Leik lokið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Árni Gísli Magnússon skrifar 27. júní 2025 20:25 Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego Valsmenn eru sjóðheitir þessa dagana og þeir fylgdu á eftir stórsigri á KR með 5-2 stórsigri á KA fyrir norðan í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í þrettándu umferð Bestu deildar kalra í fótbolta. Valsmenn nýttu sér vel mörg mistök KA-manna sem færðu þeim mörkin á silfurfati í kvöld. Adam Ægir Pálsson skoraði það fyrsta og tveimur mínútum síðar skoruðu KA-menn í eigið mark. Bjarni Aðalsteinsson minnkaði muninn í 2-1 í lok fyrri hálfleiks en Valsmenn skoruðu aftur tvö mörk á stuttum tíma í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn. Þau mörk skoruðu þeir Tómas Bent Magnússon og Albin Skoglund. Varamaðurinn Stefán Gísli Stefánsson innsiglaði síðan sigurinn með sínu fyrsta marki í efstu deild. Hans Viktor Guðmundsson lagaði aðeins stöðuna fyrir KA undir lok leiksins. Valsmenn fóru upp í annað sætið með þessum sigri og eru nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Víkings. Valur er búið að skora flest mörk í deildinni eða 35 mörk í 13 leikjum. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Besta deild karla Valur KA