Leik lokið: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga

Árni Gísli Magnússon skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru á toppi Bestu deildarinnar.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru á toppi Bestu deildarinnar. Vísir/Diego

Gylfi Þór Sigurðsson var bæði með mark og stoðsendingu þegar Víkingar náðu fjögurra stiga forskoti á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld eftir 2-0 sigur á KA á Akureyri.

Gylfi lagði upp skallamark fyrir Nikolaj Andreas Hansen í fyrri hálfleik og skoraði síðan sjálfur í síðari hálfleik með þrumuskoti frá vítateigslínunni.

KA-menn eru því áfram í fallsæti en Víkingar hafa unnið fjóra af síðustu fimm deildarleikjum sínum og verða örugglega áfram á toppnum eftir þessa umferð. Blikar eru fjórum stigum á eftir en eiga leik inni.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira