þurfa meira en átta tíma dvöl barns í leikskóla og þurfa að nota alla skráningardaga leikskóla í Reykjavík geta búist við því að leikskólagjöld þeirra hækki um allt að 185 prósent verði af fyrirhuguðum breytingum á gjaldskrá leikskóla í Reykjavík. Gjöld þeirra sem geta sótt klukkan 14 eða fyrr á föstudögum lækka í nýrri gjaldskrá, stundum verulega. Fjölmörg samtök skiluðu umsögn um málið en þar má nefna ÖBÍ, W.O.M.E.N – samtök kvenna af erlendum uppruna, Stígamót, Vitund, Kvennaathvarfið, Kvenfélagasamband Íslands, Félag einstakra mæðra, Sósíalistafélag Reykjavíkur, Félag atvinnurekenda og fjölmörg stéttarfélög eins og Efling, VR, BSRB, Flugfreyjufélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag Íslands.
Skóla- og menntamál Reykjavík Leikskólar Stéttarfélög Félagasamtök Börn og uppeldi Stytting vinnuvikunnar Borgarstjórn Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira